Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1931, Side 29

Sameiningin - 01.06.1931, Side 29
187 kent i kverinu og öörum kenslubókum, í skólurn og frá prédikunar- stól, betur og öflugar en kirkjan hefir nokkru sinni gert hingað til.” Vissulega er það í fullu samræmi við anda Krists og kenn- ingar hans, að trúa á alsherjar bræðralags-hugsjónina og stuðla að framgangi hennar. Eflaust verða efasemdarmennirnir til að segja oss, að vér séunr að færast i fang það, sem ómögulegt sé að framkvæma. Lát- um þá eigi telja oss hughvarf. Menn eru ávalt að afreka hið ómögulega. Hversu margir efuðu ekki, að flogið yrði austur yfir Atlanzhaf áður en Lindbergh sýndi það í verki. Sannleik- urinn er sá, að öll mestu velferðarmál mannkynsins verði fvrst til á heiðhimni hugsjónanna. Hvar er sú framkvæmd, sem nokkurs er verð, sem eigi var fyrst draumur einn ? Hver einasta af hinum dýrðlegustu dómkirkjum heimsins var fyrst til i huga byggingar- meistarans. Llræðumst því eigi stóra drauma. Þeir fæða af sér fyr eða síðar stórverk mannkynsins. Fvlgjum spámanninum i spor; störfum að framkvæmd hugsjónar hans, hugsjónarinnar miklu, þeirrar, að sverðunum verði breytt í plógjárn. Um eitt norska merkisskáldið gengur sú sögn, að hann hafi jafnan borið í vösum sinum fjölda frælcorna, er hann svo dreifði þar sem leið hans lá. Plöntum sæði friðarins hvar sem leið vor liggur, í hvers- dagslífi voru, þjóðlífi og afskiftum vorum af alþjóðamálum. Þá erum vér sporgöngumenn og samherjar Míka spámanns og annara friðarvina. Þá erum vér sannir þegnar konungs kærleikans og sannleikans, sjálfs Krists, friðarhöfðingjans mikla. Eg lýk máli minu nreð þessum fögru og kröftugu oröum Guðmundar skálds Guðmundssonar: “Friðarins Guð, ’in hæsta hugsjón mín, höndunum lyfti ég í bæn til þín! Kraftarins faðir, kraftaverkið gjörðu Gefðu mér dýrðar þinnar sólarsýn. Sigrandi mætti gæddu ljóðin mín,— sendu mér kraft að syngja friö á jörðu.” Dýrð vorsins Eftir séra Sig. Ólafson 104. Sálm. Það er undra fagur vorblær yfir orðum sálms þessa. Hér er talað máli fegurðar, sem að allir skilja. Kærkomiö er vorið öllum þeim, er norðlægar stöðvar byggja. Aldrei fagna íslands börn

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.