Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1931, Síða 22

Sameiningin - 01.06.1931, Síða 22
i8o En von bráðar hurfu þessir aðkomumenn, góðir og miklir menn á sinni tíð, og þegar lærisveinarnir þrir opnuðu augu sín, sáu þeir engan hjá sér nema Jesú einan, segir sagan. Eg veit ekki hvað hverfa þarf frá okkur, ég veit ekki hvað þarf að afkvista, en svona vil ég að sagan okkar endi, endi þegar svo er komið, að við sjáum ekkert nema Jesú. Kæru tilheyrendur! Eg þykist vita, aS allir séu mér ekki samdóma um sumt af því, sem ég hefi sagt i þessu erindi. Eg bið einungis um sömu viðurkenningu fyrir skoðanir mínar eins og ég er fús að sýna skoðunum annara. Eg hefi enga heimild til þess, að telja skoðanir rnínar óskeikular. Má vera að ég misskilji margt. En ég verð að fara eftir því einu, sem mér fyrir Guði og samvizku minni skilst vera satt og rétt. Eg kannast fúslega við það, að skoðanir rnínar hafa með þroska og aldri breyzt á ýmsar lundir. Eg get ímyndað mér að þær breytist enn að einhverju leyti, ef Guð gefur mér líf og óbrjálað vit enn um hríð. Eg veit, að það eitt stendur, sem styðst við sannleikann, hvað sem skoðunum mínum eða annara líður. Við bróðurlegar umræður skýrist sannleikurinn. O'g þakklátur vil ég vera öllum þeim, sem vilja mér leiðbeina í bróðurlegum anda. Fúslega vii ég breyta skoðunum mínum við það, sem mér virðast gild rök og góð. Eg hefi reynt það á lífsleið minni, að fátt veitir manni fullkomnari gleði en það, að láta sannfærast af röksemdum ann- ars, og það eins fyrir því, þó maður verði að láta af skoðun sjálfs sín. Við hleypidómalausa athugun eina fær maðurinn þroskast á vegum sannleikans. Og fyrir því vil ég njóta góðrar leiðbeiningar bræðra minna, að Mig langar, að sá enga lýgi þar finni, sem lokar að síðustu bókinni minni. Texti: "Og hann mun dæma meðal margra lýða og skera úr mál- um voldugra þjóða langt í burtu. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annari þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.”—Míka, IV, 3-4.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.