Sameiningin - 01.04.1941, Side 3
Mánaðarrit til stuðnings kirkju og kristindómi íslendinga
gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. % Vestrheimi
Ritstjórar:
Séra Kristinn K. Olafson, 3047 W. 72 St., Seattle, Wash., U.S.A.
Séra Guttormur Guttormsson, Minneota, Minn., U.S.A.
Séra Rúnólfur Marteinsson, 493 Lipton St., Winnipeg.
Féhirðir: Mrs. B. S. Benson, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
56. ÁRG. WINNIPEG, APRÍL, 1941 Nr. 4
Liljan bjarta
Eftir séra Sigurð ólafsson.
“Planta á leiðið lilju bjarta,
lífsins mark á dauðans ból.
Gegnum myrkrið grafar svarta
glóa blómin hýr mót sól.
Hvert eitt blað, á gröf er grær,
Guðs er engils vængur skær.
Dauðaklukkur dimt ei hringja,
dýrðarljóð Guðs englar syngja.”
Páskarnir, ásamt hinum bjarta og sigri hrósandi boð-
skap er þeir færa, munu sjaldan á öldum fyr, kærkomnari
verið hafa miljónum manna, en einmitt nú, að þessu sinni,
er flestar þjóðir í mannheimi horfa með ugg og ótta, mót
hverjum degi, er fram hjá fer, og alt mannlegt líf er á
hverfanda hveli, og ógurlegustu óvissu háð. Þá er það æðsta
gleði jarðnesks vegfaranda að mega hugleiða boðskapinn
um hinn upprisna Jesúm og eilíft líf. Fallvelta alls þess,
sem jarðneskt er, ætti að gera hjörtu vor sérstaklega mót-
tækileg fyrir Ijoðskap páskanna. — Þegar að vonahallir
manna hrynja til grunna, þá er það Ijós Guðs og kraftur,
sem einn er þess megnugur, að byggja upp á ný, og láta
aftur birta til. Og einmitt þetta birtist í líoðskap þeim,
sem hugur vor, að þessu sinni, dvelur við.