Fréttablaðið - 31.12.2010, Blaðsíða 20
18 31. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Í
sland stendur á tímamótum. Björgunarleið-
angrinum vegna hrunsins er að mestu lokið
og uppbyggingarstarfið tekur nú í vaxandi
mæli við.
Verkefni okkar undanfarin tvö ár hafa
verið risavaxin og kallað á róttækar breyt-
ingar á flestum sviðum samfélagsins. Um
þessi áramót er því hollt að virða fyrir sér
þá heildarmynd sem við blasir í efnahagsmálum þjóð-
arinnar, þann mikla árangur sem náðst hefur og þau
spennandi viðfangsefni sem bíða okkar á nýju ári.
Mikill árangur í efnahagsmálum
Samdrátturinn hefur verið stöðvaður, hagvöxtur er
hafinn, kaupmáttur launa vex og störfum fjölgar á ný.
Verðbólgan hefur ekki verið lægri í sjö ár, stýrivextir
aldrei lægri, gengið styrkist og fjárlagahallinn hefur
minnkað úr rúmum 200 milljörðum í tæpa 40. Skuldir
ríkissjóðs eru lægri en reiknað var með, fullnægjandi
gjaldeyrisforði hefur verið tryggður og skuldatrygg-
ingaálagið er lægra en fyrir hrun.
Vegna þessa góða árangurs getum við nú sótt fram.
Við þurfum að halda áfram með þær umfangsmiklu og
róttæku samfélagsbreytingar sem settar hafa verið á
dagskrá og jafnframt taka veigamiklar ákvarðanir um
stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna.
Sátt um auðlindir
Á næsta ári verður mótuð ný stjórnarskrá á vettvangi
Stjórnlagaþings. Í því ferli verða teknar ákvarðanir
um stórmál sem geta varðað veg þjóðarinnar um
ókomna tíð: Sameign Íslendinga á auðlindum, framtíð
forsetaembættisins, þingræðisins og þjóðkirkjunnar,
aukið vægi þjóðaratkvæðagreiðslna og þá hugmynd
að landið verði eitt kjördæmi. Stjórnlagaþingið þarf
að komast að niðurstöðu um öll þessi mikilvægu mál á
næsta ári.
Við þurfum að leiða til lykta áratuga deilur um
eignarétt og nýtingu á sameiginlegum auðlindum
þjóðar innar, m.a. um fiskveiðistjórnunarkerfið. Auð-
lindir sjávar, orkan í iðrum jarðar og þau verðmæti
sem felast í vatninu verða varin og þannig um nýtingu
þeirra búið að arðurinn renni með sanngjarnari hætti
til þjóðarinnar allrar.
Kraftmikil sókn í atvinnumálum
Við verðum að tryggja frið á vinnumarkaði. Slík
stöðug leikasátt er forsenda aukins hagvaxtar, kaup-
máttar og fjölgunar starfa. Eitt af stóru málunum
á nýju ári verður að marka nýja atvinnustefnu
sem byggir á traustum grunni og varðar veginn til
framtíðar. Þegar hefur verið lagður grunnur að slíkri
vinnu. Þá verður fyrir tilstuðlan ríkisstjórnar innar
á komandi ári ráðist í mjög umfangsmiklar fram-
kvæmdir víða um land og hagfellt efnahagsumhverfi,
lægri vextir og víðtæk skuldaaðlögun lífvænlegra
fyrirtækja gefa fyrirheit um kröftuga viðspyrnu
atvinnulífsins. Nefna má framkvæmdir við Búðarháls-
virkjun, einhverjar umfangsmestu vegaframkvæmdir
Íslandssögunnar, aukin umsvif ferðaþjónustunnar,
m.a. með nýjum framkvæmdasjóði, framkvæmdir við
nýtt fangelsi, tónlistarhús og háskólasjúkrahúsið, upp-
byggingu gagnavera og umfangsmiklar framkvæmdir
við álverin í Straumsvík og á Reyðarfirði. Allir sem
vettlingi geta valdið þurfa að leggja hönd á plóg til
þess að skapa hér störf, ekki síst smærri fyrirtæki og
hinar skapandi greinar sem sífellt öðlast aukið vægi.
Skuldaaðlögun heimila og fyrirtækja
Ljúka þarf skuldaaðlögun heimila og fyrirtækja á
grundvelli þeirra viðamiklu úrræða sem nú hafa verið
innleidd. Hrun krónunnar, hækkun verðlags og hrun
eignaverðs hafa legið sem mara á samfélaginu allt frá
hruni. En nú eru allar forsendur til staðar til að ganga
rösklega til verks og aðlaga skuldabyrðina að þeim
raunveruleika sem við búum við. Fyrir mitt næsta ár
ættu öll fyrirtæki og heimili landsins að hafa fengið
niðurstöðu í sín mál í samvinnu við viðkomandi fjár-
málastofnanir og á þeim grundvelli ættu þau að geta
unnið sig áfram sem virkir þátttakendur í uppbygging-
unni sem fram undan er. Í þeim efnum skiptir miklu
máli að húsnæðisöryggi fólks sé tryggt og aðstæður
hvers og eins séu metnar með sanngjörnum og raun-
sæjum hætti.
Uppstokkun stjórnarráðsins verður fram haldið og
þær fjölmörgu tillögur, sem komið hafa fram verða
innleiddar, ein af annarri: Fækkun ráðuneyta, samein-
ing stofnana, ábyrgari stjórnsýsla, aukið gegnsæi og
bætt vinnubrögð.
Nú um áramótin hefst síðan vonandi nýtt uppbygg-
ingarskeið í þjónustu við fatlað fólk þegar málefni þess
færast frá ríkinu til sveitarfélaga.
Við munum enn fremur stíga frekari skef til að
tryggja grundvöll þeirrar efnahagslegu endurreisnar
sem nú er hafin. Samkomulag um Icesave er vonandi í
augsýn og í kjölfarið getum við stigið markviss skref
til að afnema gjaldeyrishöftin. Á árinu 2011 mun far-
sælu samstarfi okkar við AGS ljúka og Ísland getur á
ný staðið eitt og óstutt í ólgusjó alþjóðlegra efnahags-
mála, reynslunni ríkara og fullt sjálfstrausts í ljósi
árangurs undangenginna ára. Á sama tíma munum
við færast nær niðurstöðu í samningaviðræðum okkar
við ESB sem að mínu mati skiptir gríðarlegu máli
varðandi þá framtíðarsýn og þau lífskjör sem við
Íslendingar kjósum að hafa.
Á árinu 2011 höfum við allar forsendur til að sækja
fram með jákvæðni, kjark og dug að leiðarljósi. Ég
óska Íslendingum öllum gæfu og góðs gengis á kom-
andi ári.
Höfundur er forsætisráðherra og formaður
Samfylkingarinnar.
Nú sækjum við fram!
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
V
ið lok þessa árs má finna sterkt
fyrir þeirri von hjá fólki að næsta
ár geymi betri tíma. Til þess er
ætlast að okkur takist betur en
raunin varð á líðandi ári að leggja
til hliðar óeiningu og sundurlyndi
sem því miður hefur einkennt þjóð-
félagsumræðuna frá hruni. Eigi
von okkar um betri tíð að rætast verða allir að leggj-
ast á eitt.
Ýmis mál voru gerð upp á árinu 2010. Fæst þeirra
geyma góðan vitnisburð fyrir stjórnarflokkana. Það
væri nær að segja að ríkisstjórnin hafi verið í sam-
felldum átökum við þjóðina. Samkomulag við aðila
vinnumarkaðarins rann út í sandinn, næstum hver
einasti kjósandi í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-
samningana hafnaði niðurstöðu ríkisstjórnarinnar
og fjárlög byggðust á enn frekari álögum á heimili
og fyrirtæki og niðurskurði sem ekkert samráð hafði
verið haft um. Getuleysi stjórnvalda við að taka á
skuldavanda heimilanna skapaði ósætti í samfélaginu
og margt fleira má tína til af þessum toga.
Dapurleg mistök
Gott samstarf náðist á milli stjórnmálaflokka á
Alþingi um viðbrögð við rannsóknarskýrslu Alþingis.
Vonandi leiðir það samstarf til bættra vinnubragða
á þingi og í stjórnsýslunni. En dapurleg voru mistök
meirihluta Alþingis sem ákvað að kalla saman lands-
dóm til að rétta yfir fyrrverandi forsætisráðherra og
draga þar með stjórnmálin inn í réttarsal. Þau mála-
lok voru Alþingi til minnkunar og skömm að atkvæða-
greiðslu sumra þingmanna þar sem höggi var komið á
pólitíska andstæðinga en eigin flokksmönnum hlíft.
Þörf á styrkri stjórn
Þrátt fyrir að liðið ár geymi fjölmörg dæmi um mis-
tök, rangar áherslur og sundurlyndi er eina leiðin
fram á við að láta ekki deigan síga. Við erfiðar
aðstæður er sem aldrei fyrr þörf á sáttavilja, skýrri
framtíðarsýn og bjartsýni um að hægt sé að sigrast á
erfiðleikunum.
Staðreyndin er að við höfum öll færi á að skapa hér
bjartari framtíð. Það er því full ástæða til bjartsýni
ef rétt er á málum haldið. Sundurlyndi á stjórnar-
heimilinu og ágreiningur um grundvallarmál, þar
sem engin málamiðlun er í augsýn, eykur hins vegar
á vandann einmitt þegar þörf var á styrkri stjórn
og skýrri stefnu. Það er táknrænt fyrir það, hvernig
ástandið er orðið, að helsta fréttaefni síðustu daga
ársins er af átökum innan stjórnarliðsins og augljóst
að líf ríkisstjórnarinnar hangir á bláþræði.
Endurreisn á traustum grunni
Næstu mánuðir verða afdrifaríkir um það, hvernig til
tekst næstu árin við að bæta lífskjörin. Afar mikil-
vægt er að ná ábyrgum kjarasamningum sem stuðla
að endurreisn á traustum grunni. Eins er það grund-
vallaratriði að fjárfesting í atvinnulífinu hefjist, því
með henni fylgir brýn atvinnu- og verðmætasköpun.
Í efnahagsmálum leggjum við sjálfstæðismenn
áherslu á að hlífa fólki og fyrirtækjum við frekari
álögum, örva hagvöxt og styðja þá sem vilja láta til
sín taka. Við trúum því að leiðin til þess að vinna
bug á efnahagsvandanum sé að virkja alla til þátt-
töku. Leið ríkisstjórnarinnar hefur á hinn bóginn því
miður orðið til þess að auka byrðar þeirra sem hafa
það erfitt fyrir og gera þeim erfiðara fyrir sem vilja
reyna að spreyta sig og finna kröftum sínum viðnám.
Þannig dýpkar efnahagslægðin og dregst á langinn.
Það er því óhjákvæmilegt að breyta um stefnu við
stjórn landsins.
Nýtum tækifærin
Við búum í fámennu landi með tiltölulega einfalda
atvinnuvegi. Lýðræðishefð er rík á Íslandi og okkur
hefur tekist, þrátt fyrir ágreining um stefnu og
áherslur, að tryggja miklar framfarir í þjóðlífinu. Sá
árangur og reynsla getur reynst okkur mikilvægt
veganesti ef við berum gæfu til að leysa úr læðingi
það afl sem býr í fólkinu. Nú berast jákvæð tíðindi af
ástandi fiskistofnanna í kringum landið, við eigum
dýrmætar orkuauðlindir og þjóðin er vel menntuð.
Það er því engum vafa undirorpið að allt það sem
þarf til að binda skjótt enda á efnahagsþrengingarn-
ar er til staðar. Nú þarf einungis að bretta upp ermar,
ganga hreint til verks og nýta tækifærin.
Fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins óska ég lands-
mönnum öllum hamingju og velfarnaðar á komandi
ári.
Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Stöndum saman – nýtum tækifærin
BJARNI BENEDIKTSSON