Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1941, Blaðsíða 18

Sameiningin - 01.04.1941, Blaðsíða 18
64 neska Jíl'sins, en verkin hans lifa. Þeirra nýtur lúterska kirkjan i Vesturheimi. Eg vildi, að Vestur-íslenzk kirkja ætti einhvern Dr. Oh! til þess að lcenna okkur þá almennu, kristilegu þátttölvii í guðsþjónustunni, sem gjörði hana að guðlegum líí'skrafti. R. M. Trúboðsfréttir Styrjöldin, sem nú stendur yfir hefir orsakað stórkost- legt umrót á sviði erlends trúboðs. Mörg Norðurálfu-löndin geta nú eklci sent trúl)oðssvæðum sínum neinn styrk. Þrent getur þar komið til greina: aðrir hópar fólks taki að sér að styrlvja þessar stöðvar eða þær verði sjálfstæðar og sjái sínum hag borgið, eða þær falli um koll. Hið fyrsta hefir verið reynt. Bæði lúterskir menn og aðrir hafa lagt fram i'é til að styrkja lútersku trúboðsstöðvarnar, sem áður voru undir umsjá þýzkra, danskra eða fleiri félaga í Norðurálf- unni. Um hin atriðin er mér elvlci kunnugt. Ástandið í Japan er að því leyti sérstalvt, að stjórnin þar hefir nú sett sig á móti öllum útlendum áhrifum. Hún amast eldvi beint við hinurn kristnu trúarbrögðum en heimt- ar, að alt lcirkjustarf þar sé undir innlendri nmsjá. Frá stjórninni þar er runnin sú alda að sameina allar deildir Mótmælenda í eitt ldrkjufélag sem sé algjörlega stjórnað af Japansmönnum. Talað er um það samt, að hver flokkur megi, ef til vill, að einhverju leyti halda siðvenjuin sínum. Út af þessu eru trúboðar að hverfa burt frá Japan. Sumir þeirra fara til Indlands, en flestir til heimalands síns. Flestar konur trúboðanna, ásamt börnum þeirra, eru nú farnar heimleiðis. Karlmennirnir allmargir eru þar eftir enn, þó það sé aðeins stundar ráðstöfun. Það mun vera ætlun trúboðsnefndar Sameinuðu kirkjunnar lútersku í Ameríku, að skilja aðeins eftir fáa trúboða í höfuðborginni, Tokyo, til þess að vera tengiliður milli kirkjunnar hér og kristniboðsins þar. Trúboði vor, séra S. O. Thorlaksson, er enn í Japan, en kona hans og þau börn þeirra, sem þar voru, komu tii San Francisco 15. marz síðastliðinn. R. M.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.