Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1931, Side 33

Sameiningin - 01.06.1931, Side 33
I<31 þurfa aö sjá af honum, talaði hann við mig um dagbókina, og lagði niður fvrir mér hvernig við skyldum hafa það. Hann ætlar að halda dagbók og ég á að halda aðra. Hann sagði að það mvndi verða honum að liði, eins og þegar viö vorum að tala saman í rökkrinu—frá því fyrsta, sem eg man eftir mér, hefir það verið vani okkar, að sumrinu, að læðast undir stóra peru- tréð í garðinum, en á veturnar héldum við til í króknum við gluggan í timbur herberginu í prentsmiðju fööur okkar. Þar eru stórir strangar af prentpappír. Þar eru miklir stablar af gömlum bókum. Við fengum okkur þar sæti. Það getur verið, að ég geri Freddi eitthvert gagn með því að halda dagbók, en fyrir sjálfa mig held ég það hafi ekki mikla þýðingu. Hann hafði ráð á öllum hugsunum, og þannig verður það. Eg sakna að geta ekki heyrt eða séð Fred. Nú hefi eg ekkert nerna leiðinlegan, óskrifaðan pappir, og engar hugsanir! Þess utan er eg í svo miklu annríki. Eg er elst af börnunum, sem eru heima, og móðir okkar er ekki heilsusterk. Eg þarf iðulega að hjálpa föður okkar við að setja stílinn, eða lesa fyrir hann þegar hann er að setja. Eg verð samt að gera eins og FriSrik hefir beðið mig. Það væri gaman af að vita hvernig dagbókin hans verður. En hvar á eg nú að byrja? Hvernig er farið að halda bækur vfir viðburði? Tvær bækur Biblíunnar eru nefndar “Viðburða- bækur” á latinu ýKronikubækurý. Fyrsta bókin í Biblíunni byrjar á Adam. Eg veit það, því ég las það einu sinni fyrir föður minn þegar hann var að setja stýlinn. Friðrik getur ómögulega ætlast til þess, að ég haldi viðburðabók alla leið frá Adam. Mér er það ómögulegt, því ég get ekki munað það, sem ég las um það. Eg held ég verði að byrja á þeim elsta, sem ég þekki, því hann er lengst aftur í tímanum og þess vegna næstur Adam. Eg held ég verði annars að byrja á henni ömmu okkar. Hún er ættuð frá Schönberg. Hún er fjarska gömul—meir en sextíu ára. Hún gengur samt þráðbein. Augun hennar eru svo dökk og smjúgandi. Hún sýnist næstum yngri en dóttir hennar, móðir okkar elskulega, sem er iðulega niðurdregin af áhyggjum og heilsuleysi. Afi okkar var kominn af aðalsætt, og er ættaður frá Bæheimi; þannig erum við komin af aðalsætt. Þó tilheyrir faðir okkar borgara stéttinni. Mér og Friðrik þykir gaman af að skoða innsiglið hans afa okkar, Von Schönberg, og taka eftir því hvernig því er skift. Það er gaman að hlusta á sögurnar af hinum aðal- bornu forfeðrum okkar. Þeir voru riddarar, greifar og kross- göngumenn frá fornri tíð.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.