Fréttablaðið - 17.12.2010, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 17.12.2010, Blaðsíða 74
50 17. desember 2010 FÖSTUDAGUR Söngvarinn Jónsi er kominn heim eftir langa tónleika- ferð en hann var að kynna fyrstu sólóplötuna sína, Go. Jónsi og hljómsveit hans spiluðu á 100 tónleikum um heim allan og ljúka frábæru ferðalagi með tónleikum í Laugardalshöllinni 29. desember. Söngvarinn Jón Þór Birgisson, betur þekktur sem Jónsi úr Sigur Rós, er kominn heim eftir langa tónleikaferð en hann var að fylgja eftir sinni fyrstu sólóplötu. Platan ber nafnið Go og kom út í apríl en hún hefur fengið frábæra dóma hjá gagnrýnendum. Í gær var tilkynnt að lag Jónsa, Sticks and Stones, kemur til greina fyrir tilnefningu til Óskarsverðlaunanna en lagið er titillag kvikmyndarinnar How to Train Your Dragon. Japan stendur upp úr „Viðtökurnar voru eiginlega ótrú- lega góðar. Það vissu samt ekki margir af mér til að byrja með, enda er ég í fyrsta skipti að koma fram undir nafninu Jónsi. Það þekkja miklu fleiri Sigur Rós, svo ég þurfti að fara í aðeins fleiri viðtöl og kynna mig,“ segir söngvarinn. Ferðalagið hefur staðið síðan í febrúar en spilað var á 100 tón- leikum í flestum heimsálfum. Jónsi segir að það hafi verið gaman að spila alls staðar, en Japan hafi stað- ið upp úr og uppselt hafi verið á alla tónleikana. „Japanar eru svo kurteisir. Við spiluðum fyrir þá á einhverri hátíð og eftir fyrsta lagið var dauðaþögn. Þeir vissu ekki hvort það ætti að klappa eða ekki, eða hvort það væri yfirhöfuð kurteisi.“ Fann píanóleikarann í karókí Jónsi þurfti að setja saman hljóm- sveit fyrir ferðalagið með stuttum fyrirvara, en hann segir það hafa gengið vonum framar. „Ég vissi af Úlfi Hanssyni bassaleikara og mig langaði að fá hann með mér. Ég fann svo píanóleikarann minn á barnum, en ég gaf mig á tal við hann eftir að við tókum sama lagið í karókí,“ segir Jónsi, en lagið umrædda var Africa með Toto og píanóleikarinn Ólafur Björn Ólafsson. Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommuleikari komu svo inn á síðustu stundu. Kærasti Jónsa, Alex Somers, kemur líka við sögu í hljómsveit- inni en hann hjálpaði til við útsetn- ingu Go og spilaði með bandinu á ferðalaginu. Hvernig er að hafa kærastann stöðugt með þér? „Það er bara frábært, enda gerum við allt saman og erum bestu vinir. Það kemur fyrir að við verðum þreytt- ir hvor á öðrum en það er bara eins og það er.“ Latur að eðlisfari Hljómsveitin lagði af stað í ferða- lagið í febrúar. „Við fengum ekki marga daga til að æfa okkur áður en lagt var af stað. En þeir voru alveg rosalega duglegir, sem var frekar fínt fyrir mig því ég er ótrúlega latur að eðlisfari og nenni sjaldan að æfa mikið,“ segir Jónsi. Ferðalögin tóku oft langan tíma og flakkað var á milli heimsálfa og tímabelta. „Þetta tekur svolítið á. Maður er á endalausum ferðalög- um og getur hvergi skotið rótum. Það eru ákveðin viðbrigði að ferð- ast með ókunnugu fólki í eitt ár, en það voru allir þolinmóðir og við sýndum hver öðrum skilning. En mér finnst rosalega gott að vera kominn heim.“ Sigur Rós í sautján ár Jónsi spilaði síðast hér á landi með Sigur Rós fyrir tveimur árum en 29. desember ætlar hann að ljúka tónleikaferðalaginu með tónleik- um í Laugardalshöllinni. „Ég er orðinn mjög spenntur að spila hér aftur. Það er gaman að koma fram alls staðar, en það er langmesta pressan að spila fyrir framan vini mína og fjölskyldu,“ segir Jónsi, og bætir við að fjölskyldan verði í fremstu röð í Höllinni. „Þau koma og styðja son sinn,“ segir hann og hlær. Jónsi gefur ekki mikið fyrir þá rándýru tónleika sem tónlistar- menn á Íslandi bjóða landanum upp á nú fyrir jólin. „Ég skil ekk- ert í þeim Íslendingum sem kaupa sig inn á þessa jólatónleika þar sem miðinn kostar hátt upp í tíu þúsund krónur. Það á frekar að koma á alvöru tónleika þar sem þú færð miklu meira fyrir pening- inn,“ segir Jónsi og hlær, en hann lofar frábærum tónleikum. Spurður um plön fyrir nýja árið, segir Jónsi að hann ætli að samein- ast strákunum í Sigur Rós en band- ið mun fagna sautján ára afmæli sínu 4. janúar. „Við erum ekki búnir að gera neitt saman í tvö ár, svo við komum alveg ferskir til leiks,“ segir Jónsi, en hann lofar einhverju glænýju frá bandinu. kristjana@frettabladid.is Rosalega gott að vera kominn heim HLAKKAR TIL AÐ SPILA FYRIR ÍSLENDINGA Jónsi lýkur tónleikaferðalagi sínu 29. desember í Laugardalshöllinni, en hann hefur spilað á 100 tónleikum um allan heim. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það vissu samt ekki margir af mér til að byrja með, enda er ég í fyrsta skipti að koma fram undir nafninu Jónsi. Það þekkja miklu fleiri Sigur Rós, svo ég þurfti að fara í aðeins fleiri viðtöl og kynna mig. JÓN ÞÓR BIRGISSON TÓNLISTARMAÐUR Viðburðaríkt ár 100 Jónsi og hljómsveit hans hafa spilað á 100 tónleikum í kjölfar útgáfu breiðskífunnar Go. Tón- leikarnir í Höllinni 29. desember verða númer 101 í röðinni. 300 Yfir 300 þúsund manns hafa séð bandið á tónleikum í hinum ýmsu heimsálfum. 3 Lag Jónsa, Sticks and Stones, er í forvali fyrir Óskarsverðlaunin. Þrír Íslendingar hafa verið tilnefndir til Óskarsverðlauna: Björk Guð- mundsdóttir, Friðrik Þór Friðriks- son og Rúnar Rúnarsson. 20 Hópurinn sem unnið hefur að tónleikum Jónsa um allan heim telur tuttugu manns. Með hópn- um eru jafnan nokkur tonn af sviðsbúnaði. 300 Í kringum 300 þúsund eintök hafa selst af breiðskífunni Go. FRÁBÆR TÓNLEIKASVEIT Jónsi á Coa- chella-hátíðinni fyrr á árinu. NORDICPHOTOS/GETTY ÞORLÁKSMESSUTÓNLEIKAR 2010 Í HÁSKÓLABÍÓIBUBBI MORTHENS UPPSEL T BYLGJAN KYNNIR: ÁRLEGIR ÞORLÁKSMESSUTÓNLEIKAR BUBBA MORTHENS VERÐA Í HÁSKÓLABÍÓI ÞANN 23. DESEMBER OG HEFJAST KL. 22.00. SÉRSTAKUR GESTUR BUBBA ER JÓNAS SIGURÐSSON. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á PRIME.IS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.