Fréttablaðið - 18.12.2010, Blaðsíða 81
LAUGARDAGUR 18. desember 2010 5
NJÓTUM UMHVERFISINS OG STÖNDUM VÖRÐ UM ÞAÐ SAMAN
Hjá Umhverfisstofnun eru laus til umsóknar þrjú störf sem tengjast verndun vatns.
Um er að ræða ný störf hjá stofnun þar sem ríkir faglegur metnaður og þverfaglegt
samstarf er haft að leiðarljósi. Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um störfin.
SÉRFRÆÐINGUR Á DEILD UMHVERFISVERNDAR
Helstu verkefni sérfræðingsins lúta að bættri vernd
vatnsgæða á Ísland, m.a. með samstarfi við sveitarfélög,
atvinnulíf og almenning, undirbúning stöðuskýrslu
um ástand vatna auk vatnastjórnunaráætlana og
aðgerðaáætlana. Sérfræðingurinn undirbýr samninga
um flokkun og skilgreiningu vatna og vatnavistkerfa
við fagstofnanir og eftirfylgni við þá, auk þátttöku í
alþjóðlegu starfi þar að lútandi. Gerð er krafa um meist-
ara próf í náttúruvísindum eða umhverfisfræðum eða
sambærilega menntun. Einnig er gerð krafa um hald-
bæra starfsreynslu og þekkingu eða reynslu af verk efna-
stjórnun og/eða samningagerð. Þekking á umhverfi s-
málum er forsenda ráðningar.
SÉRFRÆÐINGUR Á DEILD UMHVERFISVERNDAR
Helstu verkefni sérfræðingsins lúta að úrvinnslu gagna
um gæði vatnshlota og vatns á Íslandi og álag á vatn.
Sérfræðingurinn vinnur náið með fagstofnunum,
sveitar félögum og atvinnulífi og nýtir niðurstöðurnar
til greininga á ástandi vatna og vatnavistkerfa á Íslandi
og vöktun þeirra, auk þátttöku í alþjóðlegu starfi þar að
lútandi. Gerð er krafa um meistarapróf í náttúru vísind-
um eða umhverfisfræðum eða sambærilega menntun
auk starfsreynslu. Þekking á umhverfismálum er fors-
enda ráðningar. Þekking og reynsla á landfræðilegum
upplýsingakerfum er kostur.
LÖGFRÆÐINGUR Á SVIÐI LAGA OG STJÓRNSÝSLU
Helstu verkefni lögfræðingsins verða undirbúning-
ur reglu gerða um stjórn vatnamála, undirbúningur
samninga, greining á löggjöf Evrópusambandsins á
sviði vatnsverndar og annarrar umhverfisverndar og
almenn lögfræði- og stjórnsýsluverkefni á verksviði
stofnunarinnar. Gert er ráð fyrir að almenn lögfræði- og
stjórnsýsluverkefni verði hlutfallslega umfangsmeiri að
loknum helstu áföngum í innleiðingu vatnatilskipun-
arinnar.
Gerð er krafa um kandídatspróf eða meistarapróf í
lögfræði ásamt þekkingu á stjórnsýslurétti. Þekking á
umhverfi s rétti er kostur.
Næsti yfirmaður lögfræðingsins er Sigrún Ágústsdót-
tir sviðsstjóri, sem veitir nánari upplýsingar um star-
fið ásamt Sigrúnu Valgarðsdóttur starfsmannastjóra í
síma 591 2000.
AUK TILGREINDRA KRAFNA FYRIR STÖRFIN,
VERÐA EFTIRFARANDI KRÖFUR UM ÞEKKINGU,
REYNSLU OG HÆFNI HAFÐAR TIL VIÐMIÐUNAR:
» Skipulagshæfileikar og markviss
vinnubrögð
» Þekking á opinberri stjórnsýslu
» Kunnátta í íslensku og ensku og þekking á
Norðurlandamáli
» Hæfni í framsetningu upplýsinga
á skrifuðu og töluðu máli
» Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum
samskiptum
Æskilegt er að starfsmennirnir
geti hafið störf sem fyrst.
Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur
reynslutími sé sex mánuðir
við ráðningu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
fjármálaráðherra og hlutaðeigandi
stéttarfélaga.
STAÐSETNING STARFANNA GETUR VERIÐ
Á EFTIRFARANDI STÖÐUM
Reykjavík, Hellissandi, Ísafirði, Akureyri, Mývatni,
Egilsstöðum eða Vestmannaeyjum.
Umsóknir skulu sendar til
Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24,
108 Reykjavík eða á netfangið
ust@ust.is eigi síðar en 12. janúar 2011.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfis stofnun
á umhverfisstofnun.is
VATN - VATN - VATN
Næsti yfirmaður sérfræðinganna er Kristján Geirsson deildarstjóri, sem veitir nánari upplýsingar um störfin
ásamt Gunnlaugu Einarsdóttur sviðsstjóra í síma 591 2000.
Vörustjóri á
heildsölumarkaði
Heildsala Vodafone annast reikimál og samningagerð við innlenda og erlenda aðila
og sala á fjarskiptavörum og þjónustu fyrir heildsölumarkað. Um nýtt og spennandi
starf er að ræða.
Hæfniskröfur:
A.m.k. 3ja ára reynsla á fjarskiptamarkaðnum
Reynsla af verkefnastjórnun
Reynsla af tilboðs- og samningagerð
Framúrskarandi þjónustulund
Umsóknarfrestur er til og með 28. desember næstkomandi. Áhugasamir
Arnardóttir deildarstjóri heildsölu unnura@vodafone.is og Sonja M. Scott
starfsmannastjóri, sonjas@vodafone.is
Við bjóðum gott fólk velkomið í skemmtilegan hóp starfsmanna sem setur
viðskiptavininn í fyrsta sæti!
Framkvæmda- og eignasvið.