Íslendingur - 10.01.1919, Qupperneq 3
2. tbl.
ISLENDINGUR
7
• ••-• • •■•■•■ • •-•-•-•-•-•-• •-•■•-•-•-•-• • •-•-♦-• •-•-•-•-•-•-•-•-> •-• • • • • • «-•-• • • •-• •-•■ •••••• •-• • • • • • ■•-•-•-•■ • • • ••-•-•• • •••
vafasamt að manndauði verði yfirleitt
meiri en f sumum fyrri farsóttum.
St. heldur að þessi sótt hafi orðið
svo skæð fyrir það að fólk var veikl-
að af skorti og skæðust þar sem
skorturinn var mestur. Ennfremur að
hún hafi verið miklu skæðari þar sem
skólum og skemtistöðum var ekki lok-
að. Hvorugt er enn hægt að sanna,
þess vegna ekki vert að fullyrða neitt.
Væri skortur og hungursneyð aðalat-
riðið þá ættu þau lönd að hafa orðið
verst leikin þar sem bágindin voru
mest. En það þefir ekki vitnast að
svo hafi verið. Þá hefði átt að deyja
miklu meira af fátæklingum en efn-
uðu fólki, en þess er hvergi getið. í
Reykjavík virtist sóttin taka jafnt fá-
tæka sem rfka og jafnt þá sem höfðu
góð húsakynni og hina f hreysunum.
Hinsvegar finst mjer hugsanlegt að
upprunalega hafi sóttin eða sótt-
kveikjurnar magnast f manneskjum
veikluðum af skorti og öðrum mis-
rjetti. — Og frjettir frá útlöndum
segja að manndauði hafi orðið eins
mikill þar sem öllum opinberum sam-
komuhúsum var lokað, og þar sem
þeim var haldið opnum. En vera má
að ráð hafi ekki verið f tfma tekið —
því svo vill oft vera þegar um inflú-
ensu er að ræða. Erfitt að þekkja
fyrstu tilfellin.
St. heldur að vel sje hægt að verj-
ast þessari farsótt, þó frfskir smitt-
berar geti borið hana. Það er auðvit-
að hægt meðan við höldum áfram
jafn ströngum sóttvörnum og nú. En
getum við það í vor og sumar? Þvf
svo lengi þurfum við þess ef satt er
sem þýskir læknar hatda fram að in-
flúensa geti leynst með sumum mönn-
um mánuðum saman. En jeg er
hræddur um að slaka verði á vörnun-
um fyr en í vor eða sumar. En þá er
hættan með smittbera. St. heldur að
ekki sje meiri vandi með þá f inflú-
ensu en við heilabólgu, barnamátt-
leysi o. fl. sjúkdóma. En hjer er ólfku
saman jafnað, þvf þeSsar sóttir eru
ekki svipað því eins næmar enda
aldrei beitt við þær eins ströngum
vörnnm og við inflúensu nú. Þær hafa
hjaðnað niður án þess að til þeirra
ráða hafi verið gripið.
St. endar grei|i sfna með: Vjer
eigum að gera alt tif að verjast veik-
inni. Jeg vil breyta þessum orðum
þannig: Vjer eigum aö gera
alt sem vit er í til að verj-
ast veikinni.
Sígr. Matíhíasson.
Jarðarför
frú Guðrúnar Jónsdóttur á Grund,
fór fram að Grund laugardaginn 4. þ.
m., að viðstöddu fjölmenni (á 4. hund-
rað manns). Sóknarpresturinn, sfra
Þorsteinn Briem hjelt ágæta ræðu í
kirkjunni. Vald. Steffensen læknir söng
kvæði, er orkt hafði Guðm. Guðmunds#.
skáld. í kirkjunni fluttu þfeir kvæði,
Jóhannes í Miðhúsum og Davfð á ÍCroppi.
E'g' allfáir Akureyringar voru við jarð-
arförina og vildu þannig sýna vott
virðingar sinnar fyrir hinni látnu
sæmdarkonu.
Grundarþíng'
augíýst laus. Urasóknarfrestur til
1. mars n.k.
Skoðanamunur.
Auditor fer lítilsvirðandi orðum um
kvartettinn Braga, sem sungið hefir
mörgum til skemtunar og seinast hjer
um daginn fylti samkomuhús bæjarins
og gaf allan ágóðann til söfnunar-
sjóðs berklahælisins. Auditor (les ádí-
tor) er latneskt orð og þýðir áheyr-
andi (segi jeg þetta svo sauðsvartur
almúginn skilji).
Líklega telur auditor sig hafa gott
eyra úr því hann kemur fram sem
strangur aöngdómari. En mjer datt í
hug það sem haft er eftir Jónasi
lítitnum Helgasyni organleikara þegar
maður nokkur bjelt þvf frnm að or-
gelið hans væri hjáróma: »Er það
eyra! Er það bölvað eyra!* sagði
kallinn. Mjer flnst sá maður heyra
iila, sem heyrir aðeins misfellurnar á
samsöng fjórmenninganna. Auðvitað
eru þeir viðvaningar — eins og flest-
ir söngmenn hjer — en mörg Iögin
tókust vel svo ánægja var að heyra.
Það hefir áður viljað til að söngur
hafi mistekist hrapallega hjer á Ak-
ureyri bæði bjá einum og fleirum og
ekki verið gert að blaðamáli. Mjer
fanst þvf óþarfi að setja Braga f blað-
anna gapastokk.
En mjer tók sárt það sem auditor
segir um Aage Schiöth. Jeg held sá
maður sje andlega heyrnarlaus eða
tilfinningarlaus fyrir söng, sem ekki
finnur að Aage er gæddur framúrskar-
andi fögrum hljóðum. Og mjer finst
illa gert að spá honum hrakspám um
framtfðina þessum unga efnilega söng-
manni. Auðvitað má að honum finna
— því langt á hann f land til að
verða fullæfður, enda hefir hann eng-
an skóla fengið svo teljandi sje.
Jeg er einn af þeim sem dáist að
því hve fagra rödd Aage hefir íengið
af náttúrunnar ^endi. Ef Aage heldur
vel á henni, veit ,jeg það að honum
verður hvervetna vel tekið, þvf fögur
söngrödd er jafn eftirsótt vara um
allan mentaðan heim og gull og gim-
steinar. Má þá vel fara svo að ísland
verði Aage of lftið. En það gerir ekk-
ert til; landi sfnu yrði hann þá enn
meir til 3Óma.
Plausor (les: Plásor,
þ. e. sá sem klappar lof f lófa).
S v a r.
Sfðasta tölubl. íslendings flytur grein
eftir Gunnar nokkurn Guðlaugsson, er
hann nefnir »ásælni eða hvað«, en efni
greinarinnar er að skýra frá, að hann
ásamt 30 borgurum f Akureyrarbæ, sem
tekið höfðu upp svörð í Bændagerðis-
landi, hafi sent kæru til bæjarstjórnar-
innar útaf óhæfilega háu svarðargjaldi
og að hann í brjefi frá bæjarfógeta
Páli Einarssyni, hafi fengið það svar
gegn þessari kæru, að bæjarstjórnin
hafi fyrir löngu ákveðið, að svarðar-
gjald fyrir hverja svarðartöku í landi
bæjarins, skuli vera 10 aura íyrir
feralin.
Jeg skal játa að þetta kom nokkuð
flatt uppá mig. Fyrst það, að mjer
skyldi ekki hafa verið gefin kostur á
að sjá þessa kæru, til þess að segja
álit mitt um hana og f öðru lagi, að
bæjarstjórnin, sem mjer til skams tfma,
hefir verið ókunnugt um, að hefði sett
10 aura svarðargjald á landeign Eyrar-
lands, skuli hafa fastsett 10 aura
svarðargjald f landeign Bændagerðis,
án mfns vilja og vitundar, enda virði
jeg slíka ráðstöfun að vettugi, þareð
bæjarstjórnin hefir alls enga heimild
til að gjöra neina ákvörðun um Bænda-
gerðisland, nema f samlögura og sam-
ráði við mig, sem eiganda að hálfu
Bændagerði og umboðsmanni yfir hluta
bæjarins í Bændagerðis eigninni.
Aður en jeg sendi skýrslu mína
um afgjöld af Bændagerði, talaði jeg
við oddvita bæjarstjórnarinnar um
svarðargjaldið og kom okkur saman
um, að það væri hæfilega sett 15 aurar
á feralin, er orsökin sú til þeirrar
hækkunar meðal annars, að kostnaður
hefir orðið við ýmsar umbætur, er
gerðar hafa verið á svarðarlandinu,
og bráðnauðsynlegar voru, með skurða-
greftri og ennfremur hafa bráðnauðsyn-
legar brýr verið lagðar, með tilliti til
svarðartekjunnar.
Að undan förnu hefir gjaldið á
Eyrarlandi verið 5 aurar á feralin, en
er nú samkvæmt framan skráðu 10
aurar, í Bændagerði hafa altaf verið
teknir 7 aurar, en er nú hækkað upp
í 15 aura og er þannig hækkunin á
báðum stöðum hjerumbil sú sama.
í íslendingi auglýsti jeg, að ef ein-
hverjir ekki hefðu, eins og fyrirskipað
var, sljettað úr mógröfum sfnum fyrir
vissan tiltekin dag, þá yrði jeg að
láta gera það á þeirra kostnað, sem
jeg svo gerði og varð kostnaðurinn
4 aurar á feralin, sem jeg færði hverjum
einstökum til gjalds. Jeg skal játa
að jeg að sönnu hefi ekki sjálfur sjeð
frágang hvers eins frá svarðargröíunum,
en hefi þar farið eftir frásögn trú-
verðugs manns, sem íyrir mína hönd
útmældi svarðarlandið og sfðan sljettaði
yfir grafir þær, sem ekki hafði verið
hirt um að sijetta, þar á meðal gröf
Gunnars þessa Guðlaugssonar.
Hinum miður sæmilegu aðdróttunum
til mín, sem lfklega hafa átt að skreyta
framannefnda »ásælnis« - ritsmíð, hirði
jeg ekki um að virða svars.
Stephán Stephensen.
)
Vers/un og viðskiffahorfur.
Vopnahljeið er fengið, vopnahljeið,
sem vara á eilíflega. Hildarleikurinn,
sem nú hefir verið háður sfðustu fjög-
ur árin, á aldrei að endurtakast.
Sorgarstunur, hungurvein og örviln-
unaróp þjóðanna, sem neyddar hafa
verið út í vitfirringuna, sameinast í
einn þungan nið, sem aldrei dvín, ó-
bornum kynslóðum til ævarandi við-
vörunar. Margt er að græðs, margt
að bæta.
Skandínavía hefir haldið hátfð und-
anfarin ár hjá þeim kjörum, sem íbú-
arnir á meginlandi álfunnar hafa átt
við að búa. Og þó mun mörgum Skand-
fnava hafa fundist ekki mega tæpara
standa.
Víst er um það, að margt höfum
við orðið að neita okkur um, og ýms
vandkvæði orðið að gera okkur að
góðu, en við höfum þó ekki soltið
vikum, mánuðum og árum saman, og
við höfum heldur ekki verið klæðlaus-
ir og varnarlausir gegn áhrifum hita
og kulda, ár eftir ár, eins og íbúar
álfunnar, á svæðinu frá Norðursjó suð-
ur á Balkanskaga og að Miðjarðarháfi.
En eigum vjer ekki nú eftir hið
harðasta? Er nú ekki hið þyngsta eftir
fyrir oss og aðra Skandfnava? Mið-
Evrópa, með nálægt 200 miljónum í-
búa, er gersamlega fatalaus og matar-
laus og á stórum svæðum húsnæðis-
laus. Hve langan tíma tekur að fylla
svanginn hinna hungruðu og klæða
miljónirnar klæðlausu, sem enga spjör
hafa eignast sfðan 1914 og nú geta
ekki hulið nekt sfna, nema með papp-
frsblöðum ?
Við getum hugsað að næsta ár og
næstu ár Iíði svo, að ekki komi í okk-
ar htut, til fæðis og klæða, annað en
molar, sem falia af borðum hinna sár-
þurfandi.
Banaamenn hljóta að láta hinar sigr-
uðu þjóðir og sjálfa sig sitja fyrir
kaupum að mestu, þegar alt verður
frjálst. Þegar siglingateppan er úr
sögunni og samgönguvandiæðin, þá
verður það samkepnin og eftirspurnin,
sem skamta Skandfnavíu úr hnefa.
Hungraður maður spyr ekki um
verðið á matnum, nje klæðlaus maður
hvað fötin kosti, eí hann aðeins getur
fengið þarfir sínar uppfyltar. Þessvegna
er það eitt víst, að það litla, sem við
fáum, verður afardýrt. Og þetta er
rjett að athuga f tfma. Almenningur
verður að veta sjer þessa meðvitandi.
Og kaupsýslumenn vorir verða að gera
sitt til að fá vörurnar inn í landið,
hvað sem öcþu líður. Við vitum að
þær hljóta að verða dýrar, en hvað
er það hjá því að geta eþki átt neina
úrkosti með að fá þær.
- (Þýtt úr sænsku.)
LI8TI
yfir nöfn þeirra, sem hefa gefið til
berklahæljs hjer norðanlands og geisla-
lækningastofu í sambandi við sjúkra-
hús Akureyrar.
Tryggva Kristjánsdóttir, Akureyri 5.00
Ingibjörg Sigurgeirsdóttir — 5.00
Guðný Björnsdóttir — 5.00
Snjólaug Björnsdóttir — 5.00
Gunnlaugur Gunnlaugsson — 10.00
Ósk Jónsdóttir — 5 00
Sigursteinn Gunnlaugsson — 5.00
Rannveig Gunnlaugsdóttir — 5.00
Gunnlaug Gunnlaugsdóttir — 2.00
Þóra Guðnadóttir — 5.00
Friðrika Friðriksdóttir — 10.00
Valgerður Friðriksdóttir — 10.00
Guðrún Jóhannsdóttir — 1.00
Guðný Jónsdóttir — 10.00
Sigrfður Guðmundsdóttir — 1.00
Anna Kristjánsdóttir — 2.00
Sigurlaug Jóhannsdóttir — 1.00
Svanborg Jónasd. Ytra-Melhúsi 10.00
Helga Sigíúsdóttir — 15.00
Þóra Vilhjálmsd. Munkaþverá 25.00
Þórey Stefánsdóttir — 25.00
Sigríður Stefánsdóttir — 25.00
Laufey Stefánsdóttir — 25.00
Vilhjálmur Steíánsson — 25.00
Þorgerður Jónsdóttir — 25.00
Jón Júlíusson — 20.00
Jón Jóhannesson — 10.OO
Jónas Þorleifsson io.oo