Sameiningin - 01.06.1931, Qupperneq 34
192
MóÖir okkar segir okkur reyndar, að alt þess háttar sé léleg
virÖing, og aÖ prentsmiðja fööur okkar sé tákn nteiri virÖingar,
en hermerki á vopni eÖa verju. En ég veit þaÖ, að ömmu finst
það vera mikil niðurlæging fyrir Schönbergs ættina, að hafa
tengst manni af borgara stétt.
FriÖrik er á sama máli og rnóðir okkar og finnur til með
henni. Hann segir aÖ í raun og veru sé miklu göfugri kross-
ganga háð með dökka prentstílnum hans föður okkar, heldur en sú,
sem afi okkar tók þátt í, með vopnum sínum. En hernaðar að-
ferðin var svo falleg til forna, með gunnfánum og gangprúðum
hestum, sem léku af fjöri og kappi. Eg get ekki gert að því;
mér finst það hefði hlotið að vera skemtilegra að sitja viö ein-
hvern gluggan í einhverjum fornfrægum kastala, eins og til dæmis
í Wartburg kasta-lanum, sem stendur fyrir ofan bæinn; gaman
hefði verið að veifa hendinni til Friðriks, um leið og hann þaut
framhjá í skygndum herklæðum niður hæðina á rammefldum
striös fáki—miklu skemtilegra en að klifrast upp háan hlaða af
gömlum bókum, gráum af ryki, inni i timbur herberginu, og sjá
Friðrik á ferðinni niður strætið, meÖ töskuna í hendinni fekki
of fulla) og fátæklega klæddan. Jæja, hvað um það. Það
hefði orðið erfitt að sjá af Friðrik, hvað sem öðru leið. Sjálfur
hefði Friðrik ekki verið neitt göfugri en hann er, þótt hann hefði
verið riddari og aðalsmaður. En mér dylst ekki að menn bera
viröingu fyrir gyltu snúrunum og nafnbótunum, hvað sem annars
móðir mín og Friðrik segja um þetta. Eg vildi óska að dagbókin
mín væri í sliku bandi, svo að fólk, sem ekki gæti lesið hana.
dáðist að bandinu ; að gullspöngunum og kjölnum, settum dýrum
steinum. Þetta hefði þó ef til vill ekki mikla þýðing fyrir þá,
sem gætu lesið í bókinni. Eg vet fyrir víst, að engin hinna gömlu
riddara og krossferðamanna og greifa, sem amma er að segja
okkur af, voru tígulegri en Friðrik. Hann hefir ekki blá augu
eins og ég. Hann hefir dökk augu og tindrandi. Mín augu eru
bara þjóðversk og tilheyra Cotta ættinni. Augun mín eru góð
til að sjá til að sauma, og að hjálpa við prentverk. Mér virðast
augu Friðriks lesa hjörtu manna og ráða vfir þeirn, eða bjóða
þeim byrgin ella.—éfrarnh.).
Chicago Floral Co.
B. J. Pilcher og A. W. Turne
340 PORTAGE AVE., Winnipeg.
Phone: 24 791
Goodman Bros.
Vér setjum inn furnaces og ger-
um alt, er a3 tinsmlSi lýtur.
786 TORONTO STREET
Sími: 28 847 Heimas.: 86 642