Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1931, Side 18

Sameiningin - 01.06.1931, Side 18
i;6 vaninn á það, aÖ vera upp á aðra kominn og una því vel, en ekkert getur frernur en það, alið upp í manni andlegan roluskap. Þenna hugsunarhátt, þetta inferiority complex, er kemur til kirkjustofnana, kirkjulegra embættismanna og allra kirkjulegra fyrirækja, þarf áreiÖanlega aÖ afkvista. Kirkjan þarf í öllum greinum að bera meiri virðingu fyrir sjálfri sér. Svo að eins fær hún notið virðingar almennings, að hún sé sjálfstæð og höfð- ingleg á þeim sviðum, sem henni tilheyra, en til þess verður hún þá líka að halda sig á þeim sviðum einum, en vei'a ekki á vappi út á þeim sviðum, sem henni eru óviðkomandi og þar sem hún aldrei getur verið annað en hálf-drættingur. Er um ræðir afkvistun trésins góða, er nefnum vér kirkju, verður ekki hjá ]>vi komist að drepa á þá tilhneigingu manna, að nota kirkjulegan félagsskap og vald kirkjunnar við löggjöf og lög- gæzlu og til áhrifa á mannfélagsmál, eins og þau horfa við i það og það skiftið, eða til þess að fá sinu framgengt með tilstyrk borgaralegra laga. Kristindómsins aðal-ætlunarverk er að vera heilagt súrdeig í mannfélaginu og veita heilögum anda inn i hugsunarhátt manna. Auðnist kirkjunni að koma anda Krists inn í hugsunar- og vilja-líf almennings, þá er öllu óhætt með skipulag mannfélagsins. En fari kirkjan að vera eins og hver annar stjórnmálaflokkur, er berst fyrir einni eður annari stefnu i mannfélagsmálum, missir hún bæði vald á sjálfri sér og vald það, sem hún hefir á andlegum sviðum. Það er stundum ætlast til þess, að kirkjan sé einskonar allsherjar siðagætir, og vill þá hver og einn að hún gæti þeirra siða, er hann telur rétta. En til þess hefir kirkjan aldrei verið kjörin, að vera “pólití,” heldur sam- vizka mannfélagsins. Nokkur dærni um ofvöxt þessara greina má nefna: Hér í landi hafa surnir flokkar kirkjunnar gengið æði langt í því að leitast við að skipa fyrir um það með lögum, hvernig borg- arar þjóðfélagsins mættu haga sér á kirkjulegum. helgidögum, svo sem hvort þeir mættu aka á sporvögnum um borgina á sunnudegi, fara á eimlest til sumaíbústaða sinna á hvíldardegi, eður hafa urn hönd leiki og íþróttir á messudögum. Og ávalt hafa kirkjuflokkar þessir orðið undir í því umstangi. Ber margt til þess. Fyrst og fremst telst nú ekki nema helmingur landfólksins til kirkjunnar, og sæmir ekki kirkjufólki, enda þótt það væri sjálft sammála, að segja hinum helmingnum fyrir um helgihaíd. Svo eru margar miljónir Gyðinga og annara, sem aðra helgidaga hafa en kristnir menn. Ættu ])eir þá eins að hafa tilkall til lagaskipana eftir

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.