Íslendingur - 27.03.1925, Qupperneq 3
ISLENDINOUR
3
„Hvítir fuglar.“
Með þessari fyrirsögn birtist fyrir
skömmu grein í íslendingi, eftir Guðm.
Friðjónsson. Minnisl hann þar tveggja
marina, Jóns á Krossastöðum og Magn-
úsar á Grund, sem bera ellina afbrigða
vel. Þegar eg las grein skálds'ns á
Sandi, flaug í hug minn »hvftur fugl,«
sem eg álít, að ekki sé rétt að Iáta
óget ð, þegar þeirra er minst, sem
bjóða elli byrgin.
Nágranni minn, Einar í Hraukbæjar-
koti, er 87 ára gamall. Hann er þrek-
legur á velli, gamli maðurinn, og bein-
vaxinn. Heyrnin er óbiluð og sjónin
allgóð. Hann er skýrleiksmaður, ræð-
inn og glaðsinna. Fríður sínum hefir
hann verið á yngri árum. Ber þess
enn glögg merki. Ekki hefir Einar
sett svartan blett á tungu sína með
Ijótu orðbragði. Blót er honum ó-
tamt. Og í allri breytni sinni hefir
hann verið grandvar maður.
»Guð er þar sem bóndinn er að
plægja harðan akurinn og þar sem
vegagerðamaðurinn mylur grjótið,« segir
Rabindi^nath Tagore. Einar hefir
plægt harðan akur bóndans alla sína
löngu æfi. Iiann hefir unnið frá
morgni til kvölds. Sjaldan mun hann
vakað hafa fram yfir miðnættið við fá-
nýta gleði og sofið af sér dýrð morg-
unstundarinnar. Ekki hefir Einar kvelli-
sjúkur verið. Hann heíir lifað óbrotnu
lífi og haft lííil kynni af kræstum mat
og víni. En svelgt heíir hanní drjúgum
teygum hreina útiloftið og sólin bles;-
uð hefir signt hann margar^ daginn.
Síðastliðið sumar vann Einar að
heyskap frá morgni til kvölds. Stóð
hanu við orfið sitt hverju sem viðraði.
Var það vel gert af manni hátt á ní-
ræðrsaldri.
•Falls er von af fornu tré«. Kj rrnvið-
irrnr falla. Hvað vex upp i' þeirra stað?
Guðrún Jóhannsdóttir,
Ásláksstöðum.
oo
K v i 11 u n .
Pað hefir fokið í rifstjóra Dags útaf
srnágrein, sem eg skrifaði í 12. tbl.
Verkamannsins, með fyrirsögninn »Hvar
á hælið að standa«. Ritstjórinn sendir
mér svo tóninn í blaðinu í dag, með
þeirri ógætni sem honum er svo töm.
Hann telur greinina vera »kersknis-
greiti«, sem sé rituð af óvildarhug til
sín út af þessu tnáli, telur hana vera
skætingsgrein, sern beri mark hreppa-
pólitíkurinnar.
Ef að. þessi grein mín á þennan
dóm skilið, hlyti þá flestar þær grein-
ar, sem ritstjórinn hefir skrifað, síðan
hann kom til Akureyrar að dæmast
kersknisgreinar. Tilefni greinar minn-
ar var það að rilstjórinn hefir, með
með nokkurri frekju, haldið fram á-
kveðnum stað, sem hælið ætti að standa
á. Fanst mér, sem mörgum öðrum,
að hér væri í meira lagi fljótfærnislega
af stað farið af manni, sem búið var
að stinga uppá í heilsuhælisnefndina,
en sú nefud hlýtur að hafa mikil áhrif
á það, hvar hælið er sett n’ður. Retta
staðarval ritstjórans varð því brátt að
umtalsefni fjöldans og um leið að
nokkru áhyggjuefni. Menn vissu að
maðuiinn var metnaðargjarn, og kapp-
samur með að »agitera« fyrir þeim
st»ð, sem hann sjálfur hafði fundið upp.
Hann vissi einnig að hann hafði góða
aðslöðu til að hafa áhrif þar, sem hann
komst í nefndina og hafði þar að auki
blað, sem hann nú notar til að berja
á þeim mönnum, sem láta í ljósi, að
L*eir hafa ótrú á þessu vali hans.
Regar ritstj. var búinn að ákveða
staðinti, fanst mér sanngjarnt, að hann
upplýsti það, í því blaði sem hann
var ritstjóri fyrir, hvað þessi staður
hefði til síns ágætis. En í staðinn
fyrir að verða við þessari sanngirnis
kröfu minni, fer hann í skammir og
brígslar mér um, að eg vilji gera
heilsuhælismálið að persónulegu óvild-
armáli, og eru slíkar ásakanir hvorki
viturlegar né vinsamlegar. Rá gaf gie n
sú sem eg skrifaði í Veskamanninn
ekki minsta tilefni til þess, -að álíta,
að þar væri hreppapólitík á férðinni,
og hlýlur því sú staðhæfing rilstjórans
að byggjast á því ál-ti, sem liann hefir
á þeim manni, sem hann eignaði grein-
ina, en ekki greininni sjálfri, því í henni
var lýst báðum stöðunum, sem þá
heyrðust tilnefndir, sem gölluðum, en
hvorugum haldið fram af mér, aðeins
lauslega skýrt frá umsögn Rafnars læknis
um staðinn. Mín sök í þessu máli
er þá sú, ef nokkur er, að það rná ef
til vill skilja það svo, að eg hafi í
áðuritnefndri grein ofurlítið skopast
að rs'tjóranum, en það sem það var
alveg græskulaust og meinlaust, datt
mér ekki í hug að hann færi að stökkva
upp á nef sér útaf því, og mig undrar
það að hann skuli ekki þola slíka
smámuni, þegar hann sjálfur er ný
búinn að skrifa lúalega og illkvitnis-
lega árás á Steingrím héraðslæknir, og
er þó sannarlega ekki hægt að sjá, að
tilefnið hafi verið mikið. Ekki annað
en það, að hann lét í ljós>, að ekki
væri víst að þessi útvaldi staður ritstj.
væri nolandi. Telur læknirinn, að í
grend við bæinn sé nóg af hentugum
stöðum og ræður til að einn af slík-
um stöðum verði tekinn. Rað skal
hér látið liggja milli hluta hversu heppi-
legar tillögur læknisins eru. En að
héiaðslæknir Eyjafjarðarsýslu megi ekki
láta álit sitt upp um það, hvar heilsu-
hælið væri bezt sett, fyrir það, að það
kemur í bága við fyrirætlanir ritstjóra
Dags, virðist í meira lagi frekjulegt.
Annars ætla eg ekki að fara að bera
skjöld fyrir Steingrím læknir, hann
þarf þess ekki með. En eg bendi á
framkvæmdir ritsljórans, t:l að sína,
hversu feikilega óhygginn og ógætinn
hann er, að gera lelk ti! að stofna til
sundrurigár í jafn viðkvæmu máli.
Reyndar höfðu nú flestir búist við því,
að þeir, sem komu sér í þessa heilsu-
hælisnefnd, færu ekki opinberlega að
halda fram neinum stað alveg að ó-
rannsölcuðu máli. En ritstjóri Dags
byrjar á því, á hverju setn hanii kann
nú að enda á. Frekja þessi og bægsla-
gangur ritstjórans gelur aldrei orðið
heilsuhælisriiálinu á nokkurn hátt að
liði, þvert á móti, og er hin mesta
furða, að nefndin skyldi ekki stinga
upp í þennan samiiefudarmamr sinn á
meðan rannsókn stóð yf r. Rá notar
'hanu tækifærið til að hnjóða í ritsljóra
Verkamannsins fyrir afskiftaleysi af
máiinu«.
Eti ritstjóri Verkamannsins getur þó
hrósað sér af því, að hann hafi ekki
á nokkurn hátt spilt fyrir því, en það
getur ritstjóri Dags því miður ekki.
Fljótfærir og ógætnir ofstopamenn
eru ekki líklegir til að ráða heppilega
fram úr þeim málum, sem þarf að
hafa »heill ófæddra kynslóða fyrir
augum.
Akureyri 19. marz 1925.
Athugugull.
•■'<iiiin>--'iiiiii„ .........<miiii«"iiiM
BRÆÐURNIR ESPHOLIN
fyrirliggjandi:
Súkkuluði
Kaffibætir
Makkaroni
LÍNUVERK og
Titan-hvíta
Skilvindur
Prjónavélar
Ö N G L A R.
Allskonar
'í
nauðsynjavörur,
þar á meðal flest sem þarf til
skipaútgerðar
nýkomið
hf. Carl Höepfners-verzlun.
Or heimahögum.
Skriðufall. A miðvikudaginn í fyrri viku
féll snjóskriða úr fjallinu fyrir ofan bæinn
Úlfá, sem er annar fremsti bærinti í Eyja-
íirði, og rann ylir túnið. Sópaði hún á
burtu hesthúsi og fjárliúsi. Tókst að bjarga
hestunum, en um 20 kindur fórust. Bónd-
inn á Úlfá heitir Jóharm Jósefsson og hefir
hann orðið fyrir miklu tjóni.
Á skiðum yfir Örœfi. Með íslandi síð-
ast komu hingað 4 íþróttamenn úr Reykja-
vík, er höfðu sett sér það markmið að
fara á skíðnm suður aftur. Lögðu þeir
upp í för þessa 19. f. m. upp frá Tiörnunr
í Eyjafirði og var ferðinni heitið suður
Arnarfellsveg og niður í Hreppa. Hvernig
að skíðamönnunum hclir reitt af hefir
enn ekki frést, en vonandi hefir ferðalagið
gengið þeim að óskuni. Mun þetta t fyrsta
sinni sem rnenn hafa farið á skíðum yfir
öræfi landsins og er það hreystilega af sér
vikið um þetta leiti árs.
Aths. ritstj.
Framanrituð grein tiefði belur ált
heima í Vérkarnanninum en í ís!., en
þar sem höf. hennar hvað hana koma
tyrir svo »fárra augu sem helzt æltu
að lesa hana, kæmi hún í Vvn.«, vildi
ritstj. ísl. ekki amast við henni, en
vill taka það fram, að hann er
í aðalatriðum samdóma grein Jónasar
Porbergssonar, þeirri er birtist hér í
blaðinu, og skoðar hana hvorki »lúa-
eða illkvitnislega árás á Stgr. héraðs-
læknir«, heldur réltmæta ofanígjöf til
þess háa herra fyrir vítaverðan hringl-
andahátt í heilsuhælismálinu. Annars
er ritstj. ísl. þeiirar skoðunar að heppi-
lcgast sé, að sem minst sé deilt um
heilsuhæhsmálið í blöðunum, að minsta
kosti ekki á þessu stigi þess og mun
breyta samkvæmt þvi.
Góð stofa
handa einbleypum til leigu
í B'rekkugötu 1.
Rafveitan og Gefjun. Á bæjarstjórnar-
fundi á þriðjudaginn var rafvcitu- og
Gefjunarmálið svokallaða til umræðu.
Eftir langar umræður var svohljóðandi til-
laga frá Jakob Karlssyni samþykt: »Upp-
kast það, að samningi milli Akureyrar-
kaupstaðar og klæðaverksmiðjunnar »Gefj-
un« um' vatnsnotkun úr Glerá, náðist við
að jafnframt stýflugarði við Rángárvelli
yrði lögð pípa niður í núveratidi stöðvar-
hús og settar þar upp nýjar vélar, sem
kosta mundu ca. 250,000 kr. En samkvæmt
nýfenginni kostnaðaráætlun, er gert ráð
fyrir að þær kosti 350,000 kr. eða að minsta
kosti 100 þús. kr. meira, en gengið var út
frá þegar samningstilraunir fóvu fram. Af
framangreindum ástæðunr og að fenginni
reynslu siðastliðinn vetur, sér bæjarstjórn-
in sér ekki fært eins og að sakir standa,
að ráðist sé í þessa viðbótarbyggingu,
enda telur ltkur til, að hægt sé ennþá að
auka vatnsrensli í Glerá að töluverðum
mun, og með þvi fullnægja vatnsþörf Gefj-
unnar, jafnframt því að afla rafstöðinni
meiri orku, og tryggja með því bæði fyrir-
tækin án tilfinnanlegs framhaldskostnaðar.
í sanrbandi við þetla vill bæjarstjórnin
reyna nýjar samningstilraunir við Gefjun,
viðvíkjandi vatnsréttinum í Glerá.« Ragnar
Ólafsson, sem er formaður Gefjunar,
greiddi ekki atkvæði um málið og heldur
eigi bæjarfógeti. ö bæjarfulitrúar greiddu
tillögunni nreðatkvæði og einn (8ig. Ein.
Hlíðar) var á móti henni, og tveir fjar-
verandi.
IDEAL SAPUDUFTIÐ
reynist b'ezt.
Caroline Rest. Umsjónarmannsstarfið við
Caroline Rest veitti bæjarstjórnin á síðasta
fundi, samkvæmt tillögu stjórnarnefndar-
innar, Halldóri Einarssyni frá Skógum.
Umsækjendur um starfann voru 18 talsins.
Mannalát. Á sunnudaginn lézt að
heimili sínu Hvammi í Hrafnagilshreppi
ekkjan Kristbjörg Halldórsdóttir, 70 ára
að aldri, var banameinið krabbi. Krist-
björg heitin var ekkja Guðlaugs Jónssonar
er utn mörg ár bjó rausnarbúi á Hvammi
og eru börn þeirra Jón Guðlaugsson bæj-
argjaldkeri, Halldór og Aðalsteinn bænd-
ur í Hvammi og Kristjana gift Tryggva
Björnssyni skipstjóra í Reykjavík. Krist-
björg heitin var hin mesta dugnaðar og
ágætiskona. Á þriðjudaginn 24. þ. m. and-
aðist Jóhannes Jósefsson bóndi á Gilsbakka
* Eyjafirði og á miðvikudaginn sonur hans
Jakob, er þar bjó með honum, báðir úr
lungnabólgu. Báðir voru þeir feðgar hinir
mestu atorkumenn og er að þeim mikil
eftirsjá.
Leiðrétting. I auglýsingu frú Sigríðar
Kristjánsdóttur í síðasta blaði stóð. »Sauma
fermingarhatta eftir máli« en átti að vera,
sauma framvegis hatta eftir mah. Petta er
kvenþjóðiu beðin að athuga.
Kvöldskemtun ætlar Hjúkrunarfélagið
Hlíf að halda næsta laugardagskvöld Fjöl-
breytt skemtiskrá.
MÓTORBATU R
til sölu. Báturinn er 36 feta langur,
Q1 /2 á breidd, um 6 feta djúpur.
Bátnnm fylgir skutulbyssa IV2 þml.
vídd með tilheyrandi skutlum og skot-
um, legufæri, segl, krufuspil og mót-
ordæla, sem pumpar 11 tonn á
klukkutímanum. í bátnum er 10 hesta
norsk Grey-vél. Báturinn er stokk-
byrtur úr Ú/2 þml. plönkum, eikarbönd.
Báturinn fæst keyptur með sérstöku
tækifærisverði, semja ber við
Jón Einarsson,
rakara, Akureyri.
Stór netabátur
til sölu með tækifærisverði.
R. v. á.
Prec.taxniöju Björns Jónssonar, Akuwyrt,