Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1931, Qupperneq 19

Sameiningin - 01.06.1931, Qupperneq 19
i/7 þeirra venjum. Hitt er annaÖ mál, aÖ kirkjan hafi það vald yfir samvizkum sinna manna, aÖ þeir af sjálfshvötum haldi hvíldar- daginn heilagan, og það í anda og sannleika, en ekki eins og Farísear forðum. Hvar sem kristin kirkja lætur lúÖur sinn hljóma í anda Jesú Krists, falla múrar spillingarinnar eins og í Jeríkó. Engin siðspilling er annað eins undirdjúp mannlegra meina og sorga eins og áfengisspillingin. Gegn henni verður kirkjan að hrópa í heil- ögum anda bæði ár og síð, unz samvizka allra lýða vaknar. En sjálfs sín rödd1 getur kirkjan veikt, og hefir veikt, með því að láta hafa sig til þess að flétta lim sitt saman við pólitízk félög og fara í pólitízkan leiÖangur í samoki við herskáa forystumenn einn- ar löggjafar eður annarar. Svo raunalega hafa sumar hinna pólitísku bindindishreyfinga reynst, að kirkjan hefir alt annað en grætt á samneyti við þær. En sé kirkjan sjálfri sér og Guði trú, getur hún—og hún ein—skapað þá réttlætis-tilfinnningu i brjóst- urn manna, að þeir, fyltir anda Drottins, reki frá sér og sinni þjóð Satan víndrykkjunnar. En hún vinnur það ekki með valdi, heldur með anda sínum. Það var ekki fyrir pólitízk áhrif, heldur fyrir réttlætis-andanum, sem i honum bjó, að djöflarnir hrukku undan Kristi. Þegar kristnir menn tileinka sér þann anda rétt- lætisins, sem var í Jesú Kristi, og ganga fram í þeirn anda, þá hrökkva djöflar ofdrykkjunnar og annarar spillingar burt úr landinu. Með einkennilegustu fyrirbærum má vist telja þann ofvöxt, sem á allra síðustu tíð hefir hlaupið í lim kirkjunnar þar sem um er að ræða afskifti hennar af fjölgun mannkynsins. Á biskupa- stefnunni miklu í Kambeth i vetur var eitt af “brennandi spurs- málum” fundarins það, hvort leyfilegt væri, og þá á hvern hátt það skyldi gert, að stemma stigu fyrir tilkomu fósturs í móður- lífi Úbirth controlj. Biskuparnir voru flestir á því, að það rnætti láta sig gera á skikkanlegan hátt. Fór sá boðskapur þeirra um allan heim. Þá stóð upp heilagur Píus páfi í Róm suður og út- varpaði því orði unr veröld alla, að það væri syndsamlegt, að taka frarn fyrir hendurnar á náttúrunni í þessu efni. Svo var rnálið borið upp í lögréttu Kirkna-sambandsins hér í Ameríku, þar sem ekki eru borin upp nerna stærstu og sameiginlegustu velferðarmál kirknanna. Eögréttan var miklu fremur á máli biskupanna, en páfans. Margar samþyktir á þingum hafa gerðar verið síðan og margur kirkjuhöfðinginn hefir látið til sín taka um þetta mál. Það fer varla hjá því, að siðarmeir verður brosað að öllum þessum hákirkjulegu yfirlýsingum unr Irarnaeignir. En það er verulegt áhyggjuefni, að svo er komið, að kirkjan fer að gefa sig

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.