Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1931, Síða 12

Sameiningin - 01.06.1931, Síða 12
sínum tíma fengiÖ marga tugi þúsunda a8 sunnan sér til lífs- viSurværis og lifi á árlegum styrk. Væri þetta eins dæmi, sem gerst hefir i Winnipeg, hefði ekki átt viS að nefna þa8. En því miÖur hafa svipaðar sögur gerst bæði oft og víða. Kirkjuflokkar og kirkjufélög keppa um mannaforráð. Jafnvel í litlum sveitaþorpum má oft finna tvær, þrjár eða fjórar smákirkjur sömu trúar, allar fjárhagslega á heljar þröm, og öll með lífsmarki einungis fyrir meðlag úr trúboðssjóðum stærri kirkjufélaganna, sem telja sér þessa mann- hópa, hvert um sig, og mega ekki af sínum hópi sjá til hinna. En í trúboðssjóði þessu til styrktar leggur fólk í góðri trú og Guði til dýrðar. Nokkur rök þykist eg nú hafa fært fyrir því, að félagslegur ofvöxtur þover-organizationj sé orðinn að þyngri greinum á trénu, en það fái risið undir. Undir þessum óþarfa þunga svignar kirkjan. En sem betur fer, hafa augu margra opnast og siðbót vonar maður, fremur en bylting, að sé fyrir dyrum. Að þessu leyti að rninsta kosti verður í nálægri tíð hið góða, ódauðlega kirkjutré afkvistað'■—óþörfu greinarnar verða sniðnar af. Er ræðir um ofvöxt í greinum trésins, verður ekki gengið framhjá stofnunum og fyrirtækjum kirkjunnar. Inn í kirkju- málið enska hefir nýlega komist orðið Institutionalism. Undir þá grein kemur sú nútíðarstefna kirkjunnar, að taka að sér margs- konar fyrirtæki, er miða að skemtunum, íþróttum og almennri fræðslu. 1 öllum borgum og víða um sveitir eru reistar kirkjur með nýtízku tækjum: söngsal, sundpolli, knattborði, íþróttavelli, eld- húsi, danssal, o. fl. Mest er um þessi tæki og fyrirtæki í hinum voldugu musterum, sem auðmenn landsins halda uppi. En srnærri kirkjur og fátækari sækja í sama horf eftir þvi, sem ástæður leyfa. Augnamiðið er að hæna sem flesta að kirkjunni og halda mönnum frá óhollum áhrifum annarsstaðar. Engum vafa er það undirorpið, að sitt hvað hefir þetta fyrirkomulag til síns ágætis og ef hófsamlega er haldið á mælir margt með því. Eigi að síður dylst það ekki, að kirkjan dansar þar á hálum ís og á það á hættu að tapa andlegu verðmæti sínu. Það hefir aldrei orðið kirkjunni til annars en tjóns, að víkja frá sínu eina ætlun- arverki og fara að fjasast í veraldlegum sýslum. Fyrst og fremst fær hún ekki kept við veraldarlegar stofnanir í veraldlegum efn- um og missir fljótt tiltrú á þeim svæðum. Og í öðru lagi glatar hún lotningu almennings, óðar en hún hættir að vera helgidómur

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.