Fréttablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 46
38 15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
Klovn: The Movie verður
frumsýnd í Danmörku í
kvöld og það ríkir mikil
eftirvænting meðal Baun-
verja hvernig þeim Frank
og Casper reiðir af á hvíta
tjaldinu. Dreifingaraðili
myndarinnar telur Klovn
vera nýjustu útflutnings-
vöru Danmerkur.
Klovn: The Movie verður, ef að
líkum lætur, einn stærsti smell-
ur í sögu danskrar kvikmynda-
gerðar. Frank Hvam og Casper
Christiansen eru kóngar danskr-
ar kómedíu um þessar mundir og
fjölmiðlar fylgjast með hverju
skrefi þeirra; það varð til að
mynda mikið fjölmiðlafár þegar
veggspjald myndarinnar birtist en
þar sést greinilega í lim Caspers
Christiansen þar sem hann ligg-
ur umkringdur nöktum konum og
karlmannshendi.
Að sögn Rikke Ennis, sölustjóra
hjá TrustNordisk sem dreifir og
selur bæði myndina og þættina
fyrir framleiðslufyrirtækið Zent-
ropa, eru Klovn-þættirnir ein-
stakir á Norðurlöndunum. Þetta
sé til að mynda fyrsta norræna
gamanserían sem sé sýnd samtím-
is í nágrannalöndunum Finnlandi,
Svíþjóð, Noregi og samveldislönd-
unum Færeyjum og Grænlandi.
Og svo sé það Ísland en Ennis
lýsir Klovn-æðinu hér sem ótrú-
legu fyrirbæri. „Frank og Casper
eru orðnir að hálfgerðum menn-
ingarfyrirbærum þar og Klovn-
þættirnir eru sagðir vera vin-
sælli en Twilight,“ útskýrir Ennis
í viðtali við danska blaðið B.T og
bætir við að þetta sé algjört brjál-
æði. Fulltrúi Iceland Express hafi
hringt í Casper sjálfan og beðið
um leyfi til að sýna þættina í flugi
milli Íslands og Ameríku.
Þeir Casper og Frank geta ekki
kvartað yfir vinsældum sínum,
Frank hefur þvælst um alla Dan-
mörku með uppistandssýningu
sína og sýnt fyrir fullu hús. Sam-
kvæmt B.T. þénuðu þeir félagar
yfir 120 milljónir saman á síðasta
ári og lepja því varla dauðann úr
skel á næstunni enda má fastlega
gera ráð fyrir að kvikmyndin eigi
eftir að skila þeim nokkrum krón-
um í vasann. Klovn: The Movie
verður síðan frumsýnd hér á landi
1. janúar og þeir Casper og Frank
eru væntanlegir til Íslands þótt
ekki liggi fyrir hvort þeir mæti
fyrir áramót eða strax á nýju ári.
freyrgigja@frettabladid.is
Furðar sig á vinsældum
Franks og Caspers á Íslandi
ÓTRÚLEGAR VINSÆLDIR Frank Hvam og Casper Christiansen njóta ótrúlegra vinsælda á Norðurlöndunum og kvikmyndarinnar
um ævintýri þeirra er beðið með eftirvæntingu. Veggspjald myndarinnar olli fjölmiðlafári í Danmörku enda sést þar í lim Caspers
Christiansen. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Steve Brodsky, söngvari og gítar-
leikari bandarísku rokksveitar-
innar Cave In, spilar á Sódómu
Reykjavík á fimmtudagskvöld.
Brodsky á að baki fimmtán
ára feril með Cave In en hefur
undanfarin ár látið að sér kveða
sem sólótónlistarmaður.
„Hann hefur verið að gefa út
sólóplötur undir sínu nafni en
hljómsveitin Cave In, sem hann
er frægastur fyrir að hafa verið í,
er enn þá starfandi,“ segir Leifur
Björnsson, skipuleggjandi tónleik-
anna. „Þeir í Cave In voru upp-
hafsmenn þessar emo-stefnu sem
hefur verið að tröllríða öllu. Þeir
njóta mikillar virðingar, sérstak-
lega á meðal músíkanta, og hafa
farið í stór tónleikaferðalög með
böndum á borð við Foo Fighters
og Muse.“
Efnisskrá tónleikanna á
Sódómu spannar allt frá ólgandi
krafti áranna með Cave In yfir
í melódíska kassagítartónlist,
auk þess sem áheyrendur fá að
skyggnast inn í sólóferil Brodskys.
„Þetta er óumdeilanlega mjög
merkilegur náungi. Þessi músík
sem hann er að gera í dag er dálít-
ið ólík Cave In. Hún er meira óraf-
mögnuð og lágstemmdari,“ segir
Leifur. - fb
Forsprakki Cave In til Íslands
STEVE BRODSKY Brodsky spilar á
Sódómu Reykjavík á fimmtudagskvöld.
- BOXOFFICE MAGAZINE
- ORLANDO SENTINEL
- TIME OUT NEW YORK
12
12
1010
16
16
10
10
10
10
L
LL
L
L
L
L7
LIFE AS WE KNOW IT kl. 8 - 10:10
HARRY POTTER kl. 6 - 9
ÆVINTÝTÝRI SAMMA-3D kl. 6
NARNIA-3D kl. 5.30, 8 og 10.30
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5.30, 8 og 10.30
HARRY POTTER kl. 5, 8 og 10.10
DUE DATE kl. 8
THE LAST EXORCISM kl. 6 - 8 - 10:10
LIFE AS WE KNOW IT kl. 5:30 - 8 - 10:30
HARRY POTTER kl. 5:30 - 7 - 8:30 - 10
HARRY POTTER kl. 5:30 - 8:30
DUE DATE kl. 8 - 10:10
KONUNGSRÍKI UGLANNA M/ ísl. Tali kl. 5:50 DON CARLO Ópera endurflutt kl. 6
THE LAST EXORCISM kl. 6 - 8 - 10:10
THE JONESES kl. 8
HARRY POTTER á morgun kl. 5:30 - 8:30
RED kl. 10:10
ÆVINTÝTÝRI SAMMA-3D M/ ísl. Tali kl. 6
M I Ð A S A L A Á
M I Ð A S A L A Á
ÓHUGNALEG SPENNUMYND SEM FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA OG BRETLANDI!
Frá Íslandsvininum Eli Roth sem færði okkur Hostel
ásamt framleiðendum Dawn of the Dead.
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
5%
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
NARNIA 3 3D kl. 5.45 - 8 - 10.15
FASTER kl. 8 Síðasta sýning
PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 10
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 5.45
7
16
16
L
Nánar á Miði.is
NARNIA 3 3D kl. 4 - 5.30 - 8 - 10.30
NARNIA 3 3D LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
FASTER kl. 8 - 10.10
PARANORMAL ACTIVITY 2 kl. 8 - 10.10
THE NEXT THREE DAYS KL. 10.10
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 4 - 6
JACKASS 3D ÓTEXTAÐ KL. 5.50 - 8
ARTHÚR 3 KL. 3.40
7
7
16
16
12
L
12
L
NARNIA 3 3D kl. 6 - 9
FASTER kl. 8 - 10.10
AGORA KL. 6 - 9
NIKO OG LEIÐIN TIL STJARNANNA KL. 6
UNSTOPPABLE KL. 10.10
EASY A KL. 6
YOU WILL MEET A TALL DARK STRANGER KL. 8
7
16
14
L
L
L
L
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR
ÍSL. TAL ÍSL. TAL
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
"MYND SEM HITTIR Í MARK!"
-H.H, MBL
HEIMSFRUMSÝNING Í 3-D
- bara lúxus
Sími: 553 2075
NARNIA 3D 7 og 10 7
PARANORMAL ACTIVITY 2 8 og 10 16
THE NEXT THREE DAYS 8 og 10.30 12
NIKO OG LEIÐINN TIL STJARNANNA 6 - ISL TAL L
ARTÚR 3 6 - ISL TAL L