Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1941, Síða 7

Sameiningin - 01.04.1941, Síða 7
53 Jónanna Halldórsson Prestsskap í Nýja íslandi hót' eg í ársbyrjun 1901, í upp- hafi 20. aldarinnar. Prestakallið var víðlent, ferðalögin mikil og akvegirnir á sumrin herfiiegir. Prestakallið náði frá Merkjalæk við Winnipeg Beach, eins og staðir nú eru nefndir, norður á bygðarenda í Mikley, að undanteknum Bræðrasöfnuði við fslendingafljót, sem séra Oddur Gíslason þá þjónaði, þó að eg þjónaði einnig þeim söfnuði síðar. Eg þurfti því oft að vera að heiman. Kom það sér vei að hafa hentuga gististaði. Húsakynnin voru þá ófullltomin, all- víða; en í heild má segja það, að fólkið vildi gjöra sitt ítrasta til að láta prestinum líða vel. önnur hjálp, sem eg þurfti mikils með var uppfræðsla barna og ungmenna. Að vísu kannast eg ekki við að hafa legið á liði mínu, hvað undirbúning fyrir fermingu snerti, en það sem eg af ítrasta megni leitaðist við að framkvæma í því efni var ekki full- nægjandi, og þurfti því hjálp góðra manua. Eitt af þessum heimilum nefndist Geysir. Ef einhver ókunnugur skyldi lesa þetta, vil eg fræða hann á því, að Ný-fslendingar halda enn þeim fagra, íslenzka sið að gefa sveitar-heimilum sínum nöfn. Þau eru flest falleg og siðurinn eftirbreytnisverður. En þetta nafn, Geysir, var eins og fyrirliði með föruneyti. Bújörðin hét Geysir, og svo var Geysis pósthús og Geysis skólahús. Bygðin iill var nefnd Geysis-bygð, og söfnuðurinn Geysis-söfnuður. Eg hafði ofurlitla kynningu af Geysi-jörðinni, áður en eg varð prestur í Nýja íslandi. Mörgum árum áður hafði eg hýrst þar nokkra mánuði, i kofa með moLdarþaki þegar eg var fyrsti alþýðuskólakennari í þessari bygð. Þegar eg kom þar til að þjóna, var komið á bújörðina Geysi, fólk, sem eg ekki þekti áður, hjónin Páll og Jónanna Halldórsson, ásamt börnum þeirra og öldruðum föður hennar. Þetta varð eitt höfuðbólið mitt í sambandi við líf og starf mitt í Nýja íslandi. Meðal annars stuðlaði að því það, að skólahúsið, þar sem allar guðsþjónustur voru þá haldnar, var skamt frá heimilinu. Þegar eg kom þangað, sem prestur, var þar búið í sæmilegu bjálkahúsi. Síðar var reist ágætt hús. Timburhús hefði það verið kallað á íslandi. Nú eru bæði þessi hjón komin á eilífðarheimilið. Páll dó 1938. Um hann skrifaði J. Magnús Bjarnason ágæta

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.