Fréttablaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 64
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Megas á útlensku
Meistari Megas og fylgisveinar
hans í Senuþjófunum eru nú að
leggja lokahönd á sína fimmtu
plötu, (Hugboð um) Vandræði,
sem er væntanleg í búðir í næsta
mánuði. Þar er sú nýbreytni
að Megas syngur lag á ensku. Í
nýlegu viðtali á RÚV sagði Megas
að um væri að ræða tilraun til að
sanna eða afsanna þá kenningu
að Íslendingar gætu ekki samið
nema bull á ensku.
Umrætt lag er ákall
til Maríu meyjar í
kántrístíl og Megas
sagðist nokkuð
sáttur við útkom-
una. Afurðin hljómar
vel, en það
er tæplega
takmark
stórskáldsins
að leggjast
í síðbúið
meik.
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
ORATORS
- félag laganema við
Háskóla Ísland
12 DAGA HIGH RISK CPO
LÍFVARVÐA-
NÁMSKEIÐ
18-30 MARS 2011 LÆRÐU BEITINGU SKOT-
VOPNA, ÁHÆTTUAKSTUR,
SJÁLFSVÖRN OFL.
Þungarokkið í sókn
Strákarnir í víkingarokksveitinni
Skálmöld hafa slegið í gegn á
skömmum líftíma sveitarinnar.
Sveitin er aðeins rúmlega árs-
gömul en hefur þegar farið utan
til tónleikahalds og er bókuð
á stærstu þungarokksútihátíð
heims, Wacken Open Air, í sumar.
Fyrsta plata Skálmaldar, Baldur,
kom út á dögunum og fljótt
seldist upp á tónleika sveitarinnar
í Tjarnarbíói. Nú eru vinsældirnar
farnar að breiðast út. Það sést
skýrt á nýjasta Tónlistanum, þar
sem tekin er saman plötusala á
Íslandi. Plata Skálmaldar er í öðru
sæti yfir mest seldu
plöturnar, á eftir
safndiski með
lögunum úr
Eurovision en á
undan safnpakka
með helstu
lögum Ellýjar
Vilhjálms.
- þj, hdm
1 Sjóræningjar gáfust upp
2 Tchenguiz-bræður og Sigurður
Einarsson handteknir
3 Sjómaður féll útbyrðis
4 Þyrlan fann draugaprammann
5 Hljóta að hækka laun banka-
manna um tveggja stafa tölu