Fréttablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 28
Veturinn í ár hefur verið einkar
hagstæður til norðurljósadýrkun-
ar. Veðurskilyrði hafa verið hag-
stæð og vel hefur gengið að ferja
ferðamenn út fyrir borgarmörk-
in á köldum heiðskírum kvöldum.
Boðið hefur verið upp á skipulagð-
ar norður ljósaferðir frá Reykja-
vík í nær tíu ár og segir Björn
Hróarsson, jarðfræðingur og fram-
kvæmdastjóri hjá Extreme Iceland,
að stöðugt fjölgi ferðalöngum.
„Ég, og allir þeir sem í þessu
standa, erum að fara út í nánast
hvert einasta skipti sem von er
á heiðríkju og það eru áberandi
fleiri gestir í ár en síðasta vetur,“
segir Björn. „Norðurljósin eru
orðin ferðamannaiðnaðinum mjög
mikilvæg.“
Björn segir að á bilinu 10-20 fyrir-
tæki bjóði upp á norðurljósaferðir
frá höfuðborgarsvæðinu og á góðu
kvöldi ferji þau hátt í 300 manns út
fyrir borgina. Flestir fara rétt nógu
langt til að sleppa frá ljósmengun
borgarinnar, á meðan aðrir kjósi
nokkurra daga ferðir og flétti þá
norðurljósin inn í þær.
„Sumir vilja komast á myrkan
stað þar sem er heiður himinn og
nota í það þrjár til fimm klukku-
stundir. Þetta eru vinsælustu
ferðirnar. Síðan er mjög algengt
að fólk kaupi tveggja daga ferð-
ir með gistingu í eina nótt. Þá er
jafnvel keyrt norður í Hrútafjörð
eða þangað sem spáin er góð fyrir
norðurljós. Síðan er til í dæminu að
fólk sé að fara í háfjallaferðir og
við förum til dæmis töluvert oft til
Hveravalla.“
Ekki er öruggt að norðurljósin
láti sjá sig þó að heiðskírt sé en
ferðamennirnir taka því flestir
með jafnaðargeði ef engin eru
ljósin. Björn segir flesta gera sér
grein fyrir því að norðurljósin eru
hverful náttúrufyrirbrigði sem
ekki sé hægt að treysta á. Þó er
eitthvað um ferðamenn sem koma
gagngert til landsins til að sjá
norðurljósin en hafa ekki unnið
heimavinnuna nógu vel. „Maður
hefur heyrt sögur af því að hingað
komi fólk sem ætlar að gista eina
nótt á landinu og sjá norðurljósin,
sama hvað það kostar. Svo er bara
hríðarbylur.“ tryggvi@frettabladid.is
Hundruð í leit að norður-
ljósunum hvert kvöld
Þegar heiðskírt er áætlar Björn Hróarsson jarðfræðingur að 200-300 erlendir ferðamenn leggi út í
nóttina í leit að norðurljósum. Hátt í tuttugu fyrirtæki bjóða upp á ferðir þar sem ljósin eru elt uppi.
Ef norðurljósin láta ekki sjá sig reynir á Björn sem leiðsögumann. „Það er margt annað sem hægt er að sjá og segja sögur af í
íslensku vetrarnóttinni en bara norðurljós,“ segir Björn Hróarsson, jarðfræðingur og leiðsögumaður hjá Extreme Iceland.
Norðurljósin er hægt að sjá allt frá septemberlokum fram á vormánuði. Ef heiðskírt
er og dimmt eru meiri líkur en minni á að þau láti sjá sig að einhverju leyti.
Lengst inni í afskekktum dal í fjöllum Papúa Nýju-Gíneu býr Kvermin-
fólkið, sem fyrst komst í kynni við Vesturlandabúa á sjöunda áratug
20. aldar. Sveinn Eggertsson mannfræðingur lýsir kynnum sínum af
þessu fólki í bókinni Skálduð skinn sem kom út á dögunum.
SNILLDARJÓLAGJÖF 15%
Jólafsláttur af
þessum frábæru
hleðslutækjum
Borgardekk
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið í des: mán-fös kl. 10-18
laugardaginn 18.des kl. 10-18
Þorláksmessu kl. 10-20
Aðfangadag kl. 10-12
www.misty.is
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ