Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1931, Qupperneq 20

Sameiningin - 01.06.1931, Qupperneq 20
i78 við svona málum, sem er tii litils annars en að kitia forvitnina. Miklu fremur heyrir alt þetta undir álit og leðbeiningar lækna og þeirra, sem heilbrigðismál mannfélagsins hafa til meðferðar. Það má fullyrða, að alment verður ekkert tillit tekið til álits og úr- skurða kirkjufundanna í þessu efni. Og einmitt það er hið mikla tjón, sem kirkjan vinnur sjálfri sér, að með þvi að vafsast i þeim málum, sem henni koma ekkert við og hún heldur ræður ekki neitt við, þá missir hún álit sitt og vald einnig í þem efnum, sem henni er trúað fyrir og heyra undir hennar dóm. Þessi og þvílík afskifti kirkjunnar af einkamálum manna og af félagslífi þeirra alment, bendir á ástand ekk ósvipað sumu því, sem tiðkaðist í kirkjunni á undan siðbótinni á 16. öld og hratt henni af stað. Það bendir þá og til þess, að ný siðbót gangi nú í garð og að hinn alvaldi herra kirkjunnar sé nú þegar farinn að brýna sniðilinn til þess að afkvista tréð. Erindi þetta hljóðar um það eitt, sem dregur vöxt úr kirkj- unni og þarf þvi að afkvista. Annað mál og ekki minna er það, hvernig nú verði hlúð svo að trénu, að það fái vaxið sem bezt og borið sem bezta ávexti. Hér verður ekki annað gert, en að drepa á megin-atriði þess máls. Kirkjan, afsniðin öllum auka-greinum og afkvistuð hinu þunga limi sinna veraldlegu sýslanna, á að verða, eins og hún í upphafi var, andlegt ríki; ættjörð eilífðar-hugsjóna þeirra, er Jesús Kristur færði heiminum; bústaður trúaðrar tilbeiðslu þeirra manna, sem hafa i sér anda Drottins Jesú; samvinnufélag þeirra bræðra, sem hvern annan styðja til þess að breyta í verulegum skilningi eftir siðareglum Jesú. Slík stofnun er i sjálfu eðli sínu dulræn og því fráskilin veraldlegum önnum. En fyrir helg- unar-áhrif þau, er hún hefir á þá menn, sem andlega nærast við hennar móðurbrjóst, verður hún sterkasta aflið—einasta aflið— mannkyninu til hjálpræðis. Út um alla veröld og hér í heimahögum eru menn að leita að andlcgu musteri, þar sem þeir geti gengið inn og hvilt sig af þrautum lífsins og áhyggjum, sem nú gerast óbærilegar um heim allan, og þar sem þeir geti fengið að dreyma sæluríka drauma um betra lif í eilífðinni. Margur þreyttur vegfarandi nemur staðar við dyr kirkjunnar, hlustar og gægist inn. En hann sannfærist um, af því sem hann heyrir og sér, að ekki sé þar heldur að finna það musteri friðarins, sem hjarta hans þráir. Þar er sama ókyrðin eins og úti, sama stappið og stritið, sama veröldin og sú veröld, sem hann er að

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.