Fréttablaðið - 15.12.2010, Side 38
30 15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR30
menning@frettabladid.is
Bækur ★★
Stolnar raddir
Hugrún Hrönn Kristjánsdóttir
Afi fór ekki á honum Rauð
Stolnar raddir er fyrsta skáldsaga Hugrúnar Hrannar Kristjánsdóttur og sem
slík lofar hún góðu. Söguhetjan er Sóllilja, rúmlega tvítug Reykjavíkurmær
sem er í íslensku í Háskólanum, á dóttur og býr heima hjá ömmu. Hún
segir söguna í nútíðinni í fyrstu persónu en inn í er fléttað flassbökkum til
bernskunnar og sögu afa hennar og ömmu frá sjöunda og áttunda áratug
síðustu aldar. Sú saga er um margt áhugaverð og
öðruvísi og á köflum finnst lesanda sögu Sóllilju
vera ofaukið og sú hugsun verður ásækin að bókin
hefði kannski orðið betri ef saga afans og ömm-
unnar hefði verið eina umfjöllunarefnið, enda sú
saga bæði örlagaþrungnari og með dýpri undirtóni
en nútíðarhluti bókarinnar.
Bókin er ágætlega byggð og skemmtileg aflestr-
ar, persónurnar áhugaverðar, en hefði mátt leggja
meiri áherslu á persónusköpun afans og ömm-
unnar í fortíðinni og setja þau í betra samhengi
við þann tíma sem þau lifðu. Það örlar á því á
köflum að höfundurinn þekki ekki sögusviðið
nógu vel í þeim hluta sögunnar.
Nútíð Sóllilju er árið 2009 en ekki finnur lesand-
inn þó mikið fyrir því andrúmslofti sem þá ríkti í þjóðfélaginu, rétt er minnst
á mótmæli, hrun og ólgu í framhjáhlaupi. Daglegt líf Sóllilju er kunnuglegt
úr ýmsum bókum bæði innlendum og erlendum; leit ungrar konu að sjálfri
sér, rótum sínum og stað í lífinu. Vettvangur þeirrar leitar er Þjóðarbók-
hlaðan og seinna skúringar á Grund á daginn, ferðir á ölstofur á kvöldin
sem leiða til þess að duglega lögfræðinemanum er dömpað fyrir miðaldra
blaðamann með vafasamt orðspor í kvennamálum með tilheyrandi tauga-
titringi og vangaveltum um hvort hann sé nú nógu hrifinn af henni. Þennan
söguþráð þekkjum við vel en það er leyndarmálið úr fortíðinni sem gerir líf
hennar, og um leið söguna, frábrugðið og heldur lesandanum við efnið.
Hugrún Hrönn er lipur penni, textinn flæðir áreynslulaust og í bernsku-
köflunum örlar á ljóðrænum tilþrifum. Fléttun sagnanna tveggja er hagan-
lega gerð og lesandinn hvattur áfram með hæfilegu magni af upplýsingum
til að viðhalda áhuganum á því að lesa áfram. Einhverjum vandræðum
virðist höfundurinn þó hafa lent í við að enda söguna og er síðustu köfl-
unum eiginlega ofaukið, þeir verða hálfgerður antíklímax sem dregur úr
áhrifamætti þess þegar leyndarmálin upplýsast.
Í heild er sagan þó hin besta skemmtun og augljóst að hér er kominn
fram höfundur sem á framtíðina fyrir sér í skriftunum. Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Ágætlega byggð og vel skrifuð saga með skemmtilegu plotti,
en hefði mátt við meiri dýpt.
Bókaforlagið Omdúrman
gefur út í samvinnu við
Listasafn Íslands bókina
Jónas E. Svafár – ljóð og
myndir. Þröstur Helgason
ritstýrði verkinu
um þennan sérstaka
listamann.
Í bókinni má finna heild-
arsafn ljóða og mynda
Jónasar E. Svafár (1925-
2004), meðal annars lit-
prentaða, handgerða
útgáfu að fyrstu ljóða-
bók Jónasar „Það blæð-
ir úr morgunsárinu“.
Auk þess að ritstýra
bókinni ritar Þröstur
Helgason formála að
bókinni, sem og Ingólf-
ur Arnarsson mynd-
listarmaður.
Jónas var af samferðamönnum
sínum kallaður grallari, sérvitr-
ingur, gamansamur galgopi og
hrekkjalómurinn með orðaleik-
ina. Erindi hans var hins vegar
skýrt, Jónas beindi spjótum sínum
að yfirdrepsskap og heimsku vald-
hafa, stríðsrekstri og mannúðar-
skorti.
Þröstur ritstýrði bókinni að
umleitan Hjálmars Sveinssonar
hjá Omdúrman.
„Jónas E. Svafár er mjög spenn-
andi höfundur,“
segir Þröstur, „og
tímabært að dusta
af honum rykið,
hann var dálítið
dottinn út úr sam-
hengi.“
Þótt nafn Jónas-
ar hafi ekki verið
skráð með feitu
letri á spjöld bók-
menntasögunnar,
telur Þröstur áhrif
hans meiri en marg-
an grunar.
„Ég rek ákveðna
slóð í formálanum,“
segir Þröstur. „Elías
Mar sér til dæmis þráð í íslenskri
ljóðlist allt frá Kvæðakveri Hall-
dórs Laxness til ljóða Þórarins
Eldjárns með viðkomu í Jónasi
Svafár, Degi Sigurðarsyni og sjálf-
um sér. Ég held að það megi líka
finna áhrif frá Jónasi og þeirri
hefð sem hann stóð fyrir í fyrstu
ljóðabókum Einars Más, sem birt-
ist til dæmis í málnotkun, orða-
leikjum og þessari „banal“ pólit-
ísku nálgun á veruleikann. Síðan
eru það yngri skáld á borð við
Steinar Braga, Kristínu Svövu
Tómasdóttur og Eirík Örn Norð-
dahl. Ég held að áhrifa Jónasar
gæti nokkuð í þeirra verkum.“
Jónas var sérstakur karakter og
oft á skjön við sinn samtíma. Fyrir
vikið hefur hann ekki verið metinn
að verðleikum að mati Þrastar.
„Það sýnir sig nokkuð skýrt
þegar saga mannsins er skoðuð og
viðtökurnar við bókum hans. Hann
var alveg úti á jaðrinum í hinum
íslenska bókmenntaheimi; meira
að segja atómskáldin, sem voru þá
á jaðrinum settu hann út á kant.
Sjálfsagt fannst þeim hann skrít-
inn og bernskur. En þegar maður
rýnir í verk hans í ljósi þess sem
var að gerast í alþjóðlegri ljóðlist
og myndlist, hann teiknaði jú líka,
virðist Jónas hafa verið í samræðu
við það sem var að gerast ytra í
þessum efnum.“
bergsteinn@frettabladid.is
Skáld á jaðri jaðarskálda
ÞRÖSTUR HELGASON Segir Jónas E. Svafár ávallt hafa verið hafðan úti á kanti, jafnvel meðal atómskáldanna sem áttu þó líka að
heita úti á kanti hins íslenska bókmenntaheims. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bókaútgáf-
an Ugla hefur
endurútgef-
ið skáldsöguna
Panta l jón og sér-
þjónustan eftir
Mario Vargas
Llosa. Hann hlaut
sem kunnugt er
Nóbelsverðlaunin
fyrir bókmenntir
í ár og veitti þeim
viðtöku fyrir helgi.
Bókin segir frá
Pantaljón höfuðs-
manni, sem er úthlut-
að sérstöku leyniverk-
efni á vegum hersins í
frumskógum Perú. Hann
er að eðlisfari siðavand-
ur og bregður því illi-
lega þegar í ljós kemur
að verkefnið felst í því
að skipuleggja „sér-
þjónustu“ kvenna til
að svala ástarþörf-
um hermannanna
í afskekktum her-
fylkjum.
Sigrún Ástríður
Eiríksdóttir þýðir
en þetta er eina
skáldsaga Vargas
Llosa sem þýdd
hefur verið á
íslensku.
Pantaljón á íslensku
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is
OPIÐ
Laugardag frá kl. 10-17
Sunnudag frá kl. 13-17
Virka daga frá kl. 10-18
Sængurver
Frábærar jólagjafir!
Dúnkoddi
= 19.900,-
Allur pakkinn
Dúnsæng
++
6.980,-
2 pör
He
ils
ui
nn
is
kó
r s
em
lag
ar sig
að fætinum - einstök þæ
gindi
3.900,-
1 par
9.990,-
3 pör
Memory Foam
heilsuinniskór.
Heilsusamleg jólagjöf á frábæru verði!
Þrennutilboð!
Sen
dum
frítt
út á
land
!
ÚTGÁFUHÓF Í HAVARÍI Ritvélin, nemendafélag ritlistarnema við Háskóla Íslands, efnir til útgáfuteitis í bókabúðinni Útúrdúr
í Austurstræti 6 á föstudag klukkan 17. Tilefnið er útgáfa bókarinnar Beðið eftir Sigurði. Nokkrir af höfundum bókarinnar lesa upp
úr verkum sínum auk þess sem hljómsveitin Agent Fresco leikur lög af nýútgefinni plötu sinni í rólegum útsetningum.