Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1913, Síða 25

Sameiningin - 01.05.1913, Síða 25
8g oss skortir svo mjög menn og fé, meir þó menn. Svo búiö má ekki lengr standa, ef vel á að fara. Vér þurfum sex starfsmenn umfram þá, sem nú eru, og hefðum enda verk handa fleirum. — Og vér þurfum um $4000 til $5000 árlega, um nokkur ár. — En hvernig getum vér full- nœgt þeirri þörf? Allsherjar trúmálaþing lúterskt stendr til að haldið verði á næsta hausti í Niirnberg á Þýzkalandi, 8.—11. Sept. Það verðr hið fjórt- ánda þing þeirrar tegundar í sögu lút. kirkjunnar. Hið fyrsta var haldið 1868, og sóktu það 15 hundruð lúterskra manna úr ýmsum lönd- um, þar á meðal önnur eins stórmenni og Euthardt og Philippi. Um- rœðu-efni á þingi þessu fyrirhuguð: I. Hví verðum vér að halda oss fast við trúarjátningar vorar? — og 2. Hvernig stendr á því, að trú- vakning verðr kirkjunni ekki lengr að neinu liði? Dr. Zahn frá há- skólanum í Erlangen svarar fyrri spurningunni og byrjar með því erindi sinu umrœður um það mál. Dr. Haak, yfirkirkjuráð í Schwe- rin, hefr umrœðurnar út-af hinni spurningunni. Þing þetta á að efla eining í vorri kirkjudeild, sem af ýmsum orsökum er mjög sundr slitin. Árangr af kristniboðinu í Mið-Afríku er stórkostlegr. Fyrir þrjátíu árum hófst sú starfsemi þar út-af hinni sterku áskoran, sem Stanley bar fram, um að sendr væri að minnsta kosti einn maðr árlega inn-á landflæmi þetta hið ókunna til að flytja fólkinu villta þarlenda fagnaðarerindi kristindómsins. Nú er þar, að sögn, um tvær þús- undir kirkna og skóla, meira en hundrað innfœddra prestvígðra manna, 60 þúsundir, sem snúizt hafa til kristinnar trúar og verið skírðar, sex liundruð þúsundir barna í hinum kristnu skólum. í Úganda- héraði einu kvað tala innfœddra ‘fagnaðar-boða’ og meðhjálpara vera 32, tala kirkna og bœnhúsa þúsund; þar á meðal er höfuðkirkja ein, sem rúmar fjórar þúsundir manns. Þar eru fimmtíu þúsundir skírð- ar, og scekir allt það fólk helgar tíðir samvizkusamlega. í Úganda eru hundrað þúsundir innfœddra, sem kunna að lesa og skrifa, og 250 þúsundir, sem njóta reglubundinnar trúarfrœðslu. Þetta mun eins- dœmi í sögu kristniboðsins í heiminum. Einn af gimsteinum fornaldar-bókmennta vorra er nú fenginn is- lenzkri alþýðu I hendr, þarsem er Iúlja Eysteins munks Ásgrímssonar I hinni nýju útgáfu hr. Boga Th. MelsteSs frá Kaupmannahöfn. 1 Lilju ris kristin trú hæst i sögu þjóSar vorrar í kaþólskum siö, jafn-hátt aS sínu leyti einsog I Passíusálmum Hallgríms Pétrssonar á tímanum öll- um eftir reformaziónina. Gamalt orötak lifir enn: ,,öll skáld vildu Lilju kveSið hafa.“ Svo var fyrrum; en nú langa-lengi hefir kvæði þetta veriS íslendingum sem glataSr gimsteinn, þvi útgáfa af því viS alþýðu hœfi var engin til. Hin nýja útgáfa er stór-þakkarverS. Dr. Finnr Jónsson háskólaprófessor hefir séS um textann. RitiS verSr aS fá I bóksölu hr. Halldórs S. Bardals hér I Winnipeg. I seinasta hefti „EimreiSarinnar" eignar háttvirtr herra ritstjór- inn, dr. V. G., Jesú Kristi, frelsara vorum, hin alkunnu orS Pílatusar:

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.