Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1941, Page 16

Sameiningin - 01.04.1941, Page 16
62 láta líf sitt til lausnargjalds fyrir marga. Hann hefir sann- að það, að Guð er góður. Guð er algæzkan eilífa. Guð og gæzkan geta aldrei verið aðskilin. Sá straumur getur aldrei gjört samning við hið illa. Ef hann gjörði það hætli hann að vera góður. Sá straumur sýnist oft mæta hinum skelfi- legustu hindrunum, en hann verður ])ó aldrei sigraður, því “Frá eilífð til eilífðar ert þú Guð.” Þetta getum vér athugað í sambandi við tíf og sögu mannkvnsins. Tímabilið um síðustu aMamót, nokkur ár fyrir og el'tir þau, getum vér nefnt pálmasunnudag. Pálmar menningar, hugvits og framfara Ijómuðu þá í þeirri mestu dýrð, sem heimurinn hafði nokkurntíma séð. Menn fögn- uðu yfir þeim dýrðarskrúða sem mannkynið hafði þá færst i. Menn sungu framförunum, með hvellum rómi, lofsöngva. En “ó, hve getur undra skjótt vfir skygt hin dimma nótt.” Nú erum vér komnir yfir á föstudaginn langa. Straumur algæzkunnar eilífu mætir nú þeim hindrunum, sem enginn hefði getað ímyndað sér fyrir nokkrum árum. Þar eru björg gnæfandi ranglætis og fjöll algjörs guðleysis. Hver fær nú rönd við reist spyrja margir í vonarleyfð. Skvldi straumur guðdómlegra gæða verða algjörlega stíflaður í lífi mannkynsins á jörðunni? Minnist þá allir þess, að eftir föstudaginn Ianga komu páskar. Minnist þess ennfremur hve dimt var í sálum lærisveinanna frá föstudegi til páskamorguns. Vér skulum rólegir bíða mannkyns páskanna. R. M. Dr. Ohl (Framh.) Á sviði kirkjusöngs voru framkvæmdir hans bæði mikl- ar og góðar. Hann hafði þar bæði mikla hæfileika og víð- tæka þekkingu. Sem ungur námsmaður var hann ágætur organleikari. Á fyrstu prestsskaparárum sínum stjórnaði hann hornleikaraflokki. Ekki verður því mótmælt að guðsþjónustan sé einn mik- ilvægasti þátturinn í boðun kristindómsins. Að auka tign, fegurð og guðdómleg áhrif guðsþjónustunnar var einn mikil- vægasti þátturinn í starfslífi Dr. Ohls. Sumt af því sem hann lagði til þess skal nefnt. Árið 1892 gaf hann út bók

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.