Fréttablaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 24.12.2010, Blaðsíða 23
 24. desember 2010 FÖSTUDAGUR1 Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Tugþúsundir manna sækja helgihald yfir jólahá- tíðina í kirkjum þjóðkirkjunnar. Helgistundir þjóð- kirkjunnar verða milli sex og sjö hundruð um allt land um jól og áramót. www.kirkjan.is Hanna Rósa Björnsdóttir á afmæli í dag eins og amma hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fæddist korter í jól H anna Rósa Björnsdóttir er sannkallað jóla- barn en hún kom í heiminn 24. desember fyrir níu árum þegar klukkan var fjörutíu og sex mínútur gengin í sex. „Pabbi minn fékk mig í jólagjöf og amma mín í afmælisgjöf,“ segir Hanna Rósa en föðuramma hennar Þórdís Birna Eyjólfs- dóttir á líka afmæli á jólunum. Hanna Rósa átti að koma á Þorláksmesu en lét þá ekkert á sér kræla. Þegar móðir henn- ar, Silja Dögg Sæmundsdóttir, var síðan að kaupa síðustu jólagjöfina í hádeginu á aðfangadag fór allt af stað. Foreldrar hennar eyddu jólunum á Landspítalan- um. „Það var æðislegt og mjög eftir- minnilegt,“ rifjar Silja Dögg upp. Síðan hefur Hanna Rósa haldið upp á fjölskylduafmælið sitt í hádeg- inu á aðfangadag heima hjá ömmu sinni en fyrir skömmu ákváðu for- eldrar hennar hins vegar að halda sams konar veislu heima hjá sér og hafa opið hús á milli klukk- an tólf og tvö. „Það hefur gef- ist vel enda er fólk hvort sem er á þeytingi,“ segir Silja Dögg. Hanna Rósa er ánægð með þetta fyrirkomulag og fær að vonum fullt af pökkum. „Stundum fæ ég tvo og stundum fæ ég einn stóran,“ segir Hanna Rósa og finnst hún alls ekki falla í skuggann af afmæli jesú- barnsins. vera@ frettabladid.is Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is Nánar á vef Perlunnar, perlan.is Nýársfagnaður 1. janúar 2011 Nýju ári fagnað með stórkostlegri veislu með mögnuðum 4 rétta matseðli. Verð frá 6.990 kr. FORRÉTTIR · Heitreykt bleikja · og · Steinseljurótasúpa · AÐALRÉTTIR (veljið einn) · Fiskur dagsins · · Steikt heiðagæsabringa · · Wellington nautalund · · Ofnsteiktur lambahryggur · EFTIRRÉTTUR · Súkkulaði og pistasíu kaka · FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA SKÚBB Meiri Vísir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.