Fréttablaðið - 17.12.2010, Blaðsíða 66
42 17. desember 2010 FÖSTUDAGUR42
menning@frettabladid.is
Eyjarnar umhverfis Ísland
eru viðfangsefni Lárusar
Karls Ingasonar ljósmynd-
ara í nýútkominni bók hans,
Eyjar.
Lárus Karl hefur gefið út nokkrar
ljósmyndabækur sem tengjast nátt-
úru Íslands á einn eða annan hátt.
Hugmyndin að ljósmyndabók um
eyjar við Ísland er sprottin af sam-
starfi hans við Eimskip.
„Ég hef unnið fyrir Eimskip all-
lengi og sá meðal annars um að
myndskreyta fjögur almanök frá
2003 til 2006 og tók þá loftmyndir
af ýmsum stöðum. Í fyrra var ég
fenginn til að myndskreyta alm-
anakið aftur og þá var ákveðið að
þemað yrði eyjar við Ísland. Eðli
málsins samkvæmt rötuðu ekki
nema tólf myndir í almanakið. Ég
hafði hins vegar tekið myndir af
talsvert fleiri eyjum og fannst synd
að koma þeim ekki að. Ég ákvað því
að bæta úr því og gefa út þessa bók.
Kosturinn við þetta form er líka
sá að maður kemst nær efninu en
í almanaki og getur rýnt meira í
myndirnar.“
Lárus Karl veit ekki til þess að
sambærileg ljósmyndabók um
íslenskar eyjar hafi komið út áður.
Í bókinni eru á þriðja tug mynda
af eyjum umhverfis landið, ásamt
stuttum texta á ensku og íslensku
um viðkomandi stað.
„Eyjarnar eru auðvitað miklu
fleiri, það er til dæmis hægt að
eyða heilli mannsævi í að mynda
eyjarnar á Breiðafirði. Ég ákvað
hins vegar að fara þessa leið og það
gefur auga leið að þá þurfti maður
að velja og hafna.“
Spurður hvort hann eigi sér uppá-
haldseyju þarf Lárus Karl ekki að
hugsa sig lengi um.
„Ég hef ekki komið út í Papey
en það situr mjög sterkt í mér að
hafa flogið yfir hana. Þetta er stað-
ur sem maður man eftir frá því úr
barnaskóla, þarna áttu jú munk-
arnir að hafa numið land. Ég hélt
satt best að segja að þetta væri
bara sker en þetta er nokkuð mikil
eyja.“
Skrúður í mynni Fáskrúðsfjarðar
er honum líka kær.
„Ég hafði reyndar komið út í hana
áður með félaga mínum og fang-
aði þar meðal annars minn fyrsta
lunda og ber því hlýjar taugar til
Skrúðsins.“ bergsteinn@frettabladid.is
Eylönd umhverfis eyland Bækur ★★Stormurinn – reynslusaga ráðherra
Björgvin G. Sigurðsson.
Ef Storm skyldi kalla
Í Þessari snöggsoðnu bók segir
frá atburðum í kringum Hrunið
frá sjónarhóli Björgvins G. Sig-
urðssonar sem þá var viðskipta-
ráðherra.
Fyrir þá sem enn hafa ekki
fengið að vita nóg um niður-
lægingu íslenskrar stjórnsýslu í
aðdraganda hrunsins er Storm-
urinn áhugaverð lesning.
Fróðlegast er að lesa lýsingar
Björgvins á samskiptum sínum
við Ingibjörgu Sólrúnu, Geir
H. Haarde og Davíð Oddsson;
þrenninguna sem var allsráð-
andi í stjórnsýslunni og hélt
spilunum svo þétt að sér að
Björgvin fékk lítið að vita um
stöðu mála í kerfinu sem hann
átti að bera ábyrgð á.
Mestur þungi er í uppgjör-
inu við Ingibjörgu Sólrúnu en
Björgvin lætur samþingmann bera vitni um að í þeim samskiptum hafi
viðskiptaráðherrann orðið saklaust fórnarlamb hroka og mannfyrirlitningar
flokksformannsins. Þessa aðferð notar Björgvin stundum í bókinni til að
koma á framfæri því sem hann vill segja en treystir sér ekki til.
Þar skín það í gegn að höfundurinn ætlar sér áframhaldandi hlutverk í
pólitíkinni. Pólitíkusinn heldur um of aftur af sér í frásögnum og greiningu
á atburðum. Fyrir vikið verður frásögnin oft ágripskennd og flatneskjuleg
og lesandinn skynjar að höfundurinn lætur það bíða betri tíma að segja
söguna alla.
Pétur Gunnarsson
Niðurstaða: Tilþrifalítil bók.
LÁRUS KARL INGASON Hugmyndin að
bókinni á rætur að rekja til almanaka
sem hann myndskreytti fyrir Eimskip.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
PAPEY Uppáhaldseyja
Lárusar Karls.
Gefðu góðar
stundir!
Gjafakort í Salinn er jólagjöfin!
Þú velur sjálf(ur)
upphæðina
á gjafakortinu.
Gjafakortin koma í fallegum
umbúðum og fást í miðasölu
Salarins Hamraborg 6,
s. 5700400.
Opið virka daga
kl. 14–18.
salurinn.is
Opið til
22:00
öll kvöld
TILBOÐSVERÐ
4.450 kr.
*Fyrra verð: 8.990
GILDIR AÐEINS Í DAG
Á meðan birgðir endast
50%
AFSLÁTTUR
Fleygustu orð,
eftirminnilegustu
ummæli, snjöllustu
tilsvör og sögu-
legustu setningar,
sem sagðar hafa
verið á íslensku frá
landnámi til okkar
daga.
„
Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari
leikur ný píanóverk eftir meðlimi í
félagsskapanum S.L.Á.T.U.R. í Nor-
ræna húsinu á laugardag. Tónlist
Sláturmeðlima miðast að útbreiðslu
listrænt ágengrar hugmyndafræði
og nýsköpun í menningu.
Tinna hefur áður unnið með
ýmsum Slátur-meðlimum og flytur
á tónleikunum verk frá 2009 og
2010 sem flest voru gerð í sam-
vinnu við Tinnu. Á tónleikunum
mun meðal annars heyrast nýtt
verk eftir Hallvarð Ásgeirsson,
sem er nýkominn úr tónsmíðanámi
frá New York; Guðmund Stein
Gunnarsson og Jesper Pedersen.
Þá flytur Tinna einnig verk eftir
Þráin Hjálmarsson, Pál Ivan Páls-
son, Inga Garðar Erlendsson, Þor-
kel Atlason, Gunnar Karel Másson
og Áka Ásgeirsson.
Tónleikarnir hefjast klukkan
17 og er almennt miðaverð 1.500
krónur. Tónleikagestir eru beðn-
ir um að koma ekki með farsíma,
boðtæki eða önnur rafeindatæki
sem gætu gefið frá sér útvarps-
bylgjur. Þá er hefð á jólatónleikum
S.L.Á.T.U.R. að klappa ekki, held-
ur blístra lágt eftir flutning hvers
tónverks.
Tinna tekur S.L.Á.T.U.R.
TINNA ÞORSTEINSDÓTTIR Flytur meðal annars verk eftir Hallvarð Ásgeirsson, Guð-
mund Stein Gunnarsson og Jesper Pedersen. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍSLENSK JÓL Á ENSKU Dr. Terry Gunnell flytur erindi í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands á sunnudag um
íslenska jólasiði í aldanna rás, frá heiðnum goðum til hrekkjóttra íslenskra jólasveina. Fyrirlesturinn, sem er á ensku,
hefst klukkan 13. Að honum loknum verða léttar veitingar í boði. Allir velkomnir.