Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1941, Side 11

Sameiningin - 01.04.1941, Side 11
57 veki yndislegar endurminningar, eða þá að orðið snerti strengi ímyndunaraflsins og fegurðartilfinningarinnar. Eitt- hvað af þessu þrennu finst mér, að muni gefa orði eða orða- tiltæki unaðsóma. Má vera, ennfremur, að fleira komi til greina, sem orsök unaðsóma í orði. í þessu tilfelli er eitt- hvað unaðslegt við hljóminn sjálfan: Orðið plámasunnu- dagur lætur vel í eyra. Þar að auk er eitthvað í því sem örfar ímyndunaraflið. Hugurinn berst suður til landa. Hér í norðurbygðum spretta ekki pálmar nema í sérstaklega varðveittum blómahúsum í lystigörðum. Það má sjá þá í dýrð sinni í aðal-Iystigarði Winnipeig-borgar, “City Park.” Þar má sjá þá, ásamt fleiri suðrænum jurtum, vel hirta og í heilbrigðu ástandi. Pálmablöð eru ennfremur ofl notuð hér um slóðir til fegurðarauka á ýmsum samkomum. Margir lesendur Sameiningarinnar hafa séð pálma spretta á stræt- um og í görðum í Suður-Californía. Ungir pálmar sérstak- lega eru dásamlega fagrir. í þriðja lagi er sagan í guð- spjöllunum um atburðinn, sem skeði þennan dag', jafnvel ])ótt vér skiljum þá sögu ekki að fullu, tilkomumikil, eftir- tektaverð og viðkvæm. Fögnuður fólksins bergmálar í sál- um vorum. Jesús sjálfur er svo aðlaðandi í sinni skraut- Iausu tign. “Ó, kom í hátign, herra minn! Af hæðum fórnargjörning þinn með undrun skoðar englaher; sjá augun himnesk fylgja þér.” Það snertir einnig viðkvæmustu strengi sálar vorrar, að þegar Jesús kom svo nærri borginni Jerúsalem, að hann sá hana, grét hann yfir henni, ekki yfir sjálfum sér, ekki yfir hinum skelfilega krossdauða, sem beið hans þar innan fárra daga, heldur yfir borginni sem ekki þekti sinn vitjunartíma. Það er því óneitanlega margt við pálmasunnudaginn, sem er bæði angurblítt og unaðslegt. En hvað virðist yður um söguna sjálfa, atburð pálma- sunnudagsins? Hvernig á að skilja þá frásögn? Mér hefir fundist erfiðara að fá réttan skilning á henni en á mörgu öðru í guðspjöllunum. Hver var tilgangur Jesú með inn- reiðinni? Þar hlýtur að vera mergurinn málsins. Rétt svar upp á það er réttur skilningur á atburðinum. í auð- mýkt og lotning viljum vér athuga söguna og þráum leið- sögn Heilags Anda til þess að leiða oss í allan sannleika.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.