Fréttablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 12
12 15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
ALÞINGI Viðskiptaráð telur ástæðu til að
skoða hvort heppilegt geti verið að fá erlenda
aðila til að annast rannsóknir í tengslum við
hrunið.
Fyrir Alþingi liggja tillögur um nokkrar
slíkar og veitir Viðskiptaráð sömu umsögn
um þrjár þeirra; rannsókn á Íbúðalánasjóði,
rannsókn vegna Icesave og rannsókn á einka-
væðingu bankanna.
Ráðið segir að vissulega verði sá lærdómur
sem fæst út úr slíkum rannsóknum mikil-
væg vitneskja þegar fram í sækir. Hins vegar
sé þörf á að hugsa um það sem fram undan
sé, en ekki rýna eingöngu í það sem gerst
hafi, hvernig og af hverju. Stöðnun megi
ekki ríkja á meðan niðurstaðna rannsókna sé
beðið, líkt og gerðist þegar beðið var skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis. Að auki þurfi að
gæta þess að rannsókn hafi ekki áhrif á fram-
þróun mála meðan á henni stendur.
Verði ákveðið að efna til rannsókna segir
Viðskiptaráð nauðsynlegt að um þær ríki
sátt. Þeim sé ætlað að eyða tortryggni og því
sé mikilvægt að rannsakendum sé treyst.
Von sé til að traust og sátt fáist ef óháðir
erlendir aðilar verði fengnir til verksins.
„Hægt væri að gera rannsóknir á rannsókn-
ir ofan um ókomna tíð um öll þau atriði sem
tortryggni ríkir um og draga þarf fram í
dagsljósið, en það er til einskis ef niðurstöðu
slíkra rannsóknar er ekki treyst,“ segir
Viðskiptaráð. - bþs
Viðskiptaráð segir nauðsynlegt að víðtæk sátt ríki um rannsóknir á hrunsmálum:
Útlendingar gætu skapað sátt hér á landi
ALÞINGI Tillögur um nokkrar rannsóknir liggja fyrir
þinginu.
FÉLAGSMÁL Jólaaðstoð 2010 fékk
í fyrradag fimm milljóna króna
framlag frá Bónusverslununum.
Það var Francisca Mwansa,
starfsmaður í Bónus, sem
afhenti Sigurði Ingimarssyni
hjá Hjálpræðishernum gjöfina.
Jólaaðstoð 2010 er samstarfs-
verkefni Mæðrastyrksnefndar,
Hjálparstarfs kirkjunnar, Rauða
krossins í Reykjavík og Hjálp-
ræðishersins.
Matarúthlutun hefst um
næstu helgi. Þá verða matar-
pakkar sendir út á land.
Dagana 20. til 23. desember
munu þeir sem þurfa aðstoð á
höfuðborgarsvæðinu geta sótt
sína jólaaðstoð í Skútuvog 3.
- þeb
Bónus gaf gjafakort:
Jólaaðstoð fær
fimm milljónir
GJÖFIN AFHENT Francisca Mwansa
afhenti Sigurði Ingimarssyni gjöfina í
gær.
Virðing
Réttlæti
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK
S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Minnum á
desember-
uppbótina
Desemberuppbót á að greiða
ekki seinna en 15. desember.
ALÞINGI Söfnun Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
á upplýsingum um stjórnmálaskoðanir almenn-
ings á sjötta áratugnum var rædd á Alþingi í
gær.
Í bók Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræð-
ings um ævi Gunnars Thoroddsen, fyrrverandi
forsætisráðherra og varaformanns Sjálfstæð-
isflokksins, kemur fram að markmið flokksins
hafi verið að hafa trúnaðarmenn í öllum fyrir-
tækjum í höfuðborginni með fleiri en tíu manna
starfslið „og skyldi sérhver þeirra vera trúverð-
ugur og dugandi maður“.
Þráinn Bertelsson, VG, sagði þarna lýst stór-
felldasta njósnaprógrammi sem hann hefði séð,
og þekkti hann þó sögu Þriðja ríkisins í Þýska-
landi og sögu Austur-Þýskalands. Þráinn spurði
þingmenn Sjálfstæðisflokksins hvort markmið-
ið um fjölda trúnaðarmanna hefði náðst: „Hvað
tókst að njósna mikið og hvenær verða þessar
rannsóknir aðgengilegar á netinu? Eða hefur
þeim verið tortímt?“
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins tóku þátt í
umræðunni og sögðu flokkinn ekkert hafa að
fela.
„Ég verð að viðurkenna að ég get ekki svar-
að spurningu háttvirts þingmanns um persón-
unjósnirnar,“ sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir
þingflokksformaður. „Ég veit að þær eru ekki
viðhafðar núna, að minnsta kosti ekki þannig
að mér sé kunnugt um.“
Þetta er frekar snubbótt svar en það er vegna
þess að ég veit ekki meira um málið,“ sagði
Ragnheiður Elín.
Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki, sagði
að spurningin um hvaða markmiðum menn
hefðu náð fyrir fimmtíu árum væri áhugaverð
fyrir sagnfræðinga frekar en þingmenn.
Þór Saari, Hreyfingunni, sagði lýsingar
bókarinnar kalla á samanburð á Sjálfstæðis-
flokknum og ógnarstjórnum kommúnista og
fasista á síðustu öld. „Þetta er pólitísk arfleifð
sem er hroðaleg,“ sagði Þór. „Hana þarf að gera
upp og Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki taka það
upp hjá sjálfum sér að gera hana upp.“
„Enginn dylur neitt,“ sagði Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki. Margt af því
sem kæmi fram í bók Guðna yrði eflaust skoð-
að. Hún hvatti fólk til að lesa einnig „bók Þórs
Whiteheads um kommúnismann og þau tengsl
sem hann hafði meðal annars inn í íslenskt
samfélag og hefur hugsanlega enn“.
peturg@frettabladid.is
Sjálfstæðismenn krafðir svara
Ævisaga Gunnars Thoroddsen var rædd á Alþingi í gær. Tveir þingmenn kröfðu Sjálfstæðisflokkinn skýr-
inga á söfnun persónuupplýsinga á sjötta áratug síðustu aldar. Ekkert að fela, segir Þorgerður Katrín.
ALÞINGI „Þetta var viðtekið í stjórnmálum á sínum tíma,“ staðhæfði Einar K. Guðfinnsson og mótmælti því að
menn töluðu um það sem persónunjósnir að stjórnmálaflokkar hefðu áður fyrr fylgst með skoðunum manna.
SJÁVARÚTVEGUR „Við vísum ábyrgð-
inni á þeirri ofveiði sem fyrirsjá-
anleg er á næsta ári alfarið á hend-
ur Evrópusambandinu og Noregi,“
segir Tómas H. Heiðar, formaður
samninganefndar Íslands í makríl-
viðræðum við ESB og Noreg.
Tómas segir allt útlit fyrir að
Ísland og Færeyjar setji sér nú ein-
hliða kvóta, rétt eins og Norðmenn
og Evrópusambandið hafa gert.
„Staðan verður því áfram sú sama
og verið hefur á þessu ári.“
Nú í vikunni slitnaði upp úr við-
ræðum ESB og Noregs við Færey-
inga, rúmlega hálfum mánuði eftir
að upp úr viðræðum við Íslendinga
slitnaði þegar ljóst var orðið að
ekkert yrði af samkomulagi.
Að loknum þeim fundi sendi
sjávar útvegsráðuneytið frá sér til-
kynningu um að hlutdeild Íslands í
kvótanum yrði óbreytt á næsta ári,
eða 16 til 17 prósent af þeim 646
þúsund tonna kvóta sem vísinda-
menn telja ráðlegan.
Norðmenn og Evrópusambandið
tóku í gær þá ákvörðun að skammta
sjálfum sér samtals níutíu prósent
af heildarkvótanum, sem þýðir að á
næsta ári verður samtals veitt tölu-
vert umfram ráðlagðan kvóta.
„Með þessu er ekkert tillit tekið
til lögmætra hagsmuna Íslands og
Færeyja, sem stunda lögmætar
veiðar úr stofninum,“ segir Tómas.
„Ekki er heldur tekið neitt tillit til
Rússa, sem veiða einnig úr þessum
stofni í Síldarsmugunni.“
Í gær var svo í erlendum frétta-
miðlum fullyrt að Maria Damanaki,
fiskveiðistjóri Evrópusambandsins,
íhugaði refsiaðgerðir gegn Íslandi
og Færeyjum. Þær refsiaðgerðir
myndu felast í löndunarbanni innan
Evrópusambandsins á makríl frá
þessum löndum.
„Við höfum ekkert við það að
athuga,“ sagði Tómas um þessar
refsiaðgerðir, „enda gilda hér á
landi sömu reglurnar. Samkvæmt
íslenskum lögum er það þannig að
við heimilum ekki löndun erlendra
skipa hér á landi á afla úr deili-
stofnum sem ósamið er um. Þetta
er því bara spegilmynd af því sem
gildir hér á landi.“
Löndunarbannið myndi hvort eð
er ekki hafa nein áhrif á veiðarnar
hér á landi.
„Menn hafa landað aflanum á
Íslandi og unnið hann hér, enda
hafa veiðar okkar nánast alfarið
verið innan okkar lögsögu.“
gudsteinn@frettabladid.is
Evrópusambandið og Noregur taka sér 90 prósent makrílkvótans á næsta ári:
Löndunarbann hefði engin áhrif
Á FUNDI Í BRUSSEL Richard Benyon, sjávarútvegsráðherra Bretlands, á tali við Júlíu
Damanaki, fiskveiðistjóra Evrópusambandsins, áður en fundur hófst í sjávarútvegs-
og landbúnaðarráði Evrópusambandsins á mánudag. NORDICPHOTOS/AFP
HJÓLANDI JÓLASVEINN Í vikunni
reyndu nokkur hundruð jólasveinar
í Kólumbíu að setja heimsmet á
reiðhjólum, en þrátt fyrir veðurblíðuna
mættu ekki nógu margir.
NORDICPHOTOS/AFP