Fréttablaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 03.03.2011, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 3. MARS 2011 Norðmaðurinn Even Ramsvik mun galdra fram rétti undir nýnorrænni matarstefnu á Sjávarkjallaranum, Aðalstræti 2, á Food and Fun í næstu viku. Ólafur Ágústsson matreiðslu- maður og félagar hans í Sjávar- kjallaranum eru staddir í Kaup- mannahöfn þegar blaðamaður nær tali af honum. „Við erum í rann- sóknarferð,“ segir hann glaðlega og útskýrir að hópurinn flakki á milli góðra veitingastaða, smakki matinn, skoði umhverfið og þjón- ustuna. „Það er búið að vera gríð- arlega lærdómsríkt og við munum nýta okkur reynsluna heima,“ segir Ólafur en þeir félagar voru einmitt á leið út að borða á Noma, sem var valinn besti veitingastað- ur í heimi á síðasta ári. Sjávarkjallarinn tekur þátt í Food and Fun sem hefst í næstu viku og fær líkt og aðrir veitinga- staðir til sín góðan gestakokk. „Hann heitir Even Ramsvik og er matreiðslumaður á veitingahúsinu Ylajali í Osló,“ upplýsir Ólafur og bætir við að Ramsvik hafi í mörg ár verið í norska kokkalandsliðinu sem sé búið að vera á toppnum í mörg ár. „Núna síðast varð hann í öðru sæti í keppni um matreiðslu- mann ársins í Noregi, en orðið á götunni er að hann sé sá fremsti í Noregi í dag.“ Ramsvik fylgir nýnorrænni matarstefnu líkt og kokkarnir á Sjávarkjallaranum og Ólafur seg- ist því ekki búast við allt of mikl- um breytingum á staðnum vik- una sem Food and Fun stendur yfir. „Það er hins vegar gaman að fá nýjan vinkil á þessa nýnor- rænu matreiðslu. Hann ætlar til dæmis að vera með laxa- og ost- rutartar, desert úr hafþyrnisberj- um og gulrótum og elda síðan úr íslenskum þorski og lambi,“ lýsir Ólafur. Hann segir heilmikið um- stang fylgja því að fá gestakokk á staðinn. „En það er lærdómsríkt bæði fyrir okkur og þá sem vinna hjá okkur að fá nýtt blóð inn á staðinn og nýjan vinkil á hlutina,“ segir Ólafur. En er ekki erfitt að fá mann inn í sitt eigið eldhús og láta hann segja sér fyrir verkum? „Nei, það er allt í lagi fyrst það er bara einu sinni á ári,“ svarar hann hlæjandi. Sjávarkjallarinn er ekki alveg nýr af nálinni. Hins vegar opn- aði hann með nýjum eigendum, áherslum og hefðum 6. janúar síðastliðinn. Ólafur og Jóhannes Steinn Jóhannesson matreiðslu- maður höfðu þá um nokkurt skeið gengið með þá hugmynd í magan- um að opna nýnorrænan veitinga- stað í miðborg Reykjavíkur. Með þeim starfa Gunnar Rafn Heiðars- son og Einar Magnús Ólafíu son framreiðslumenn sem Ólafur segir mikilvægan hluta af liðinu sem stendur að baki hins nýja Sjávar- kjallara. „Við vorum heppnir að fá góða menn með okkur í þetta,“ segir Ólafur og er mjög sáttur við gengi staðarins hingað til. „Þetta hefur farið vel af stað og fínt að gera,“ segir hann en þátttaka í Food and Fun er hluti af því að stimpla stað- inn rækilega inn í vitund fólks. „Food and Fun hefur gefið ís- lenskri veitingahúsaflóru mikið. Nýir vinklar hafa orðið til í ís- lenskri matreiðslu auk þess sem margar skemmtilegar hugmynd- ir hafa vaknað við það að fá gesta- kokka á staðina,“ segir Ólafur og heldur á vit ævintýranna á veit- ingahúsinu Noma. Góðar hugmyndir vakna Kokkar Sjávarkjallarans fylgja nýnorrænni matarstefnu líkt og gestakokkurinn. Even Ramsvik verður gestakokkur í Sjávarkjallaranum. Ólafur Ágústsson Jóhannes Steinn Jóhannesson Steinn Óskar Sigurðsson S jávark ja l la r inn / Aðal s t ræt i 2 / 101 Reykjav í k / s ími 511 1212 FJÖGURRA RÉTTA F O O D A N D F U N M AT S E Ð I L L LAX 37˚C LAXA OG/OSTRUTARTAR, NORSKT FLATBRAUÐ, AGÚRKA, PIPARRÓT OG ÞARI. BORIÐ FRAM MEÐ LAGARSÍLDARHROGNUM OG SÚRUFROÐU ÍSLENSKUR ÞORSKUR MEÐ SÍNUM HROGNUM OG ÞORSKKÁSSU. NAUTATUNGA, JARÐSKOKKAR, REYKT OLÍA OG KÁLFASOÐ. LAMBAHRYGGVÖÐVI OG BRIS, RAUÐRÓFUKODDAR, VILLTIR SVEPPIR OG SVÍNASPIK. GREMÓLA OLÍA OG LAMBASOÐ. HAFÞYRNISBER OG GULRÆTUR MEÐ RJÓMAOSTI OG PISTASÍUM, SÍTRÓNU BLÓÐBERGS MARENGS OG HAFÞYRNISHLAUPI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.