Íslendingur - 06.01.1925, Side 1
Ragnar eða Halldór?
Kjósandi góður! Hvað myndirðu gera, ef
þú ættir umsvifamikið bú og þyrftir á ráðsmanni
að halda og umsækjendurnir um stöðuna væru
þeir Ragnar Ólafsson og Halldór Friðjónsson?
Hverjum þeirra myndirðu treysta betur í ráðs-
mannsstöðuna? Og myndirðu þá ekki velja þann
manninn í hana? Eins og þú myndir velja fyrir
sjálfan þig, áttu að velja fyrir bæjarfélagið við
kosningarnar í dag.
AKUREYRAR BIO
I Miðvikudagskvöldið: MARK ZOROS, 6 þátta kvikmynd.
Aðalhlutverkið leikur snillingurinn
Douglas Fairbanks.
Húsið opnað kl. 8. — Byrjað kl. 8^/2.
Dálítill mann-
jöfnuður.
Pað er enganveginn ófróðlegf, að
gera dálítinn samanburð á efstu
mönnum þeirra listanna, sem • eru
skörpustu andstæðumar — þeim
Ragnari Ólafssyni og Halldóri Frið-
jónssyni, því að af honum má nokk-
uð ráða, hvor þeirra hafi og hvor
þeirra muni duga þessu bæjarfélagi
betur, en einmitt á það verða kjós-
endurnir að líta, vilji þeir bæði sjálf-
um sér og bæjarféiaginu í heild
sinni vel.
Ragnar Ólafsson fór ungur úr
föðurgarði með tvær hendur tómar
’og hafði ekki til menta ve'rið settur.
En einbeittur vilji á að komast á-
fram í heiminum var veganestið.
Af eigin ramleik aflaði hann sér
mentunar, sérstaklega verzlunar- og
fjármálaþekkingar, og varð svo að
sér í þeim greinum, að fáir standa
honum á sporði hér urn slóðir. Með
dugnaði og atorku tókst honum
smátt og smátt að ná því takinarki,
sem hann hafði sett sér, unz að
hann er kominn svo langt, að vera
talinn einhver mesti fésýslumaður—
ekki aðeins þessa bæjarfélags, held-
ur alls Norðurlands.* — Og R. Ó.
hefir komið víða við, dugnaður
hans verið lífgjaíi mörgu því, sem
lá við falli og nú stendur að nýju
með blóma, má þar til nefna Klæða-
verksmiðjuna »Gefjun«, sem hanil
tvímælalaust á mestan og beztan
þáttinn í að bjarga úr kröggunum,
sein hún var komin í, og koma
henni í það fyrirmyndar-ástand, sem
hún nú er í. Síðan hann komst í
bæjarstjórn Ak. hefir hann sérstak-
lega látið sér ant um fjármál bæjar-
ins og mun eiga drýgstan þáttinn
í því, liversu farsællega að bærinn
komst yfir fjárkrepputímana og
hversu vel hánn er stæður nú, í
hluffalli við aðra kaupstaði lands-
ins. Hann hefir útvegað bænum
lán á mestu peningakrepputímun-
um með langtum betri kjörum en
bæði bankarnir íslenzku og íslenzka
ríkið gátu náð fyrir lántökur sínar,
um sama leyti. Og yfirhöfuð má
segja um R. Ó., að hann hafi verið
sá bæjarfullfrúinn, sem umsvifamest-
ur hafi verið í bæjarsfjórninni hin
síðari árin og jafnframt maðurinn,
sem reynst hefir bæjarbúinu helzta
hjálparhellan hvenær sem á hefir
reynt. Hann hefir hvervefna sýnt
sig — bæði í einka og opinberri
starfsemi — sem afburða atorku-
mann og góðan dreng, og þeir
verða ekki margir, sem leika lífs-
feril R. Ó. eflir honum — þvílangt
er sporið úr fátæka unglingspiltin-
um R. Ó., sem fór tómhentur úr
föðurgarði fyiir næstum 40 árum
síðan og í R. Ó. eins og kringum-
stæðum nans er háttað í dag.
Um Halldór Friðjónsson er líkt
að segja og R. Ó., að ekki mun
auðurinn hafa fylgt honum úr föð-
urgarði. Með tilstyrk ættmenna
sinna mun hann þó .hafa fengið
sæmilega undirstöðumentun, fyrst
við Ólafsdalsskóla og síðan við
Gagnfræðaskólann hér. Frá þeirri
skólaveru mun heimili hans aðallega
hafa verið hér á Akureyri, eða um
20 ár. Hvað hefir H. F. afrekað
fyrir sjálfan sig eða bæjarfélagið á
þeim tíma? Hvar hefir atorka hans
og dugnaður sýnt sig? Það eina,
sem er áberandi, er það, að hann
hafi litið jaá menn öfundaraugum,
sem tekist hefir að komast áfram í
veröldinni betur en honum sjálfum
— og reynt með öllu móti að hafa
niður af þeim skóinn og gera þá
tortryggilega í augum fjöldans.
Flann hefir reynt að naga sundur
þær rætur, sem þjóðfélag vort bygg-
ist á og vakið glundroða og sundr-
ung hvar sem hanh hefir nærri
komið. Fjármálaviti er hann ger-
sneyddur, og þó hann sé búfræð-
ingur, þá munu víst fáir búskussar
meiri i þessum bæ en hann. En
maðurinn er óheimskur og hefir
sennilega hugsjónaauð nokkurn, þó
aðfenginn sé. En þær hugsjónir
eru eins fjarlægar hinu praktiska lífi
og tunglið er sólinni, og rnenn af
því taginu eiga síztir allra erindi í
bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar.
En hvað finst kjósendunum?
«9
Kosninga-
molar.
Bolsar.
Halldór Friðjónsson og Elísabet
Eiríksdóttir eru bæði meðlimir í
Kommúnistafélaginu hér í bænum,
bæði bolsar. Verði þau kosin í
bæjarstjórnina, munu þau gera sitt
ítrasta til þess, að gera bæjarbúið
að tilraunastöð fyrir hugsjónir og
kenningar þeirra erlendu byltinga-
manna, er mesta ógæfu hafa leitt
yfir þjóðirnar. Dæmin eru deginum
ljósari og til þess eru vítin að var-
ast þau.
Dómuv jafnaðarmannsins.
HjalmarBranting.stjórnarfonuaður
Svíþjóðár og' helzti jafnaðarmanna-
foringinn, sem uppi er á Norður-
löndum, sagði nýlega í ræðu, að
kommúnistarnir — bolsarnir — væru
eiturnöðrur á þjóðfélagslíkamanum.
— Ætla Akureyrarkjósendur að
hleypa þeim inn í bæjarstjórnina í
dag?
Sólskinsbletturinn.
ísafjörður er sólskinsblettur kom-
múnistanna íslenzku. Peir hafa verið
þar við völd í nokkur ár og verið
kenningum sínum trúir í ýmsu. —
Og hver hefir svo árangurinn orð-
ið? Bærinn* sem var vel stæður,
er þeir komust til valda, er nú í
botnlausum skuldum, eignir hans
allar og tekjur lians að mikiu leyti
veðsettar fyrir skuldunum, og út-
svörin, sem skattgreiðendurnir verða
að borga, eru langsamlega þau
hæstu á öllu landinu. T. d. eru út-
svörin, sein lægstu gjaldendurnir,
verkamenn og vinnukonur, þurfa að
gjalda, þrisvar sinnum hærri upp og
ofan en hér er venjan. Regar skatt-
greiðendur Akureyrarkaupstaðar
greiða rúm 100 þús. kr. í aukaút-
svör, verða skattgreiðendur ísafjarð-
ar, sem þó eru talsvert færri, að
greiða rúm 300 þúsund krónur.
Ætli að svipað myndi ekki verða
uppi á teningnum hér, ef bolsarnir
næðu völdum í bæjarstjórninni?
Vilja kjósendur bæjarins steypa hon-
um í sama foraðið og ísafjörður er
kominn í?
Isafjarðarkosningin.
Bolsarnir hér á staðnum eru
mjög hreyknir yfir því, að skoðana-
bræður þeirra hafa nýlega sigr-
að við bæjarstjórnarkosningarn-
ar á ísafirði, fengu tvo kosna af
þreniur. Á tímum neyðarinnar er
brauðveitandinn oftast sigursæll, og
eins og nú er komið á ísafirði, er
bæjarstjórnin þar — bolsarnir - helztu
atvinnuveitendurnir. Hún hefir með
óstjórn sinni og álögum lamað svo
aðra atvinnurekendur að flestir þeirra
hafa því sem nær lagt árar í bát.
Alþýðufólk á Akureyri! Forðið
bænum ykkar frá að komast í sömu
ógöngurnar og ísfirð. eru komnirí.
Kjósið C-listann!
00
Enn um bókasafnið.
í 1. tölubl. D gs segir bókavörður
Amtbókassfnsins á Akureyri það ósatt,
að útiánsieglur safnsins Hafi verið
b otnar. því vil eg svara með nokkr-
um athugasemduni.
1. Titilmiðar a'ttu að fylgja hverri bók,
og lántakandi að rita nafn sitt á
hann og skílja hann eftir sem kVitt-
un. í vetur var vanrækt að nota
þessa miða. í fyrstu, meðan þeir
voru notaðir, vantaði mjög víða á
þá áitöl og mánaðardaga, þegar bók-
untim var skilað eða þær lánaðar.
2 Viðskiflaskrá átti að r ta fyrir hvern
lántakatida, þar sem innfærðar væru
þær bækur, er hann fengi að láni,
og mánaðardagar, þegar bækur
væru lánaðar og skilað aftur. Van-
rækt hefir verið að fullnægja þessu.
3. Á kvitlanamiða fyrir bókum var
Bliofl ekki hægt að sjá, hvaða bæk-
ur höfðu verið lánaðar, sumstaðar
vantaði bókaheiUn . alveg, aðeins
sett tala bóka, sem lántakandi hafði
fengið.
4. Bókaverði var fyrirsett að hleypa
mönnum ekki inn i aðalbókasafnið
við útlán; þetta kannast hann við
að hafa vikið frá, þykist bókavörður
þar íylgja amerískum reglum en
gleynrir því, að vér mfndarmenn
alls eigi vildum taka þessar regl-
ur upp hér, af ótta við að röðin
myndi ruglast á bókunum, og dýr-
mætar bækur f safninu ef til vill
glatast.— En vér höfum farið milli-
veg, þar semhejll hópuV af ágætum
fræðibókum, tímaritum, íslendinga-
sögur og fl. er í opnum hillum á
les-tratsal safnsins, er bókanotendur
geti blaðað í eítir vild, þegar lestr-
arsalutinn er opinn.
Retta, sem hér er vikið að, er
þungamiðjan í útlánsreglunum, og það
er ekki á neins manns færi að halda
safninu í fullri reglu, nema þeim sé
ræk lega fylgt.
Ak. 6. jan. 1925.
Quðin. G. Bdrðarson.