Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.06.1931, Qupperneq 26

Sameiningin - 01.06.1931, Qupperneq 26
frá því aÖ vera lítils virði, að Þjóðbandalagið hefir kent mönn- unurn, að hugsa og tala um niðurlagning vopna meir en áður geröist. Þá er hin víðtæka líknarstarfsemi Bandalagsins, ekki sízt i þarfir stríðsfanga og flóttamanna. Hundruð þúsundum manna, sjúkum og illa á sig komnum á j'msan hátt, hefir verið komið til heimila sinna. Flóttamönnum hefir verið líknað og þeim fengin atvinna eða hjálpað til að setjast að i löndum, þar sem landrými var nóg. Dr. Fridtjof Nansen, norðurfarinn alkunni og hinn mikli mannúðarpostuli, er lézt í fyrra, haföi, fyrir hönd Banda- lagsins, aðalumsjón með heimflutningi stríðsfanga og flótta- manna. Stendur öll Norðurálfa, já, allur hinn mentaði heimur, í þakkarskuld við hann fyrir hans óeigingjarna og ómetanlega starf. Eg heyrði Dr. Nansen eitt sinn flytja fyrirlestur um áður- nefnda starfsemi hans; lýsti hann þar svo kröftuglega eymd þeirri og böli því öllu, sem eru fylgifiskar styrjalda, að mér mun aldrei úr minni líða. En ég fæ aðeins stiklað á stærstu steinunum í starfssögu Þjóbbandalagsins. Hcilbrigffismátin eru mikill þáttur í starfi þess. Það hefir, með ráðstöfunum sínum, stöðvað útbreiðslu næmra sótta land úr landi; en sóttgerlar f bakteríurj spyrja ekki um landamæri eða þjóðerni. 1 þessu sambandi má einnig minna á, að Bandalagið hefir gert mikið til þess að takmarka sölu ópíums og annara nautna lyfja, sem eru átumein margs þjóðfélags. Þjóðbandalagið lætur einnig mentamálin til sín taka. Það vinnur að því að sameina fræðimenn allra þjóða i allsherjar- bræðralag. Það starfar og að auknum skilningi milli þjóðanna með því að hvetja hinar ýmsu landsstjórnir á að kenna tungu- mál og auka fræðslu um þjóðir þær, sem nú eru uppi. Er þaö næsta nauðsvnlegt og sannarlega spor í friðaráttina. Hleypidóm- ar, sem bygðir eru á vanþekkingu einni saman, blinda oss of rnjög sýn, ekki sízt í alþjóðamálum. En aukin kynni leiða löngum til skilnings og samúðar bæði meðal einstaklinga og þjóða. Banda- lagið gengst einnig fyrir kennara og nemendaskiftum milli háskóla víðsvegar. Er auösætt að hið margþætta mentamálastarf Banda- lagsins stefnir alt að einu marki: að færa þjóðirnar nær hver annari. Þá hafa hér talin verið aðeins hin helztu störf Þjóðbanda- lagsins. Eg hef til dæmis ekki nefnt hið víðtæka starf þess að fjármálum ýmsra landa, einkanlega Austurríkis, en fjárhagsleg viðreisn þess lands er eitt af mestu nytsemdarverkum Bandalags- ins. Enn má nefna tvent, og langt i frá hið ómerkasta, sem stendur

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.