Fréttablaðið - 27.12.2010, Síða 4
4 27. desember 2010 MÁNUDAGUR
GENGIÐ 23.12.2010
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
208,2607
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,84 117,40
179,91 180,79
153,01 153,87
20,53 20,65
19,482 19,596
17,061 17,161
1,4077 1,4159
178,66 179,72
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt. Nánari
upplýsingar á visir.is/dreifing
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt
á Vísi eða fengið sendan daglegan
tölvupóst með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Í fréttaskýringu um drög að frumvarpi
um breytingu á náttúruverndarlögum
síðastliðinn miðvikudag birtust rangar
tölur um flatarmál votlendis sem til
stendur að vernda. Rétt er að vernda
á votlendi yfir 10.000 fermetrum og
vötn yfir 1.000 fermetrum.
LEIÐRÉTTING
FÍLABEINSSTRÖNDIN Nágrannaþjóð-
ir Fílabeinsstrandarinnar hafa
hótað að beita hervaldi gegn rík-
isstjórn Gbagbo, sem heldur enn
fast um stjórnartaumana þrátt
fyrir að hafa tapað í nýafstöðnum
kosningum.
14.000 óbreyttir borgara hafa
flúið frá vesturhluta landsins til
Líberíu af ótta við hugsanlegt
borgarastríð, en flóttamanna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna býst
við allt að 30.000 flóttamönnum
þangað ef átök brjótast út.
Gbagbo hefur krafist þess að
þeir 10.000 friðargæsluliðar sem
í landinu eru hverfi á brott en
Sameinuðu þjóðirnar hafa neitað.
- tg
Fólk óttast borgarastyrjöld:
Flóttamenn
flýja til Líberíu
BEÐIST FYRIR Íbúar Abidjan, stærstu
borgar Fílabeinsstrandarinnar, báðu fyrir
friði á jóladag. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Íslenskur karlmaður
um þrítugt var tekinn með nokkur
þúsund e-töflur í Leifsstöð fyrir
helgi.
Maðurinn var handtekinn við
komu sína frá Kaupmannahöfn
og voru töflurnar í farangri hans.
Hann hefur ekki komið áður við
sögu lögreglunnar, en rannsókn
málsins stendur yfir. Rannsóknin
beinist meðal annars að því hvort
fleiri hafi staðið að innflutn-
ingnum. Maðurinn hefur verið
úrskurðaður í fjögurra vikna
gæsluvarðhald. - þeb
Handtekinn á Keflavíkurvelli:
Með nokkur
þús und e-töflur
SJÁVARÚTVEGUR Fjölmenni var á
bryggjunni í Vestmannaeyjum að
morgni aðfangadags til að taka á
móti Þórunni Sveinsdóttur VE-
401, nýju togskipi útgerðarfélags-
ins Óss ehf., þegar hún sigldi inn
í heimahöfn í fyrsta skipti.
Flugeldum var skotið upp til
að fagna komu skipsins, auk þess
sem þrjú önnur skip útgerðarfé-
lagsins sigldu út á móti Þórunni
og fylgdu henni að bryggju.
Skrokkur skipsins var smíð-
aður í Póllandi en lokafrágangur
fór fram í Danmörku. Vélsmiðjan
Þór lagði svo lokahönd á verkið
með ísetningu vinnslukerfisins
um borð. - bj
Margir tóku á móti nýju skipi:
Skipinu fagnað
með flugeldum
JÓLASKIP Þórunn Sveinsdóttir VE-401
sigldi inn í Vestmannaeyjahöfn að
morgni aðfangadags.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
FÉLAGSMÁL Forsvarsmenn Sól-
heima í Grímsnesi og Sveitarfé-
lagsins Árborgar munu funda um
stöðu Sólheima á morgun. Á fund-
inum mun koma í ljós hvort vilji
er til þess af beggja hálfu að halda
rekstrinum óbreyttum áfram.
„Við munum ræða stöðuna,
fara yfir hvaða ákvarðanir fram-
kvæmdastjórn Sólheima hefur
tekið um hvernig þeir hyggjast
koma þessu máli áfram. Ef þeir
hafa áhuga á að sinna rekstrinum
þarna áfram munum við væntan-
lega hefja samningaviðræður,“
segir Ásta Stefánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sveitarfélagsins
Árborgar.
Óvissa hefur verið um rekstur
Sólheima eftir áramót, þegar
málaefni fatlaðra færast frá ríki
til sveitarfélaga. Fram að þessu
hafa forsvarsmenn Sólheima ekki
viljað að málefni þessarar sjálfs-
eignarstofnunar flytjist frá ríkinu
til sveitarfélagsins.
Ásta segir ekki líklegt að sam-
komulag takist um áframhaldandi
rekstur á fundinum á morgun. Lík-
legra sé að reynt verði að ná bráða-
birgðasamkomulagi fyrir áramót
til að skapa ráðrúm til að leysa
varanlega úr málinu. Hún segir
stjórnendur Árborgar fúsa til að
leysa málin með samningum.
„Ég geng vongóður til þessa
fundar, en svo verðum við bara að
sjá hvernig þetta fer,“ segir Guð-
mundur Ármann Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Sólheima í Gríms-
nesi.
Hann segir að forsvarsmenn
Árborgar hafi sagt opinberlega að
þeir vilji tryggja það sem stjórn-
endur Sólheima líti á sem grund-
vallaratriði. Það sé að tryggja að
íbúar Sólheima fái þá þjónustu
sem þeir eigi rétt á, og að áfram-
haldandi sjálfstæði Sólheima verði
tryggt.
„Við verðum að láta reyna á þetta
fyrst Alþingi brást okkur,“ segir
Guðmundur. Hann segir að leysa
verði úr málinu fyrir áramót, en
eftir fundinn á morgun liggi trú-
lega nokkurn veginn fyrir hvort
einhver lausn sé í sjónmáli.
Í nýlegri yfirlýsingu frá félags-
málaráðherra og Sveitarfélaginu
Árborg segir að íbúum á Sólheim-
um verði tryggð þar áframhald-
andi þjónusta þótt forsvarsmenn
Sólheima dragi sig út úr rekstrin-
um. brjann@frettabladid.is
Sólheimadeilan gæti
fengið farsælan endi
Reynt verður að eyða óvissu um framtíð Sólheima á fundi á morgun. Mögulegt
að deilunni ljúki með bráðabirgðasamkomulagi fyrir áramót. Framkvæmda-
stjóri Sólheima segist ganga vongóður til fundarins með fulltrúum Árborgar.
SÓLHEIMAR Málefni fatlaðra færast frá ríki til sveitarfélaga um áramót. Forsvarsmenn
Sólheima í Grímsnesi hafa verið ósáttir við þau málalok en munu nú ræða við for-
svarsmenn Sveitarfélagsins Árborgar um framhaldið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÁSTA
STEFÁNSDÓTTIR
GUÐMUNDUR
ÁRMANN
PÉTURSSON
Ef þeir hafa áhuga á
að sinna rekstrinum
þarna áfram munum við
væntanlega hefja samninga-
viðræður.
ÁSTA STEFÁNSDÓTTIR
FRAMKVÆMDASTJÓRI
SVEITARFÉLAGSINS ÁRBORGAR
Sömu skattleysismörk
Skattleysismörk verða nánast þau
sömu á næsta ári og því sem er senn
á enda, þrátt fyrir að öll sveitarfélögin
hækki útsvarið. Mörkin eru tæplega
124 þúsund krónur á mánuði.
EFNAHAGSMÁL
Jarðskjálfti við Christchurch
Sterkur jarðskjálfti reið yfir borgina
Christchurch á Nýja-Sjálandi í fyrra-
kvöld. Skjálftinn átti uppruna sinn
aðeins fimm kílómetrum frá borginni.
Enginn slasaðist alvarlega.
NÝJA-SJÁLAND
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
2°
-6°
-4°
-1°
0°
-4°
-4°
21°
2°
13°
-2°
11°
-9°
0°
12°
-2°Á MORGUN
3-8 m/s en
hvassara vestan til.
MIÐVIKUDAGUR
5-10 m/s
um allt land.
5
4
2
3
0
2
-1
3
0
6
-4
7
13
12
10
5
5
4
5
5
8
6
4
1
-2
-3
1 3
-2 -2
-3
-3
KÓLNAR Á NÝ
Í dag léttir til og
lægir á öllu landinu
en þó má búast við
strekkingi og skúr-
um eða slydduélj-
um framan af degi
á Snæfellsnesi og
Vestfjörðum. Það
kólnar hægt og
rólega en þó má
búast við að hitinn
sé ofan frostmarks
S- og SV-til næstu
daga.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
SKÓGRÆKT Nokkuð hefur borið á því
undanfarin ár að fólk hefur tekið
jólatré ófrjálsri hendi í Hnausa-
skógi í Þorskafirði. Umsjónarmenn
Skóga hafa boðið íbúum Reykhóla-
hrepps að koma í Hnausaskóg þegar
þeir vilja og njóta þess sem skógur-
inn hefur að bjóða, til að mynda að
tína ber, sveppi og njóta náttúrunn-
ar, en skógarhögg hefur ekki verið
eitt af þeim atriðum.
„Það er stolið jólatrjám úr skógin-
um á hverju ári. Jafnvel tegundum
sem fólk ætti alls ekki að vera að
taka, eins og rauðgreni, sem hefur
átt undir högg að sækja á svæðinu,“
segir Björg Karlsdóttir, einn af
umsjónarmönnum Skóga á svæðinu.
„Það sér á skóginum, við finnum
sárin á hverju ári. Það er höggvið
ofan af trjánum og þau skilin eftir
topplaus í sumum tilvikum.“
Umsjónarmenn Skóga vilja að
Hnausaskógur sé opinn öllum þeim
sem vilja njóta hans, en skilyrðið
sé að gengið sé um hann af heiðar-
leika og virðingu. „Að stela trjám
er ekki góður boðskapur um jólin,“
segir Björg. - sv
Umsjónarmenn Skóga í Þorskafirði segja nokkuð um að trjám sé stolið:
Finna sárin í skóginum á hverju ári
GRENITRÉN Í SKÓGUM Undanfarin ár
hefur trjám verið stolið úr skóginum.
MYND/ÞÓRARINN ÓLAFSSON