Fréttablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 24
15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Fyrir Alþingi liggur nú frum-varp um breytingar á lögum
um málefni fatlaðra. Lagaramm-
inn kveður á um að ábyrgð á
málaflokknum færist yfir til
sveitarfélaga 1. janúar nk. Unnið
hefur verið að þessari stefnu-
mótun allt frá ársbyrjun 2007
og var lokaskref þess undirbún-
ings, stigið þann 23. nóvember sl.
með undirritun heildarsamkomu-
lags ríkis og sveitarfélaga um til-
færslu ábyrgðar á þjónustunni.
Meginmarkmið yfirfærslunnar
er að eitt stjórnsýslustig beri
ábyrgð á almennri og sértækri
félagsþjónustu við fatlaða í
heimabyggð og fella hana eins og
framast er unnt að starfsemi ann-
arra þjónustuaðila; færa þjónust-
una nær notendum og auðvelda
þannig aðgang að henni, í öðrum
orðum samþætta þjónustu innan
laga um málefni fatlaðra m.a.
félags-, skóla- og frístundaþjón-
ustu sveitarfélaga. Meginfor-
senda þess að hægt sé að ástunda
þessa hugmyndafræði er að
þjónusta við fatlaða sé á ábyrgð
sveitarfélaga.
Eðlilega setja notendur þjón-
ustu, aðstandendur, hagsmuna-
samtök, starfsmenn, sveitar-
stjórnarfólk, alþingismenn og
þeir sem láta sig þessa sértæku
og mikilvægu þjónustu varða,
spurningar fram og velta fyrir
sér hvort verið sé að gera rétt
og hvað breytingarnar hafa í
för með sér. Allar spurningar og
vangaveltur eru til góðs, en ekki
má láta efasemdir sem eðlileg-
ar eru þegar verið er að taka svo
stórar stjórnvaldsákvarðanir sem
þessar, birtast í formi neikvæðr-
ar umræðu. Umræðan á að bein-
ast að því að hverju hefur verið
stefnt, og þeirri reynslu sem
áunnist hefur hjá sveitarfélögum
til margra ára.
Þetta segi ég vegna þess að
hér á landi hefur byggst upp ára-
löng reynsla og þekking á að hafa
ábyrgð á málefnum fatlaðra hjá
sveitarfélögum og sporin hræða
ekki. Akureyrarbær, Norðurþing,
Sveitarfélagið Hornafjörður, Vest-
mannaeyjabær, og sveitarfélögin
á Norðurlandi vestra, hafa síð-
ustu 11-15 ár verið með ábyrgð á
málefnum fatlaðra með þjónustu-
samningum við ríkið og unnið út
frá hugmyndafræði um heild-
stæða og samþætta nærþjónustu
í heimabyggð.
Leiðarljós við uppbyggingu
þjónustu við börn og fullorðna
innan þessara sveitarfélaga hefur
verið að koma á sveigjanlegu og
skilvirku skipulagi og persónu-
legri þjónustu innan félags-, skóla-
og frístundaþjónustu. Almennt má
segja að reynslan hafi verið góð
og ekki hefur verið rætt um að
fara til fyrra horfs og setja á stofn
svæðisskrifstofur sem lagðar
voru niður þegar sveitarfélögin
tóku við þjónustunni.
Sveitarfélög eru að nálgast
þetta nýja verkefni af metnaði og
er undirbúningur á fullu en ljóst
er að 1. janúar verður ekki loka-
skrefið stigið, heldur er þá fyrsti
dagur í langri vegferð til breyt-
inga sem án efa mun hafa góð og
skilvirk áhrif á alla nærþjónustu
sveitarfélaga til langs tíma litið.
Í hnotskurn getum við sagt að nú
eigi sér stað þjónustubylting á
Íslandi.
Ég fagna samkomulagi um
flutning málefna fatlaðra til
sveitarfélaga og hvet Alþingi til
að veita málinu skjóta og jákvæða
afgreiðslu. Markmið frumvarps-
ins eru skýr og tel ég hér vera
gæfuspor fyrir notendur og veit-
endur þjónustunnar og mikilvæg
tímamót í þjónustuumhverfi sveit-
arfélaga þar sem mark miðið er að
þjónustan sé skilvirk og á ábyrgð
fárra aðila, sérfræðiþekking fjöl-
þætt og áhersla lögð á þverfagleg
vinnubrögð.
Í því efnahagsumhverfi sem
við Íslendingar búum við um
þessar mundir er kallað til þess
að fundnar verði leiðir til að nýta
fjármagn enn betur og ná fram
hagræðingu með samvinnu til að
viðhalda núverandi þjónustustigi.
Án efa munu sveitarfélög horfa til
þess við undirbúning yfirfærslu
málefna fatlaðra.
Málefni fatlaðra – ábyrgð á
þjónustu til sveitarfélaga
Fatlaðir
Gréta Sjöfn
Guðmundsdóttir
verkefnisstjóri
Sveitarfélög eru að nálgast þetta nýja
verkefni af metnaði og er undirbúningur
á fullu.
AF NETINU
Fengu aldrei krónu
Fyrrum starfsfólk Kaupþings sem nú semur um greiðslur á skuldum sem það
stofnaði til vegna hlutabréfakaupa í bankanum hefur þá sérstöðu að fólkið
fékk aldrei neina peninga. Það skrifaði undir skuldina, eignaðist hlutabréf
sem nú eru verðlaus og eftir situr skuldin.
Fólkið hélt að þetta væri lykill að ríkidæmi, sem ekki varð. Ég sé ekki að
við hin höfum það betur ef þetta fólk missir heimili sín.
Miðjan Sigurjón M. Egilsson
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Fréttablaðið og Vísir.is hvetja lesendur
til að senda línu og leggja orð í belg
um málefni líðandi stundar. Greinar og
bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið
er á móti efni á netfanginu greinar@
frettabladid.is. Ritstjórn ákveður hvort
efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða
í báðum miðlunum að hluta eða í
heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga
og til að stytta efni.
Lumex
Skipholti 37
Sími 568 8388
www.lumex.is Síðan 1985
5.900
17.900
20.500kr.
kr.
kr.
FUNK
128.700kr.
121.500kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
52
23
6
11
/1
0
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
North Face fatnaður
jólatilboð