Íslendingur - 10.01.1919, Síða 4
8
ÍSLENDINOUK
2. tbl.
Kjartan Ólafsson — 5.00
Eggert Ólafsson — 1.00
Snæbjörn Þorleifsson — 3-oo
Hulda Davfðsdóttir — 2.00
Guðrún Jónsdóttir — 1.00
Kristfn Friðbjarnard — 1.00
Ingibjörg Brandsdóttir — 2.00
Jón Jónsson Borgarhóli 5 00
Jónfna Jónsdóttir — 2 00
Margret Jónsdóttir — 2 00
Sigríður Jónsdóttir — 1.00
Valtýr Jónsson — 1.00
Sigurður Jónsson — 1.00
Kristján Jónsson — 1.00
Rósa Jónadóttir Grýtu 20.00
Benedikt Jónsson — 5.00
Júlfa Flóventsdóttir — 2 00
Þórey Þorleifsdóttir — 2 00
Guðleif Þorleifsdóttir — 5 00
Margrjet Júlíusd. Munkaþverá 5 00
Hallgrímur Júlíusson — 5 00
Steingrímur Þorieifsson Grýtu 5 00
Ingólfur Pálsson Uppsölum 5.00
Sigríður Jónsdóttir — 2.00
Jónína Jónsdóttir — 20.00
Marinó Jónsson — 5.00
Brynjólfur Jónsson — 5 00
Jón Jónsson — 2.00
Margrjet Friðriksd. — 2.00
Rósa Pálsdóttir — 1.00
Anna Jónsdóttir — 1.00
Amalía Valdemarsd. — 2.00
Kristfn Jónsdóttir Sigtúnum 30.00
FIosi Pjetursson — 1.00
Júlíus Pjetursson — 1.00
Jón Pjetursson — I 00
Petrónella Pjetursd. — 1.00
Guðbjörg Jónsdóttir — 1.00
Guðrún Jónsdóttir — 5.00
Sigurjón Jónsson Borgarhóli 5.00
Þorbjörn Jónsson — 2.00
Sigríður Einarsdóttir Klauf 10.00
Helga lónsdóttir — 5.00
Jón Gunnlaugsson — 3.00
Halldóra Helgadóttir — 3.00
Haukur Davíðsson Munkaþverá 1.00
Nýbýli—nýlendur.
Eflir Jón Dúason
(Framh,)
Jeg skal stuttlega reyna að lýsa
svæðum, sem eitt sinn voru heimili
ísienskrar menningar og þjóðlffs og
þar sem mannvirki feðra vorra eru
enn einustu menjar um mannlega til-
veru.
Kvísl af Golfstraumnum fyilir hafið
fyrir vestan Grænland með heitu vatni,
sem alt frá yfirborði og niður f botn
hefur sama hitastig og Golfstraums-
vatn á sama breiddarstigi í Atlants-
hafinu. Af þessu leiðir geysintikinn
mun á veðráttu milli vesturstrandar
Grænlands og austurstrandarinnar þar
sem Heimskaut3Straumurinn rennur.
Lftil kvfsl af Heimskautsstraumnum
kemst suður um suðurodda Grænlands
og rennur sem mjór yfirborðsstrsum-
ur norður með ströndinni nist við land.
Útaf Eystri Byggð, suðvesturhorni
Grænlands, er straumur þessi 2—10
mtlur á breidd. Strandræroan á Vest-
ur-Grænlandi er víða álíka breið og
ísland miili Sigluness og Dyrhólaeyjar.
Það verður að gera greinarmun á
því, hvort staðurinn er langt eða
skamt frá ströndinni. Þar sem Græn-
land nær einnig yfir 14 breiddargráð-
ur, eða jaínlanga leið og frá Kaup-
mannahöfn og suður f Tunis; er auð-
skilið, að mikill munur er á veðuráttu
syðst og nyrst. Á eyjum og útnesjum
í Eystri Bygð er veðrátta næsta lík
þvf, sem er á Norðurlandi. Frost munu
vera þar ofurlítið meiri á vetrum Úr-
koma og þokur á útnesjum og eyjum
í Eystri Bygð eru talsvert sjaldgæfari
en f Stykkishólmi við Breiðafjörð, þar
sem úrkomu og þokudagar eru fæstir
á íslandi, og dýpt úrkomunnar á út-
nesjum f Eystri Bygð er ekki lítið
minni en á íslandi. Á útkjálkum Eystri
Bygðar eru logn langtum tfðari en á
íslandi, svo þar er engin samjöfnuður.
Því lengra sem dregur norður, verður
hitinn og regndýptin minni og kyrðin
rneiri. í Eystri Bygð og á allri Vestur-
ströndinni blása heitir og þurrir vindar
af jöklinum — einkum oft að vetrinum,
þeir bræða snjóinn f skyndi og taka
mikið af leysingarvatninu upp f sig.
Á Suður-Grænlandi blása einkum heitir
Suð-vestanvindar, að vetrinum, sem
eru orðnir mettir af vatnsgufum af að
blása yfir Golfstrauminn. Þeim fylgirmik-
ið regn á útkjálkum; en þegar þeir hafa
blásið yfir fjöllin og ná inn f landið
er me'st regnið fallið úr þeim. Þetta
eru helstu vindar, sem blása á Græn-
landi. Af þeirra völdum er það eink-
um, að snjór liggur sjaldan lengi á
Suður-Grænlandi. Snjór fellur þar helst
af norðvestanátt, en ekki norðan eða
austan.
Inni í landinu, þar sem bygð ís-
lendinga stóð, og bæjarrústir vorar
standa enn, er meginlandsloftslag.
Þar er örlítil úrkoma og logn tíð,
síheiður himinn hvelfist þar yfir döl-
unum. Mánuðum saman dregur þar
ekki ský á himininn. Inni f landinu
eru meiri vetrarfrost og sterkari sumar-
hitar en úti við ströndina. Sólskins-
dagarnir inni í dölunum eru steikjandi
heitir en næturnar tiltölulega svalar.
Áhrifa af Golfstraumnum, verður þá
einnig vart inni í döiunum.
Mestur munur er þó á úrkomunni
milli útnesja og innsveita. Heiðmyrkur
eða vindar, sem flytja úrkomu utanaf
hafinu hafa leyst upp eða felt niður
vatnið áður þeir ná inn f innsveitirnar.
Þurkarnir inni í dölunum standa þó
einkum f sambandi við nálægðina við
jökulinn.
Jurtagróðurinn stendur í náiíu sam-
bandi við loftslagið. Út við ströndina
er jurtagróður fáskrúðugur, en inni
við fjarðarbotnana og í innsveitunum
er jurtagróðurinn bæði fjölskrúðugur
og stórvaxinn, einkum suður í Eystri-
Bygð. í Eystri Bygð vaxa birkiskógar,
þó tæplega eins háir og á íslandi.
Þar eru engjar fram með ám
og vötnum, í fjalla hlfðum, í mýrum
og á heiðum uppi. Inni í Eystri-Bygð
er grasið miklu stórvaxnara en á ís-
landi og lfkara/ þvf sem er í suðlæg-
ari löndum og sama er að scgja um
lyngið, sem vex þar sem þurast og
berast er. Hið innra er landið alt gró-
ið alt upp að fjallatoppunum, svo
hvergi sjer votta fyrir uppblástri.
Að dómi allra er sjeð hafa, er þetta
land rjett nefnt Grænland. Við innan-
verða firðina og í dölunum inn af
þeim standa girt tún og bæjarrústir
feðra vorra. Rústirnar sýna að til forna
hafi kýrnar á sumum þessara bæja
skit hundruðum og sauðfjeð mörgum
þúsundum. Svo frjósöm er grænlensk
jörð, að túnin fornu eru enn f rækt
og »Timoei« og »Rævehale« skrýða
þau á hverju vori. Úti á annesjum f
Eystri-Bygð vaxa kartöflur og því-
líkir garðávextir vel, en þó margfalt
betur inn í innsveitunum. Þurkarnir
inni f landinu eru taldir standa jurta-
gróðrinum fyrir þrifum, en þar er
auðvelt að gera áveitur.
Gamlar fslenskar heimildir segja,
að Grænland sje fiskiauðugasta land
f heimi. Af fiskitegundum má nefna
þorsk, fjarðþorsk, sfld, loðnu, steiif-
bít, löngu, keilu, flyðru, karfa, grá-
lúðu, kola, hákarl o. s. frv. Fjarð-
þorskur, flyðra, karfi, grálúða, hákarl
og vfst fleiri tegundir eru við landið
og f fjörðunum alt árið. Þorskurinn
kemur í stórum göngum að Suður-
Grænlandi aðsumrinu. Um sfldina vita
menn lftið, nema að hún gengur að
landinu. Loðnan gcngur f geysistórum
torfum inn í firðina í seinnihluta apríl-
mánaðar. í maí og júní hrygnir hún og
gengur þá svo þjett upp að fjörðum
að þar er fiskur við fisk, alt frá yfir-
borði og niður í botn og henni má
ausa upp með höndunum. Loðnan er
góð áta, en einnig til skepnufóðurs.
Með fyrirdráttarneti mætti draga
mörg hundruð tunnur á land og aka
burt til þerris. Veiðin getur haldið á-
fram dag eftir dag þvf á loðnunni
þarf ekki að kvíða þurðar. Við Græn-
land eru sögð bestu flyðrumið f heimi.
Fjarðþorskurinn er í fjörðuntam og
inn við land alt árið í ógurlegri mergð.
Grálúðan er þó sá fiDkur, sem gróða-
vaenlegast mundi að veiða. Eftir því
verði, sem nú er á þessum fiski sölt-
uðum, og eftir skýrslum fiskirann-
sóknarmanna og reynslu skrælingja,
ætti hreyfibátur að gáa fiskað meira
en >/2 miljón kr. í grálúðu einni á
ári. En það væri öfgahár afli. Við
Grænland er einnig mikið af hvölum
og selum. Hvalveiðaskipin frá. Hellu-
landi og Marklandi sækja mestan afla
sinn til Grænlands. Selatorfur miklar
reka með ís fyrir Eystri-Bygð að
vorinu og má þá rota hann unnvörp-
um. Á Grænlandi eru mikil fugtabjörg,
æðarvörp og önnur varplönd. Þegar ís-
lendingar námu landið gengu þar
stórar viltar bjarðir af hreindýrum og
moskusuxum. Eítir að bygð var lögð
f eyði, hafa þar gengið bjarðir af
íslensku sauðfje og hestum; en þessu
og moskusuxunum hafa örvar Skræl-
ingja útrýmt og kúlur þeirra hafa nú
útrýmt hreindýrunum á stórum svæð-
um síðan þeir fengu byssur. í ám og
vötnum er mjög mikið af silungi og
laxi, sem veiða má fyrirhafnarlítið (
stórum stfl.
Blöð
Lögrjetta,
Morgunblaöiö,
óöinn,
fást hjá undirrituðum.
Hallgr. Valdemarsson.
Fasteignasala.
í gær keypti Jónas bóndi Sveinsson
á Uppsölum í Skagafirði húseign Bald.
Ryels með innanstokksmunum, íyrir
kr. 18,200.00. Flytur Jónas hingað
til bæjarins, með fjölskyldu sína á
vori komandi.
Vjelstjórafjelají
Akureyrar var stofnað hjer f bæ
á sunnudaginn. Formaður var kosinn
Óskar Sigurgeirsson, vjelsmiður. Fjel-
agsmenn milli 20 og 30.
Bærinn »Þyrnar«
í Qlerárþorpi er til sölu í vor. Lyst-
hafendur snúi sjer, sem fyrst, til
Einars Jóhannessonar,
Þyrnum.
Hvítir ballhanskar, langir
1,25, hvítir og mislitir ball-
sokkar
fástí
Vers/um Jlsbyrgi.
Fyrst um sinn verður
búðin aðeins opin frá
kl. 2--6 siðd.
r
Versl. »y4sbyrgi«.
ÍSLENDINQUR
kemur út á hverjum föstudegi. Verð
árg. kr. 4 00. Gjalddagi 1. júnf.
Tilkynning. '
Afðreiðslu- og innheimtumaður ísl.,
Hallgr. Valdemarsson, hefir tekið að
sjer innheimtu og reikningsskil á aug-
lýsingum blaðsins framvegis og eru
menn því beðnir að snúa sjer til hans
því viðvíkjandi.
■Sig. £in. Jitíðar.
Auglýsingar í Islending.
Það eru vinsamleg tilmœli min, að
auglýsingar, sem í blaðið eiga aQ
koma, sjeu komnar jil min eða prent-
smiðju Odds Björnssonar fyrir fimtu-
dagskvöld.
Víking-
skilvindan,
3 stærðir, hjá
P. Pjeturssyni.
Likkisíur, >
líkkistumyndir, kransar
og líkföt, fást ajtaf á
verkstæði mínu í Aðal-
stræti 54, talsími 53.
Davíð Sigurðsson.