Sameiningin - 01.04.1941, Page 9
55
kunni heilar sögur bwði í bundnu og óbundnu máli. Hún
var mjög gefin fyrir skáldskap, var sjálf hagmælt þó litið
bæri á. íslenzku lílöðin las hún ineð athygli og fylgdist
með því sem var að gjörast í heiminum.
“Eg set hér vísu er eg fann, skrifaða af henni sjálfri, i
litlu kveri, ‘Kristur og mennirnir,’ eftir séra Friðrik Hall-
grímsson, sem hún las í daglega. Um höfund veit eg ekki,
en mér finst þetta lilla stef varpa nokkru ljósi á hugsanir
hennar.
‘Ein er drotning allra rósa,
engin jurt á dýrra skart.
Henni næst er liljan Ijósa,
ljúf og hrein með hörund hjart.
Þó á æðri ilm og ljóma
öllu skrauti jarðar-ranns
hreinni fegurð, hærri blóma,
hjartarósin kærleikans.’ ”
Eg sagði áður að heimilið þeirra, Geysir, hefði verið
eitt af höfuðhólum prestskapar míns í Nýja íslandi. Þá
kemur öllum í hug gestrisni. Hennar naut eg þar í ríkum
mæli. “Stundið gestrisni,” segir Páll postuli. Því boði var
þar fylgt. Heimilið veitti mér af glöðu geði alt sem ferða-
manni er þörf á.
Hún átti ekki minstan þáttinn í því að gjöra mér jiað
heimili kærkomið. Alúðin í móttökunum var hæði látlaus
og' einlæg; viðræðan skýr og skemtileg. Hugsun Jónönnu
var bæði ljós og víðsýn, framsetning máls ákveðin og rétt.
Hún hafði fróðleiksþorsta íslendinga í ríkulegum mæli og
áhuga fyrir velferðarmálum mannfélagsins.
Þegar kristindóminum er veitt viðtaka af hug og hjarta,
fegrar hann og mótar alt líf manna alveg eins og sólin lýsir
lög og láð, l'öjll og 'dali, býli og búsmala. Hún færir jörð-
unni líf og ljós og ummyndar alt með dýrð sinni og dá-
semd. Þannig ummyndar kristindómurinn líf manna þegar
þeir levfa honum að lifa. Þetta er lýsing á Jónönnu. Allir
hæfileikar hennar, skynsemi, tilfinningar, viljakraftur, kom
alt til greina í sambandi við kristindóm hennar, lcomst all
undir áhrif áristindómsins hjá henni. Bjarmi hans var
yfir því öllu. Ivristindómurinn var henni ekki aðeins erfða-
l'é heldur sannfæring, sem aldrei bifaðist, og hann lýsti
henni leið í öllum athöfnum og á öllum sviðum lífsins.