Sameiningin - 01.04.1941, Page 10
56
Einn ávöxtur af þessu óðali andans var gæði hennar við
hina ungu. Guð gaf henni sem vöggugjöf löngun til þess
að leiðbeina og kenna. Hún var athvarf mörgum unglingum
i bygðinni. Sumt af þeim var lengri eða skemmri tíma á
heimili hennar og naut hennar góðu og miklu áhrifa. Eitt
allra bezta verkið sem hún vann var að búa unglinga undir
fermingú. Hvert árið eftir annað kom hópur þeirra heim
til hennar og hún leiðbeindi þeim frábærlega vel. Það var
unun að taka við þeim unglingum og' leiðbeina j)einr að
fermingarjátningunni. Þau kunnu svo vel það sem þau
áttu að læra: biblíusögur, kver og sálma, og skildu að jrví
skapi. Yfir höfuð var það reynsla mín að börnin. sem
kunnu bezt skildu líka bezt. Karlmaður í Geysi-bygðinni,
Sigurður heitinn Friðfinnsson, vann í öðrum hluta hennar
samskonar verk og' Jónanna. Þau eiga bæði skilið ódauð-
legt þakklæti fyrir þá dásamlegu hjálp sem þau veittu mér
við fermingarundirbúninginn.
Fátt hefir veitt mér meiri unað á lífsleiðinni en trygð
nokkurra vina. Trygð sumra þeirra hefir verið bæði ó-
skiljanleg og óverðskulduð. í þeini hópi var Jónanna meðal
þeirra allra fremstu. Guði sé lof fyrir hennar óslitnu trygð.
í upphafi þessa máls nefndi eg tvent, sem mér kom
sérstaklega vel meðan eg var prestur í Nýja fslandi: gest-
risni og hjálp við barnauppfræðslu. Hvorttveggja naut eg
á Geysisheimilinu.
“Hafðu þökk fyrir alt og alt.”
R. M.
Pálmasunnudagur
“Mig vantar vegleg klæði,
á veg að breiða þinn;
þvi vil cg kærleikskvæði
þér kvaka, Jesii minn.
Eg hefi ei, herra, pálma,
en heiður vil þér tjá,
því syng eg mina sálma;
ó, son Guðs, heyrðu þá.”
Nafnið pálmasunnudagur hefir vakið unaðsóma um
gjörvalla kristnina á öllum öldum. En hvað skapar unaðs-
óma? Má vera, að orðið sé svo hljómfagurt, eða að það