Fréttablaðið - 15.12.2010, Page 47
MIÐVIKUDAGUR 15. desember 2010 39
Rapparinn Ja Rule má muna fífil
sinni fegri. Hann náði talsverð-
um vinsældum upp úr aldamót-
um, en lítið hefur spurst til hans
undanfarin misseri. Þar til nú.
Ja Rule hefur verið ákærður
fyrir ólöglegan vopnaburð og
gæti átt yfir höfði sér tveggja ára
fangelsisdóm. Rapparinn hefur
játað brotið sem átti sér stað árið
2007 þegar lögreglan stöðvaði
hann fyrir of hraðan akstur og
fann byssu í bílnum hans.
Dómari sker úr um hvort hann
fer í fangelsi eða ekki 9. febrúar
á næsta ári, en hann gengur laus
þangað til.
Ja Rule
í steininn
HVER? Jú, þetta er Ja gamli Rule.
Leikarinn Nicolas Cage hefur
lengi verið duglegur við að leika
sturlaða menn, en nú veltir
almenningur í Rúmeníu fyrir sér
hvar mörkin milli leiks og alvöru
liggja.
Cage er staddur í Rúmeníu
við tökur á kvikmyndinni Ghost
Rider 2. Hann sturlaðist á veit-
ingastað í Búkarest á dögunum
og rúmenskur vegfarandi tók
kastið upp á síma og mynd-
bandið fer nú eins og eldur í sinu
um vestræna fjöl-
miðla.
Ekki er vitað hvað
fór í taugarnar á
Cage, sem öskraði
á starfsmenn
veitingastað-
arins eins
og hann
ætti lífið að
leysa.
Sturlaðist
í Rúmeníu
KLIKK Nicolas
Cage lét
starfsmenn
veitingastaðar
í Búkarest
heyra það.
Þórunn Björnsdóttir segir
það hafa verið gæfuríka
ákvörðun þegar hún tók
að sér að stjórna Skólakór
Kársness fyrir 35 árum.
„Það geta öll börn sungið ef þau
fá tækifæri til þess,“ segir Þór-
unn Björnsdóttir, kórstjóri Skóla-
kórs Kársness.
Þórunn hefur vakið mikla
athygli fyrir það frábæra kóra-
starf sem hún hefur unnið í Kárs-
nesskóla í Kópavogi, en hún hefur
stjórnað skólakórnum í 35 ár. „Ég
var rétt rúmlega tvítug þegar ég
byrjaði. Ég var nemandi í Skóla-
hljómsveit Kópavogs þegar mér
var skipað að fara að stjórna kór,“
segir Þórunn og hlær. „Ég vissi
ekkert hvað ég var að fara út í
en þetta var gæfurík ákvörðun og
það varð aldrei aftur snúið.“
Þórunn velur ekki söngvara í
kórinn heldur mega allir nem-
endur Kársnesskóla vera með.
Eins gerir stundaskrá nemenda
í 3.-7. bekk ráð fyrir kóræfing-
um, sem er algjör sérstaða hér á
landi. „Margir skólar bjóða ekki
upp á tónmenntakennslu og það
er mjög dapurt. Það hafa margir
krakkar verið í kórnum hjá mér
sem síðar hafa haldið áfram í
tónlist. Einhverjir þeirra hefðu
kannski aldrei vitað að þeir hefðu
einhverjar tónlistargáfur og þá
hefðu þeir aldrei fengið tækifæri
til að þroska þennan hæfileika,“
segir Þórunn, en söngvararnir
Emilíana Torrini og Gissur Páll
Gissurarson voru til dæmis eitt
sinn í skólakór Þórunnar.
Nú fyrir jólin kemur út disk-
ur með Skólakór Kársness sem
ber nafnið „Englar í snjónum“,
en diskurinn er sá sjöundi sem
kórinn gefur út. „Hátt í 200 börn
koma fram á þessum diski og
allt eru það nemendur úr Kárs-
nesskóla,“ segir Þórunn. Kórinn
hefur sungið með mörgum helstu
flytjendum landsins og á dögun-
um kom hann fram á jólatónleik-
um Björgvins Halldórssonar.
„Það er alveg ógleymanleg lífs-
reynsla fyrir öll þessi börn að fá
að standa í troðfullri Laugardals-
höll með öllu þessu þekkta fólki,“
segir Þórunn. Hinn 19. desem-
ber verður kórinn með tónleika
í Salnum í Kópavogi. „Við ætlum
að syngja lög af nýja diskn-
um í bland við gömul jólalög.
Diddú ætlar að koma og syngja
með okkur,“ segir hin hógværa
Þórunn Björnsdóttir að lokum.
kristjana@frettabladid.is
Hefur stjórnað skólakór í 35 ár
ÞEKKIR EKKI ANNAÐ EN KÓRSTJÓRN Þórunn Björnsdóttir hefur verið kórstjóri Skóla-
kórs Kársness frá tvítugu og heldur ótrauð áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það geta öll börn
sungið ef þau fá tæki-
færi til þess.
ÞÓRUNN BJÖRNSDÓTTIR
KÓRSTJÓRI SKÓLAKÓRS KÁRSNESS
Ástríða í íslenskri
matargerð
www.ora.is