Fréttablaðið - 15.12.2010, Blaðsíða 48
15. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR40
sport@frettabladid.is
29
DAGAR
ÁRIÐ 1938 var fyrsta HM í handbolta. Það var haldið í Þýskalandi og tóku aðeins fjórar þjóðir þátt í mótinu sem var spilað
á tveim dögum. Heimamenn urðu heimsmeistarar en hinar þjóðirnar í mótinu voru Austurríki, sem varð hluti af Þýskalandi
mánuði síðar, Danmörk og Svíþjóð. Leiktíminn á mótinu var tvisvar sinnum tíu mínútur. 18.000 manns fylgdust með mótinu.
HANDBOLTI Þegar Patrekur Jóhann-
esson setti inn auglýsingu eftir
leikmönnum í hálfkæringi grun-
aði fáa hverju það myndi skila.
Sigfús Sigurðsson svaraði, sagð-
ist vera klár í slaginn og skömmu
síðar var hann kominn til Þýska-
lands og út á völlinn.
Með Sigfús innanborðs hefur
gengi Emsdetten verið með ólík-
indum og sjálfur er Sigfús að spila
vel. Hann er sífellt að bæta sinn
leik, sem og líkamlegt ástand.
„Ég veit nú ekki hvort þetta
gengi er allt mér að þakka. Menn
eru almennt að spila vel. Þetta er
búið að vera ótrúlega gaman fyrir
mig og ég tel mig vera að fá smá
uppreist æru,“ segir Sigfús, sem
var ekkert að spila hér heima áður
en hann fór út. Valsmenn afþökk-
uðu þjónustu hans í vetur.
„Ég ætlaði að klára ferilinn
í vetur með Val á hundrað ára
afmælisárinu. Svo var mér tjáð að
minnar þjónustu væri ekki óskað.
Þeir vildu yngja upp og nota Orra
Frey og Gunnar Harðar. Ég hafði
skilning á því en auðvitað hefði ég
viljað vera með.“
Sigfús er farinn frá því að spila
í nokkrar mínútur í að spila nánast
heila leiki með Emsdetten.
„Það kemur ekkert í staðinn
fyrir reynslu. Leikæfingin og
formið hefur komið smám saman
og ég er farinn að spila mikið. Ég
hef fundið neistann hjá mér eftir
að ég kom út. Eldmóðurinn og bar-
áttuandinn er enn til staðar. Ég nýt
þess að spila. Þetta er ógeðslega
gaman,“ segir Sigfús, sem hefur
verið í miklum vandræðum með
hnéð á sér en segist allur vera að
koma til.
„Það var alltaf verkur í hnénu
síðasta vetur. Pásan í sumar hefur
gert mér gott og það eru engir
verkir lengur. Ég er merkilega
góður í hnénu. Það eina sem hefur
farið illa í mig er langar rútuferð-
ir en þá verð ég stífur í baki og
mjöðmum enda gamall skrokkur.
Ég verð að viðurkenna að hnéð er
að halda betur en ég þorði að vona.
Ég er því afar kátur með þetta allt
saman,“ segir Sigfús, sem hefur
misst um tíu kíló síðan hann fór
út.
Hann mætir sínum gömlu félög-
um í Magdeburg í kvöld og bíður
spenntur.
„Ég þekki enn menn þarna og fór
að sjá leikinn hjá þeim um síðustu
helgi. Hitti þar gamla félaga og
vini sem eru enn að starfa þarna.
Þar voru stuðningsmenn félags-
ins að syngja nafnið mitt og það
var skemmtilegt. Menn eru ekki
búnir að gleyma mér og þetta verð-
ur virkilega skemmtilegur leikur.“
- hbg
Sigfús Sigurðsson sér ekki eftir því að hafa skellt sér til Þýskalands og ákveðið að spila fyrir Patrek:
Þetta er búið að vera ótrúlega gaman
Á FULLRI FERÐ Sigfús er hér við það að
skora fyrir Emsdetten.
HANDBOLTI Þýska félagið Emsdetten
hefur unnið fimm af síðustu sex
leikjum sínum og situr sem stendur
í sjöunda sæti deildarinnar. Aðeins
fimm stig eru þó í toppinn. Liðið
hefur verið á gríðarlegri siglingu
síðan það fékk Sigfús Sigurðsson í
sínar raðir en innkoma hans hafði
augljóslega góð áhrif á liðið.
Í kvöld á Emsdetten síðan stór-
leik er það mætir úrvalsdeildarliði
Magdeburg í sextán liða úrslitum
þýsku bikarkeppninnar.
„Það er mikil stemning fyrir
þessum leik og í fyrsta skipti er
uppselt á völlinn og mikil stemn-
ing í bænum. Húsið tekur um
2.300 manns í sæti og það verður
gaman að leika fyrir fullu húsi en
við erum venjulega með yfir 1.000
manns á vellinum. Þessi leikur
gefur félaginu og leikmönnum liðs-
ins mikið og við erum afar spennt-
ir,“ segir Patrekur við Fréttablaðið
en strákarnir hans ætla að selja sig
dýrt enda hafa þeir allt að vinna en
engu að tapa.
Fúsi hefur hleypt miklu lífi í okkar
lið
Eins og áður segir er liðið á mikilli
siglingu í deildinni og Patrekur er
afar ánægður með liðið. Er þetta
góða gengi allt Sigfúsi að þakka?
„Fúsi hefur haft góð áhrif á liðið.
Ég ætla ekki að gera lítið úr hans
hlut en ég var í miklum vandræð-
um þegar hann kom til okkar. Þá
voru báðir línumennirnir og varn-
armennirnir frá vegna meiðsla.
Hann hefur hleypt lífi í okkur og
við unnum toppliðið í fyrsta leik
hans með okkur. Hann kom ekki í
neitt rosalegu góðu formi en ég hef
notað hann rétt. Hann æfir minna
og kemur sér í spilform í leikjun-
um. Hann hefur hjálpað mér mikið
og það kom mér á óvart hversu
mikið hann hefur getað pínt sig,“
segir Patrekur en Sigfús hefur
sífellt verið að bæta sig.
Kom mér á óvart hversu sterkur
Fúsi er enn í sókninni
„Í fyrsta leiknum bað hann um
pásu eftir þrjár mínútur og átján
sekúndur en núna er hann farinn
að spila um 50 mínútur í hverjum
leik og það bæði í vörn og sókn.
Hann er enn öflugur í sókninni og
það kom mér á óvart. Hann nýtir
færin vel, blokkerar vel og skil-
ar miklu til liðsins. Hann smitar
einnig út frá sér til annarra og
menn bera virðingu fyrir honum
enda átti hann flottan feril í Þýska-
landi,“ segir Patrekur og hlær er
hann rifjar upp aðdraganda þess
þegar Sigfús kom til félagsins.
„Þetta grín sem ég var með á
Facebook hefur reynst mér vel.
Þetta er besta grín sem ég hef
tekið þátt í,“ segir Patrekur og
hlær dátt.
Ánægður með Hreiðar og Fannar
Tveir aðrir Íslendingar eru í her-
búðum liðsins – landsliðsmark-
vörðurinn Hreiðar Levý Guð-
mundsson og Fannar Friðgeirsson,
fyrrverandi leikmaður Vals og
Stjörnunnar.
„Fannar var sterkur í undirbún-
ingnum og lykilmaður hjá mér.
Hann meiddist svo strax í þriðja
leik og var frá í nokkrar vikur.
Hann er að koma til baka. Hefur
verið sterkur í vörninni og er allt-
af að bæta sig í sókninni og verða
meiri stjórnandi. Fyrsta árið er
erfitt hjá öllum. Bæði hjá Fannari
og Magnusi Wislander. Ég er samt
ánægður með hann,“ segir Patr-
ekur og bætir við með Hreiðar að
hann hafi ekki alltaf náð að sýna
sitt besta þar sem hann sé sjaldan
að spila með sömu vörninni.
„Hann hefur átt sína leiki og
síðan dottið niður. Það hefur haft
sín áhrif að ég þarf stöðugt að
breyta vörninni og það er ekki auð-
velt fyrir markverði. Hann hefur
síðan staðið upp þess á milli og skil-
að sínu. Ég er því ánægður með þá
báða í heildina.“
Patrekur ákvað að hella sér út í
þetta ævintýri í eitt ár. Hann fékk
að taka launalaust leyfi í vinnu
sinni heima á Íslandi og framhald-
ið er óákveðið.
„Ég sé alls ekkert eftir því að
hafa tekið slaginn hér úti og prófað
þetta. Ég vissi að þetta væri ekki
öruggasta starf í heimi enda fjúka
þjálfarar grimmt hér í Þýskalandi.
Ég vissi að þetta gæti farið á hvorn
veginn sem var. Það er ekki búið
að taka ákvörðun með framhaldið
og það skýrist ekki fyrr en á næsta
ári,“ segir Patrekur, sem vonast til
þess að blanda sér í toppbaráttuna
eftir áramót þegar fleiri leikmenn
koma úr meiðslum.
henry@frettabladid.is
Besta grín sem ég hef tekið þátt í
Patrekur Jóhannesson stýrir Íslendingaliðinu Emsdetten sem leikur í næstefstu deild í Þýskalandi. Hann
er með þrjá íslenska leikmenn á sínum snærum og frægt er þegar hann fékk Sigfús Sigurðsson til félagsins
eftir að hafa auglýst eftir leikmanni á Facebook. Liðið hefur síðan verið á mikilli siglingu í deildinni.
LÍFLEGUR Patrekur er venjulega mjög
lifandi á hliðarlínunni og tekur virkan
þátt í leiknum.
ÍSLENDINGAR HJÁ EMSDETTEN Patrekur þjálfari er hér með íslensku lærisveinunum sínum hjá Emsdetten, þeim Hreiðari Levý,
Sigfúsi og Fannari.
HANDBOLTI Guðmundur Karlsson
hefur sagt upp störfum sem þjálf-
ari FH í N1-deild kvenna. Guð-
mundur var á sínu fjórða tímabili
með liðið.
FH er í fimmta sæti deildarinn-
ar, sex stigum frá næsta liði fyrir
ofan. Liðið vann síðasta deildar-
leik sinn undir stjórn Guðmundar
gegn Gróttu 24-21.
Um ákvörðunina segir Guð-
mundur meðal annars á heima-
síðu FH: „Þegar lagt var af stað
með að byggja upp kvennalið FH
var það sannur heiður fyrir mig
að koma að því að hjálpa mínu
uppeldisfélagi. Lagt var upp með
metnaðarfulla áætlun sem miðaði
að því að koma liðinu í fremstu
röð á 3-4 árum en það hefur ekki
gengið eftir. Framfarir hafa þó
verið góðar og margir leikmenn
komist í og leikið lykilhlutverk
með yngri landsliðum Íslands.
Einnig lék liðið til úrslita í Bikar-
keppni HSÍ árið 2009 en stóra
skrefið í átt að stöðugleika hefur
ekki verið tekið.
„Fyrir þessu eru margar
ástæður en erfið fjárhagsstaða
hefur að sjálfsögðu gert þetta
allt erfiðara, enda er handknatt-
leiksdeild FH að starfa í erfiðu
umhverfi. Umgjörð og aðbúnað-
ur meistaraflokks kvenna í FH
hefur ekki verið eins og áætlanir
gerðu ráð fyrir og engar auðveld-
ar lausnir í boði. Eftir að hafa
lagt allt mitt af mörkum til verk-
efnisins ákvað ég að stíga til hlið-
ar í þeirri von að hægt verði að
halda uppbyggingunni áfram á
traustum grunni. Áfram FH.“
Tilkynnt verður um eftirmann
Guðmundar á allra næstu dögum.
- egm
Kvennalið FH án þjálfara:
Guðmundur
sagði upp
HÆTTUR Guðmundur Karlsson er hættur
hjá FH. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI KR hefur leikið með
Shell-merkið framan á búningum
sínum til fjölda ára en samstarfi
KR og Skeljungs er lokið.
Knattspyrnudeild KR hefur
samið við Eimskip og verður
merki Eimskipafélagsins því á
KR-búningnum næstu árin. - hbg
Breytingar á KR-búningnum:
Shell spilar ekki
lengur með KR
BREYTING Katrín Ásbjörnsdóttir og Skúli
Jón Friðgeirsson í nýju búningunum.