Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1931, Page 7

Sameiningin - 01.06.1931, Page 7
þessi nýji vegur myndi ná áÖur margar aldir liÖu út til gjörvalls mannkynsins og andi Krists og lífsreglur hans sigra heiminn. En þá kom það óhapp fyrir, að ofvöxtur hljóp í greinir trésins. Skyndilega var hin einfalda og heilaga kristna trú færÖ i fjötra stórkostlegra félagsbanda, við það óhappa-atvik, að kristindómur- inn var gerður að lögskipuðum trúarbrögðum í heiðnu mannfél- agi, í byrjun fjórðu aldar. Síðan hefir hið göfuga tré, kristin kirkja, veriÖ oftast ofhlaðið þungum greinum veraldlegra efna, stundum minna, stundum meira. Sérhver siðbót hefir fengist við það eitt að sníða af hinu helga tré kristindómsins greinar veraldlegs umstangs og mannlegra viðbóta. Mest var sú siðbót, er til margra þjóða náði á 16. öld. Voru þá fjölmargar óþarfar og illar greinar sniðnar af trénu, og var þess full þörf, svo herfilega sem þær höfðu skemt tréð, og svo þungar reynst, að tréð svignaði undir þeim. En enginn má ætla, að það fullnægi að afkvista tré í eitt skifti fyrir öll. Helzt þarf að afkvista á hverju ári. Eins þarf kirkjan sífelt á nýrri siðbót að halda, enda hefir mörg siðbótin gerst síðan siðbótin mikla á 16. öld gekk um garð. Og nú i dag er það Ijóst hverjum sjáandi manni, að ný og róttæk sið- bót er að ríða í hlaðið. Þeir ógnar viðburðir hafa gerst á síðustu missirum, sem orðið hafa til þess, að opinbera heiminum, hve tré hinna kaþólsku kirkna, bæði hinnar grísku og hinnar rómversku, hafa á sumum stöðum ekki einungis svignað heldur og brotnaö undir þunga veraldlegs umstangs og veraldlegs valds. Öllum er eitthvað kunnugt um það, hvernig komið er fyrir kirkjunni i Rússlandi. Hún er feld til jarðar og liggur þar sem brotið trá. Oss furðar sú grimd, sem kirkjan hefir beitt verið í Rússlandi síðan stjórnarbyltingin varð. En oss þarf það raunar ekki að furöa. Eg man ekki til að hafa neitt hryllilegra lesið en lýsingu, sem eg tel sanna, á kirkjunni i Rússlandi á dögum Zaranna. tlún var ekki einungis þý einvaldsins, heldur og sem hægri hönd kúgunarvaldsins. Hún var samfléttuð ógeðslegasta athæfi stjórnarinnar. Hún var höfð til glæpsamlegra athafna, og voru sumar þær athafnir, sem kirkjan var látin framkvæma, eða embættismenn hennar, fyrir rikisins hönd, svo svívirðilegar að þær verða ekki nefndar upphátt. Svo voru greinar kirkjunnar samfléttaðar greinum hins siðspilta ríkisvalds, að hún hlaut að falla og brotna með því. Var þá og við því að húast, að sá trylti lýður, sem völdin tók eftir stjórnarbyltinguna, snérist með heipt gegn trú og kristindómi. En þó kirkjan í Rússlandi liggi nú flöt sem tré, er brotnað hefir í fellibyl fast niður við rót, þá mun rótin halda lifi og upp af rótinni vaxa ný og betri kirkja. En þetta er

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.