Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.06.1931, Page 28

Sameiningin - 01.06.1931, Page 28
staklings. Ekki ]?að eitt, að hver og einn sé andvígur styrjöldum sem lausn á deilumálum þjóðanna; heldur fremur hitt, að hver karl og kona, sem komin eru til vits og ára, gerist formælandi friðar og friðsamlegra úrlausna deilumála mannkynsins. Fyrst verða menn að festa í hug sér þann mikla sannleika, að Guð gerði af einu blóði allar þjóðir jarðar. Það er vart of mikið að ætlast til, að kristið fólk, og sæmilega skynsamt, liti með sanngirni á áhugamál annara þjóða eigi síður en sinnar eigin. Menn verða að temja sér, að meta mennina sem menn, sem dætur og sonu hins sama föður, ekki fyrst og fremst sem Englendinga, Ameríkumenn, Kínverja eða íslendinga. í öðru lagi, verður niönnum að lærast, að fagna yfir kost- um og hæfileikum annara þjóða, rétt eins og menn gleðjast yfir mikilleik vina sinna. Að meta ágæti annara þjóða rýrir ekki ættjarðarást vora; þaö gerir hið gagnstæða; það göfgar hana. Hroki, hvort sem er hjá einstaklingum eða þjóðum, er viðbjóðs- legur: sæmir hvorki mentuðum manni né mentaþjóð. Það er lítill þroskavottur, að geta ekki unnað þjóð sinni einlæglega, en jafnframt látið aðrar þjóöir njóta sannmælis. Þá er hið þriðja, sem menn verða að temja sér eigi friðar- hyggjan að útrýma hernaðarhyggjunni, og það er örðugast að læra. En það er þetta: að meta velferð mannkynsins í heild sinni meira en rétt þjóðar sinnar. Eg trúi því sem sé, að rétt eins og einstaklingurinn lifir fyrir fjölskylduna, fjölskyldan fyrir sveit- ina eða borgina, sveitin eða borgin fyrir þjóðfélagið, þannig eigi þjóð hver að lifa fyrir mannkynið. Eg fæ ekki séð, að nein þjótS hafi innt af hendi hlutverk sitt nema að hún hafi lagt sinn fulla skerf til velferðar og menningarmála mannkynsins. Og engum ættu friðarmálin að vera hjartfólgnari en oss, sem kristnir heitum. Vér teljum oss fylgjendur hans, sem kallaður var, og það með réttu, friðarhöfðinginn. Vér segjum að lögmál kærleikans sé æðsta lögmál lífsins; en samt halda kristnar þjóðir áfram að vígbúast af kappi. Kristnir menn fá ei þjónað Kristi, friðarhöfðingjanum, og Þór, herguðinum, samtímis. 'VVellington hershöfðingi hafði rétt að mæla, er hann sagði: “Styrjaldir eru ekki samræmanlegar við kenningar Krists.” Samkvæmt trúar- játning vorri, ættu friðarmálin að standa nær oss kristnum mönn- um en nokkrum öðrum. Hinum mikla skörungi meðal kirkju- höfðingja, Nathan Söderblom, erkibiskupi í Uppsölum, fórust svo orð nýlega, að það væri kristileg skylda að trúa á hugsjón þá, sem Þjóðbandalagið byggir starf sitt á. Hann sagði ennfremur: “Skelfileiki styrjalda og kenningar frelsara vors um kærleika og bræðralag, sem andstæðar eru þjóðarhroka og hatri, ætti að vera

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.