Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1931, Síða 11

Sameiningin - 01.06.1931, Síða 11
i6g um kirkjuflokkum. Seinast er eg vissi voru fengnir tíu menn af tólf í nefndina, þjóðkunnir ágætismenn. Á nefndin að rann- saka máliÖ frá rótum, bæði heima fyrir og erlendis. í haust gerir nefndin ráð fyrir að halda á stað til Austurlanda. Er talið víst, að starf nefndarinnar verði til þess að margur kvistur verði sniðin af þessari grein hins góða trés. Þess var áður getiS, að kirkja vor hin lúterska hefði vaxið öllum kirkjum meir hér í Ameríku árið sem leið. Er það oss að sjálfsögðu mikið gleðiefni. En óvitrir værum vér og fáfróðir ef vér mikluðumst af því. Þó svona vel vildi nú til þetta ár, þá er þess að minnast, að árin næstu á undan var viðkoman ekki jafn-glæsileg. Og eigi tjáir heldur annað en að horfast í augu við þann raunveruleika, að flestum kirkjum fremur er lúterska kirkjan margklofin og sundurleit. Eðlileg skifting er og hefir ávalt verið innan lútersku kirkjunnar af þjóðernislegum orsökum. Er við það ekkert að athuga. Reynslan kennir, að við kirkjuleg störf og Guðsdýrkun njóti menn sín bezt i samfélagi við þá, sem manni eru tengdir blóðböndum og sameiginlegri hugsjóna arfleifð. En hér er fleiru til aö dreifa og miður sæmilegu. Samskonar viðsjár eru með mörgum lútersku krkjufélögunum sjálfum, eins og stórdeildunum, nema fremur sé. Félagslega samkepnin er oft harðvítug og ávalt kostnaðarsöm. Við, sem heima eigum í Winnipeg, höfum á síðastl. vetri haft fyrir augum einhvern hinn ömurlegasta harmsleik, sem hugs- ast getur á kirkjulegu leiksviði. Lúterskir Þjóðverja.r eru þar í borginni í fjórum kirkjulegum hervirkjum, en öll virkin eru útibú frá stóru lútersku kirkjufélögunum í Bandaríkjunum. Þessi fjögur lútersku kirkjufélög keppa og berjast urn Þjóðverjana i Winnipeg, sem ekki eru þó nema tiltölulega fáir. Ófriður braust út í haust við það, að óeining varð þar í einum söfnuði og prestur fór með lítin hóp manna með sér burt úr söfnuðinum. Áður en málið var rannsakað til hlítar af kirkjufélagi því, sem hlut átti að máli, tekur annað lúterskt kirkjufélag þessa frávillinga í faðm sinn, stofnar handa þeim nýjan söfnuð og með tilstyrk sunnan úr Bandaríkjum kaupir smásöfnuði þessum kirkju á næsta strætis- horni við enn aðra lúterska kirkju. Lýst þeirri kirkju ekki á ]>enna nýja keppinaut og skorar á kirkjufélag sitt að mótmæla þessu tiltæki hins kirkjufélagsins. Voru nú þrjú kirkjufélög kom- in á orustuvöllinn. Kirkjuhöfðingjar sunnan frá aðalbólum stór- félaganna koniu norður og rnikið gekk á. En svo fór, að til ])ess, að missa ekki af þessum nýja smáhóp, lagði stórfélagið í Banda- ríkjunum til mörg þúsund dollara fyrir þak yfir höfuð honum, enda þótt smákirkjan hin, á næstu gatnamótum, hefði líka á

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.