Fréttablaðið - 15.12.2010, Page 42
34 15. desember 2010
folk@frettabladid.is
Zac Efron og Vanessa Hud-
gens eru hætt saman eftir
tæplega fimm ára samband.
Hinn 23 ára gamli Zac og
hin 22 ára gamla Vanessa
felldu hugi saman við
tökur á kvikmyndinni High
School Musical fyrir fimm
árum, en nú skilja leiðir.
Þær dapurlegu fréttir bárust frá
Hollywood að stjörnurnar Zac
Efron og Vanessa Hudgens séu
hætt saman eftir tæplega fimm
ára samband. Greint var frá þessu
á þriðjudaginn en ástæða slitanna
ku vera sú að þau hafa þurft að
verja full miklum tíma aðskilin
vegna vinnunnar og segja vinir
þeirra að þau vilji njóta þess að
vera á lausu.
Zac og Vanessa kynntust
við tökur á Disney kvik-
myndinni High School
Musical, þar sem þau léku
ástfangna unglingapar-
ið Troy og Gabriellu, en
það leið ekki á löngu þar
til ástin á milli þeirra kviknaði í
alvöru. Næstu fimm árin áttu eftir
að verða afar athyglisverð. Tvær
aðrar High School Musical kvik-
myndir voru gerðar með þeim
Zac og Vanessu í aðalhlutverkum,
en stuttu eftir að mynd númer tvö
kom út tókst Vanessu að koma sér í
heimspressuna þegar nektarmynd-
ir af henni láku á netið. Vanessa
var miður sín og útskýrði að mynd-
irnar hefðu eingöngu átt að vera
handa Zac, en hún var einungis 17
ára þegar þær voru teknar. Þrátt
fyrir hneykslið, stóð Disney sam-
steypan með stjörnunni sinni og
Vanessa hélt hlutverki sínu sem
Gabriella og samband hennar við
Zac raskaðist ekki.
Það liðu aðeins tvö ár þar til
nektarmynda skandallinn endur-
tók sig, en árið 2009 birtust fleiri
myndir af Vanessu sem einnig
voru teknar árið 2007. Þá fóru af
stað sögur þess efnis að Vanessa
stæði sjálf á bak við lekann en ekk-
ert hefur fengist staðfest í þeim
efnum. Zac Efron virðist hafa
sloppið við nektarmyndir af sér en
miklar vangaveltur hafa þó verið
um kynhneigð hans og vilja fjöl-
margir meina að hann sé samkyn-
hneigður. Efron hefur hins vegar
blásið á allar þær kjaftasögur.
Vinir Zacs og Vanessu eru hand-
vissir um að þau muni taka saman
á ný þar sem þau eiga víst að vera
bestu vinir þrátt fyrir sam-
bandsslitin. Við getum ekki
annað en beðið og vonað það
besta. kristjana@frettabladid.is
Leiðir skilur hjá stjörnu-
parinu Efron og Hudgens
UNG OG ÁSTFANGIN Zac Efron og Vanessa Hudgens í hlutverkum sínum sem Troy Bolton og Gabriella Montez í kvikmyndinni
High School Musical.
SAMKYNHNEIGÐUR SÖNG-
FUGL? Zac Efron hefur verið
iðinn að leika í söngleikja-
myndum eins og High
School Musical og Hairspray
og kannski er það þess
vegna sem margir telja
hann samkynhneigðan.
NORDICPHOTOS/GETTY
ÖLL Í NEKTARMYNDUNUM Nektar-
myndir af Vanessu láku tvisvar á netið
og vilja einhverjir meina að hún
standi sjálf á bak við lekann.
NORDICPHOTOS/GETTY
„Allur ágóði af mótinu rennur beint til þeirra
mæðgna og vonast ég til að sem flestir sjái sér fært
að leggja okkur lið,“ segir Davíð Rúnarsson, einn-
ig þekktur sem Dabbi Rú, eigandi Gullaldarinnar í
Grafarvogi.
Á morgun klukkan 20 hyggst Dabbi halda sérstakt
góðgerðapókermót á Gullöldinni til að safna upp í
stofnfrumumeðferð fyrir Ellu Dís, en barátta henn-
ar hefur ekki farið fram hjá Íslendingum. Mótið er
haldið í samráði við Rögnu, móður Ellu Dísar, og
hefur Dabbi unnið að skipulagningu síðustu fjór-
ar vikurnar. „Tilgangurinn er að safna upp í stofn-
frumumeðferð sem er áætluð núna í apríl 2011 og er
það mín von og vilji að sem flestir sjái sér fært að
mæta og styðja við gott málefni,“ segir Dabbi.
Fyrirkomulagið er þannig að það kostar 1.000
krónur að taka þátt í mótinu, en keppendur geta
keypt sig inn eins oft og þeir vilja innan ákveð-
ins tímaramma. „Heildarverðmæti vinninga er
nú þegar komið í hálfa milljón og endar vonandi
í einni kúlu svo ekki er einungis verið að styðja
við frábæran málstað heldur er einnig til mik-
ils að vinna,“ segir Dabbi, en vinningarnir koma
úr ýmsum áttum. „Allar helstu stjörnur póker-
samfélagsins munu taka þátt sem og einhverjir
þjóðþekktir Íslendingar.“ - afb
Spila póker til styrktar Ellu Dís
GÓÐGERÐAPÓKER Allur ágóði pókermóts sem Dabbi Rú held-
ur á Gullöldinni í Grafarvogi á morgun rennur til baráttu Ellu
Dísar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Leikarinn Michael C. Hall og leikkon-
an Jennifer Carpenter eru skilin eftir
tveggja ára hjónaband. Hall og Carp-
enter leika systkinin Dexter og Debru
Morgan í hinum frábæru þáttum um
Dexter.
Talsmenn hjónanna fyrrverandi stað-
festa þetta í yfirlýsingu til bandarískra
fjölmiðla. Fullyrt er að þau hafi ekki
búið saman í talsverðan tíma, en
að skilnaðurinn sé á vingjarn-
legum nótum. Þau giftu sig á
gamlársdag árið 2008, en þau
kynntust á tökustað Dexters-
þáttanna.
Dexter skilur
við „systur“ sína
SKILIN Þau leika
systkini í Dexter en
voru gift í alvöru.
ER SAMANLAGÐUR árafjöldi Brads Pitt, Angelinu Jolie og barna þeirra sex, en þau eiga börnin Maddox,
Pax, Zahöru, Shiloh, Knox og Vivienne. Pitt er 46 ára og Jolie 35 ára, en börnin eru á bilinu tveggja til níu ára.110
20.500kr.
FUNK
Lumex
Skipholti 37
Sími 568 8388
www.lumex.is
Jólaúthlutun Fjölskylduhjálpar Íslands
Er sem hér segir:
Reykjanesbær
Hafnargötu 29
S. 697 3521
22. des
Akureyri
Freyjusnesi 4
S. 869 0820
22. des
Reykjavík
Eskihlíð 2-4
S. 892 9603
14-15-21-22 des.
Frá kl 14:00
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM
HEIMAVELLI
Meiri Vísir.
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.