Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1931, Side 23

Sameiningin - 01.06.1931, Side 23
Fyrir þúsundum ára dirföist spámaðurinn Mika aÖ mæla þessi máttugu orð. Efiaust hafa ýmsir þeirra, sem heyrðu þau, talið þau draumóra eina. Það er meir að segja rétt líklegt, að sumir hafi talið spámanninn flón, ef eigi kallað hann vitstola. Hugsjónamennirnir, þeir er dreymt hafa stærstu draumana og feg- urstu, hafa ósjaldan verið sæmdir flónsheitinu. Mönnum gleymist svo oft, að framfarir mannkynsins eiga rót sína að rekja til draum- landa þess. Þær eru árangurinn af draumum og fórnfúsu starfi langsýnna spekinga. Slíkir menn ruddu oss braut “til áfangans þar sem vér stöndum.” Vér byggjum i landnámi þeirra. Ber- um það í minni áður en vér köllum hina stórfeldu framtiðar sýn Míka spámannsins—mannkynið sameinað í friði ocj bræðralagi,— draumóra eina eða heimsku. Og Míka spámaöur er fjarri því að vera einn um þessa trú sína. Þessi dýrðlega von um varanlegan frið á jörðu hefir verið hjartfólgnasti draumur ýmsra af mannanna beztu og göfug- ustu sonum. Á öllum öldum hafa uppi verið menn, sem verð- skulda tignarheitið: friðarlietjur, því að "friður á jörðu” var æðsta hugsjón þeirra. Menn, sem svo hafa verið skapi farnir, hafa verið prýði hinna ýmsu stétta, lærðra og leikra. En það hafa eigi sízt verið skáldin, sem langsýnastir hafa verið í friðarmálum. Tökum tvö dæmi. ítalska stórskáldið Dante, sem uppi var á 14. öld, ritar í einni af bókurn sínum, af all miklum eldmóði, um al- heims friðarríki, allsherjar friðarbandalag. Tennyson sá í spá- dómlegri sýn þann dag rísa af djúpi thnans er hertrumburnar voru þagnaðar og gunnfánarnir saman vafðir, á allsherjar þingi manna, í bandalagi allra þjóða. Var von þessara manna falsvon ein? Var hugssjón þeirra heimska tóm? reykur og rugl? draumórar einir? Hafa kenningar þeirra og starf engan árangur borið? Sárt væri að verða að játa, að svo sé. Það væri sama og að viðurkenna, að vér værum engu nær, að ráða fram úr einu allra stærsta vandamáli heimsins: út- rýming styrjakla og hverskonar vígaferla. Bn flestir munu á eitt sáttir um það, að stærsta og þýðingarmesta viðfangsefni vorrar aldar eru friðarmálin, að eilífðarmálunum einum undanskilduin. O'g þrátt fyrir hrakspár efasemdarmanna og háværð léttúðugra háðfugla, þá segi eg af dýpstu sannfæringu: IJf, starf og kenn- ingar Míka spámanns og annara friðarvina hafa ekki verið til einskis. Ekki svo að sklja, að hugsjónin dásamlega um allsherjar- bræðralag sé orðin að virkileika: því fer fjarri, en þó hefir nokk- uð miðað í áttina. Tvent tel ég merkast og áhrifaríkast í friðarmálum á síðast- liðnum tíu árum: Þjóðbandlaagið og Parísar- eða Kellogg-friðar

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.