Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1913, Page 13

Sameiningin - 01.05.1913, Page 13
77 leiðin liggr, einsog nú er augljóst orðið af „liugleiðing- nm“ Jóns próf. Helgasonar, einkum af áminnztum fimmta kafla þess ritmáls. Komnir eru tveir kaflar enn af „hugleiðingunum“ ; en þar er ekkert nýtt og ekkert, sem nokkurt gildi hefir. Þeir kaflar eru til þess eins fallnir að sanna ummæli dr. Valtýs Guðmundssonar um nýju guðfrœðina í nýútkominni „Eimreið“. Þar segir svo (að slepptu klúrvrði einu) : „IJún er--------hvorki fiskr né fugl; er nánast orðin IJnítaratrú, en þorir ekki, eða vill ekki, kannast við það, og þykist standa á gömlum rétttrúnaðargrundvelli þrátt fyrir allt.“ Hver eftir ann- an liafa þeir nú kveðið upp-úr með það, liinum megin við hafið, hæði þeir, sem eru með og móti kirkju, að nýja guð- frœðin sé alsystir tJnítaratrúarinnar. Þyki það óréttlátr dómr, er þá að kæra á undan oss. Opið bréf til Arna Sveinssonar. frá Guttormi Guttormssyni. (Framh.) Þér hafið hnotið illa um setning eina, ofr meinleys- islega, í „Höfuðlærdómum“. Setningin hljóðar svo: „Það er sami guðinn, Jehóva Gyðinganna og drottinn kristinna manna.“ Þetta, að guð allrar hiblíunnar sé sami guðinn, mun víst mörgum liggja svo í augum uppi, að ekki hefði þurft að taka. það fram. En þér eruð á öðru máli. „Þessi staðliœfing virðist mér varhugaverð“ — segið þér—, „því, einsog þegar hefir verið bent á, var liin upprunalega guðshugmynd Gvðinganna mjög ófull- komin. Samkvæmt lienni var Jehóva að sumu leyti háðr mannlegu1 eðli. Hann var á gangi í kvöldsvalan- um; talar við Adam, etr og drekkr með Abraliam; og glímir við Jakob, og það svo áþreifanlega, að Jakob gekk úr augnakörlunum. Og synir guðs — Jelióva — kvonguðust dœtriun mannanna. Allt þetta kemr í mót- sögn við það, sem mér hefir verið kennt um guð kristinna manna---------. Hann er eilífr og óumbreytanlegr, — -----andi eða ósýnileg vera, sem hefir að sönnu frjáls- ræði og skvnsemi, en engan líkama eða limi; þess vegna getum vér ekki séð liann með líkamlegum augum, ekki

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.