Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1913, Síða 15

Sameiningin - 01.05.1913, Síða 15
79 rœða lijá báðum. Fyrir þessarri rökfœrslu yðar liggr til grundvallar liugsun nokkur eða kenning, sem þér liafið sjálfsagt ekki tekið með í reikninginn. Ef Jebóva Gyðinga var ekkert annað en guðshugmynd þeirrra, og drottinn kristinna manna er sömuleiðis ekkert annað en guðshugmynd þeirra, — ef hvorugr trúflokka þessarra hefir átt eða þekkt annan guð en þann, sem þeirra eigin ímyndan skóp þeim, án nokkurrar opinberunar frá sönnum guði eða þekkingar á honnm, ljósrar eða óljósr- ar, — í stuttu rnáli, ef hér er um ekkert annað en ímyndaðan guð að rœða, þá má auðvitaÖ segja, að guð- inn sé orðinn annar um leið og hugmyndin hefir tekið einliverjum breytingum. En sé guðshugmynd Gyðinga og kristinna manna að einliverju levti byggð á opinber- un frá sönnum guði, eða vitneskju um hann — látum þá opinberuri og þá vitneskju vera svo óljósa sem þér viljið, þá liggr í augum uppi, að sá guð er og verðr einn og hinn sarni, liversu mikið sem guðshugmyndin hefir breytzt með áframhaldandi opinberun og aukinni þekk- ing á eðli guðs og eiginleikum. Eigi því að fœra þessi rök yðar til sanns vegar, þá verða þau að grundvallast á algjörri guðsafneitan, eða að minnsta kosti á algjörri neitan allrar guðlegrar opinberunar og allrar þekkingar á sönnum guði bæði með Gyðingum og kristnum mönn- um. Með því móti einu er unnt að segja, að það geti elvki verið sami guðinn, Jehóva Gvðinga og drottinn kristinnna manna, þarsem guðshugmynd hinna síðar- nefndu sé orðin fullkomnari. Ekki býst eg við því, að þér hafið af ásettu ráði reitt höggið svona hátt, lieldr mun bitt sönnu nær, að yðr hafi fundizt liann handhœgr, þessi algengi sleggjudómr um ófullkomna guðstrú Gyð- ingai, og liafið svo, einsog oft vill verða, gripið til hans án þess að) gjöra yðr Ijósa grein fyrir afneitun þeirri, sem í honum liggr. Til frekari skýringar vil eg nú levfa mér að koma með dágott sýnishorn af ofan-greindri rökfœrslu yðar. Setjum svo, að einhver segði: „Það er sama jörðin, jörð fornaldarþjóðanna og jörð núlifandi manna.“ Sú staðhœfing hlvtr að vera mjög varliugaverð, samkvæmt rökum vðar, því einsog kunnugt er var hin uppruna- lega jarðarhugmynd fornmanna mjög ófullkomin. Sam- kvæmt henni var jörðin flöt, stóð kyrr og hvíldi á ein-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.