Íslendingur - 29.05.1925, Side 1
AKUREYtíAR BIO
Annan í Hvítasunnu kl. 5 síðd.
OLIVER TWIST
meistaraverk Charles Dickens, í 8 þátta kvikmynd. Aðalhlutverkið
leikur JACKIE COOGAN, drengurinn, sem nú er talinn
með frægustu kvikmyndaleikurum heimsins.
Ánnað Hvítasunnudagskv. kl. ð'/i. í síðasta sinn.
Hver er konan hans?
Miðvikudagskvöld kl. 8^/í:
ELDUR UM BORÐ.
Sænsk kvikmynd í 5 þáttum, aðalhlutverkið leika
Victor Sjöström og Jenny Hasselquist.
t
Stefán Stefánsson
frá Fagraskógi.
Hann andaðist á Hjalteyri aðfara-
nótt þess 25. þ. m. eftir 10 sólar-
hringa legu í Iungnabólgu. Hafði
verið á ferð hér á Akureyri en veikt-
ist á heimleið en komst aðeins til
Hjalteyrar, til tengdasonar síns Árna
Jónssonar frá Arnarnesi, er giftur
er Póru dóttur hans, og hjá þeim
andaðist hann, tæpra 02 ára gamall.
Stefán Baldvin Stefánsson, svo
hét hann fullu nafni, var fæddur 29.
júní 1863, að Kvíabekk í Ólafsfirði,
og voru foreldrar hans Stefán Árna-
son prestur þar og seinni kona hans,
Guðrún Jónsdóttir frá Brúnastöðum
í Fljótum. Tuttugu og tveggja ára
gamall útskrifaðist Stefán úr búnað-
arskólanum á Eiðum og fimm ár-
um síðar byrjar hann búskap í Fagra-
skógi, og bjó þar til dauðadags.
Pann 5. júní 1890 kvæntist hann
eftirlifandi ekkju sinni, Ragnheiði
Davíðsdóttir prófasts að Hofi Guð-
mundssonar og eignuðust þau 7
börn, 4 syni og 3 dætiú. Eru syn-
irnir: Davíð skáld, Stefán lögfræð-
ingur, Valgarður skrifstofumaður í
Reykjavík og Valdemar skólapiltur,
en dæturnar eru frú Póra, sem áð-
ur er getið, Sigríður og Guðrún;
eru hinar tvær síðarnefndu ógiftar.
Hjónaband þeirra Stefáns og Ragn-
heiðar var hið ástúðlegasta og heim-
ilið fyrirmynd í hverri grein.
Alþingismaður fyrir Eyjafjarðar-
sýslu var Stefán kosinn fyrst 1901
og átti þá sæti á tveim þingum;
féll fyrir Hannesi Hafstein 1903, en
náði aftur þingkosningu 1905, er
Klemens Jónsson, 1. þm. sýslunnar
lagði niður þingmensku. Sat Stefán
upp frá því á þingi, ýmist sem 1.
eða 2. þingmaður Eyf. þar til 1923.
Pingskörungur var Stefán ekki, en
hann var nýtur og samvizkusamur
þingmaður og kjördæmi sínu hinn
þarfasti. Munu samþingismenn hans
jafnan minnast hans með hlýhug og
virðingu.
Hreppstjóri Arnarnesshrepps var
Stefán í rúm 20 ár og sýslunefnd-
armaður um alllangt skeið, og for-
vígismaður héraðs síns var hann á
flestum sviðum. Er því hér til mold-
ar hniginn mætur maður og merk-
ur sem hin mesta eftirsjá er að.
«0
Stö rf
þingsins.
Frh.
Rœktunarsjóður íslands. Með
merkustu afrekum þingsins má vafa-
laust telja Iög um Ræktunarsjóð
íslands. Er tilgangurinn með lög-
um þessum að koma á fót láns-
stofnun fyrir landbúnaðinn, er veiti
hagstæð lán til lengri tíma. Má
eingöngu verja fé Ræktunarsjóðs-
ins til jarðræktar og húsagerðar á
býlum í sveitum, en þó sitja lán til
jarðræktar í fyrirrúmi. 'Ríkissjóður
leggur fram til sjóðsins eina miljón
kr. á ári, þar til hann er orðinn þess
megnugur að standa á eigin fótum,
en þessarar miljónar á að afla með
auknum tolli af útfluttum vörum.
Höfuðstóll ræktunarsjóðsins nemur
nú um 930 þús. kr. Hefir ríkissjóð-
ur undanfarið fengið vexti af sjóðn-
um, en nú á sjóðurinn að njóta
vaxta sinna sjálfur, og iríkissjóður
að endurgreiða vextina, sem runnið
hafa í hann, í árlegum greiðslum.
Pjóðjarðirnar falla og undir Rækt-
unarsjóðinn og einnig er honum
ætlað til viðbótar varasjóður 1. fl.
veðdeildar. Er ráðgert að eftir 10
ár verði sjóðurinn orðinn rúmar
þrjár miljónir krónur.
Lán úr Ræktunarsjóði má veita
gegn þessum tryggingum:
a. Gegn fasteignarveði með trygg-
ingu innan % af virðingarverði
veðsins, enda hvíli eigi veð-
skuldir til annara en opinberra
sjóða á eigninni á undan veð-
rétti þeim, er Ræktunarsjóður
fær. Ef umbætur þær, sem Ián-
ið er veitt til, eru gerðar á fast-
eign þeirri sjálfri, sem veðsett
er, skal heimilt að telja verð
umbótanna sjálfra til viðauka
við virðingarverð eignarinnar
óbættrar, án þess að ný virð-
ing á fasteigninni í heild fari
fram, eftir því sem nánar verð-
ur ákveðið í reglugerð sjóðsins.
b. Gegn afgjaldskvöð á býlum
leiguliða með lífstíðarábúð eða
erfðaábúð á þjóðjörðum, kirkju-
jörðum og öðrum jörðum rík-
isins, svo og á jörðum sveita-
félaga, enda sé lánið veitt leigu-
liða til umbóta á býlinu sjálfu.
Afgjaldskvöðin skal samsvara
árgjaldinu af Iáninu, og skal
hún haldast uns lánið er að
fullu greitt.
c. Gegn ábyrgð hreppsnefnda og
sýslunefnda, að áskildu lög-
niæltu samþykki æðri stjórnar-
valda.
Lántakendur samkvæmt b-liðþess-
arar greinar skulu hafa rétt til þess
að fá afgjaldskvöð þá, er þar um
ræðir, lagða á býli sín, eftir því, sem
nánar verður ákveðið í reglugerð
Ræktunarsjóðsins.
í stjórn Ræktunarsjóðs eiga sæti
3 menn, er ráðherra skipar, einn
framkvæmdarstjóri og tveir gæzlu-
stjórar. Skal að minsta kosti ann-
ar gæzlustjórinn hafa sérþekkingu
á landbúnaði.
Framkvæmdarstjóri hefir að byrj-
unarlaunum 4000 kr. á ári, er hækka
eftir 3, 6 og 9 ár um 300 kr., 300
kr. og 400 kr. upp í 5000 kr. Gæzlu-
stjórar fá 600 kr. ársþóknun hvor.
Dýrtíðaruppbót fá framkvæmdar-
stjóri og gæzlustjórar eftir sömu
reglum sem starfsmenn ríkisins al-
ment.
Útflutningsgjaldshœkkim. Lög um
breytingar á lögum nr. 70, 26. júní
1921 um útflutningsgjald o. fl., er
hér farið fram á að útflutningsgjald-
ið hækki úr l°/o upp í Vh°/o um
óákveðinn tíma, og rennur þessi
tekjuauki fram til ársloka óskiftur í
Ræktunarsjóðinn, en síðan að aU í
Landhelgissjóðinn en 'A í Ræktun-
arsjóðinn. Er því með þessum
tekjuauka hlaupið undir bagga með
báðum aðalatvinnuvegum lands-
manna. Tekjuauka Landhelgissjóðs-
ins er ætlast til að varið sé til rekst-
urskostnaðar fyrirhugaðs strand-
gæzluskips.
Verðtollurinn. Lög um bráða-
brigðaverðtoll á nokkrum vöruteg-
undum, framlenging og breyting á
þeim. Lög þessi gilda frá 1. júní
júní n. k. til ársloka 1926. Breyting-
in er aðallega fólgin í því, að toll-
flokkunin er þrennskonar í stað þess
að um eina — 20°/o — var áður
að ræða. Nú er tollurinn á skraut-
varning og síður nauðsynlegum vör-
um hækkaður úr 20°/o upp í 30°/°,
en lækkaður á nauðsynlegum vör-
um úr 20% niður í 10. AAikið af
vöruin er og enn í 20°/» flokkn-
um. — Er vöruflokkunin birt í
18. tbl. lsl. og mun ekki hafa breyzt
úr því. Frá 1. marz 1926 á hæsti
tollur að færast úr 30°/o niður í 20°/o
og miðflokkurinn úr 20% í 15°/o og
lægsti flokkurinn úr 100/o niður í 5°/o.
Ocngisviðaukinn. Heimild ríkis-
stjórnarinnar til þess að innheiinta
ýmsa tolla með 25% gengisviðauka,
framlengd til ársloka 1927.
Afnátn tóbakseinkasölunnar. Frv.
hefir áður verið getið hér í blaðinu.
Er tóbakseinkasalan upphafin frá
næstu áramótum, en til þess að
bæta upp tekjumissi ríkissjóðs er
tollur á öllum tóbaksvörum hækk-
aður, nema á óunnu tóbaki; er toll-
ur ákveðinn af nef- munn- og reyk-
tóbaki kr. 4,80 af kg., en af vindl-
um og vindlingum kr. 12,80 af
hverju kg.
Strandvarnarskip. Mestu varð-
andi fyrir sjávarútveginn af gerðum
þingsins er vafalaust Iögin um að
Landhelgissjóður íslands skuli taka
til starfa. Er áskilið, að ríkissjóður
endurg'eiði sjóðnum lán það, sem
fjármálaráðherra Framsóknar, Magn-
ús Jónsson tók í heimildarleysi úr
sjóðnum, að upphæð 600 þús. kr.,
og að keypt verði strandvarnarskip
á næsta ári.
Fiskifulltrúinn. Annað mál, sem
sjávarútveginn skiftir miklu eru lög-
in úr stofnun fiskifulltrúastöðunnar
á Spáni og Ítalíu. Laun fulltrúans
eiga að greiðast að ’/a úr ríkissjóði
en íslandshanki og Landsbankinn
greiða hina hlutina að hálfu hvor.
Lög um skráning skipa kveða svo
á, að engir erlendir menn eða fé-
lög megi hér eftir skrá skip sín hér
á landi og girða fyrir að innlendir
menn gerist »leppar« erlendra manna
eða útgerðarfélaga í því efni. Brot
á lögunum t. d. ef skip eru ólög-
lega skráð, varða 100—200 kr. sekt
á hverja brúttó smálest hlutaðeig-
andi skipa, en tilraun til þess að
sniðganga lögin, þó hún mistakist,
50—100 sektar á smálest. Skip er
að veði fyrir sektarfé og má gera
upptækt. Frumvarpið var lagt fyrir
þingið af fjármálaráðherra og gat
hann þess í framsöguræðu sinni,
að það væri borið fram »til að
tryggia innlendum mönnum afnot
fiskiveiðanna við strendur landsins,
og halda þeim handa landsmönnum
sjálfum, eftir því sem lög stæðu
ti!.«
Slysatrygoingar. Efni frumvarps-
ins var rækilega rakið í 17. tbl. ísl.
og komst það því nær breytingar-
laust gegnum þingið.