Sameiningin - 01.11.1931, Qupperneq 27
345
boðaÖ til þess af fulltrúum safnaSarins, kvenfélögunum báÖum og
trúboÖsfélaginu. SamsætiÖ var fjölment og fór íram hiÖ bezta.
P'yrir 15 árum síÖan fóru þau hjónin til Japan. Fjórtán ár
hafa þau starfað þar, en eitt ár hafa þau haft frí áður og þá komið
heim.
Fyrsta árið í Japan dvöldu þau í Tokyo. Gekk það aðallega
til þess að læra japanska tungumálið. Það nám cr afarerfitt, bæði
vegna þess hve málið er fjarskylt Evrópu tungumálum, og enn
meir vegna hins hve erfitt er að læra skrifteikn málsins. í því
er ekki notað stafrof, heldur óskapa fjöldi orð- og atkvæðateikna.
Sagt er að daglegt mál heimti urn 6,000 slík teikn. Má það virð-
ast nærri ókleift fyrir útlendinga. Á því stigi er biblíukensla á
ensku hið helzta, er trúboðinn getur unnið að. Japanítar eru nám-
fúsir og hafa mikla löngun til að nerna ensku, koma því í enska
bjblíuflokka til að læra málið. Sumir þeirra komast. við þetta
undir kristileg áhrif.
Eftir eins árs dvöl byrjaði séra Octavíus á trúboðsstarfi, en
hélt samt áfram að hafa kennara í japönsku, ein tvö ár í viðbót.
Hann hefir starfað í þremur borgum í Japan: Nagoya,
Kurume og Kobe. í Kururne tók hann við starfi, sem stofnað
hafði verið til nokkuð löngu áður, en var, á þeim tírna nærri orðið
að engu. Honum tókst að endurreisa það starf og koma því aftur
í blóma. Mikil blessun Drottins var auðsæ í þvi verki. Nú síðast
var honum fengið starfssvið í borginni Kobe. Það er hafnarborg,
sem telur um 700,000 ibúa. Hann hefir hafið ]>að starf að nýju
til. Kirkja hefir ekki verið reist ennþá, en guðsþjónustu samkom-
ur haldnar þar sem þau hjónin hafa heimili. Fyrstu prédikunina
þar flutti hann út af efninu, “Þér eruð vinir mínir,” en önnur
ræðan var um kærleikann. Út af því ber staðurinn nafn: Yuh-ai-
kvan, sem merkir: vinskapar-kærleiks Ijygging. Undir því nafni
þekkist staðurinn síðan, og varpar það nokkru Ijósi á það, hvernig
trúboðinn nálgast fólkið, sem hann vill kenna.
Trúboðsaðferðir séra Octavíusar eru aðallega þrjár. Hann
prédikar og kennir orð Guðs. í öðru lagi talar hann við ein-
staklingana hvar sem honum gefst kostur. Hann telur mestan
árangur af þessum lið starfsins. Hann hefir margar aðferðir til
að komast i persónulegt samband við fólk í þeim tilgangi að svna
því hlýleik og smátt og smátt koma því undir vaxandi kristileg
áhrif þangað til það gengur algjörlega Kristi á hönd. Þriðja að-
ferð hans er bréfaviðskifti. í þannig löguðu bréfasambandi stend-
ur hann við ekki færri en 500 manns. Tilgangurinn er sá sami: