Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1913, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.05.1913, Blaðsíða 11
75 ingunni á mjög svipaÖan hátt og séra Jón Helgason hefir hafnað endrlausnar-kenning-unni í fyrirlestri sínum um það efni. Eftir þetta voru um hríð tvær stefnur hjá tJnítörum, alveg einsog nú er með nýguðfrœðingum vor- um. Önnur stefnan fylgdi kenningum Parker’s, og varð hún ofan-á hjá tínítörum; hin var íhaldsamari og í anda Channings; leituðu sumir fylgjendr hennar aftr í skjól evangeliskrar kirkju; sumir urðu máttarstólpar í hinum óbundnu söfnuðum Kongregazíónalista, en sumir að- hylltust síðar að öllu leyti kenninga-kerfi Únítara einsog það var frá Theodore Parker komið og haldizt hefir í megin-atriðum síðan óbreytt til þessa dags. Þeir, sem kunnugir eru upphafi og framþróun Úní- tara-stefnunnar hér í landi, geta ekki annað en séð, hversu líkt er á komið með þeirri stefnu og stefnunni, sem ræðr fyrir liinni svo nefndu „nýju guðfrœði“ í samtíð vorri. Theodore Parker segir um Únítarismusinn: „Hreyfing- in hófst meðal menntuðustu manna í þeim liluta Vestr- lieims, þarsem menningin er mest, og meðal þeirra manna, sem ekki höfðu til brunns að bera trúarþroska hlutfalls- lega við vitsmuni sína og siðfágunú (Weiss’s Life of Parker, Vol. 1, p. 270.) Byr undir vængi fékk og Únítara- stefnan í byrjun með bókmennta-öldinni nýju, sem upp rann um sama leyti og á sama stað. Þá áttu enn fremr umbrot þau í stjórnmálum, sem um þær mundir höfðu svo mikið vald yfir hugum manna, sinn þátt í því að hrinda af stokkum nýrri stefnu í trúmálum. En það, sem öllu fremr bjó í liaginn fyrir Únítara-stefnuna, var sá svefn til dauða, sem fallinn var á kirkjnna sjálfa í Nýja Eng- landi, eftir að liinn lieiti eldr hreintrúarmanna—púrítana —hafði kulnað þar á glóðum, — trúin orðin að andlausum formum og dauðum siðum. Svipað ]>essu er ástandið nú lijá vorri þjóð, og líkt fer nýju guðfrœðinni hjá oss. Hún sprettr upp við höf- uðból menntunarinnar á Islandi, samhliða nýjum bók- mennta-straumum og þjóðmála-hreyfingum. En það, sem jarðveginn gjörir frjósaman fyrir nýja stefnu, er rœktarleysið, sem komið er þar í kirkjutúnið, þarsem hin gamla kirkja liggr í rústum, og svefn, þungr sem dauð-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.