Íslendingur


Íslendingur - 10.07.1925, Qupperneq 3

Íslendingur - 10.07.1925, Qupperneq 3
ISLENDlNGUR Hí Hjartanlega þökkum við öilum, er auðsýndu okkur sam- 1 úð og hluttekningu við hið sviplega fráfall og jarðarför okkar ástkæru dóttur, Ölafar Valgerðar. Vogum, 3, júli 1925. Puríður Einarsdóttir. Pórhailur Hallprímsson. Pó að það sé óþrifaverk, að snerta við öðru eins andlegu svínadrafi eins og grein »Áheyranda« í Verkamannin- um 7. þ. m., þá ætla eg samt að fara um það »óféti« nokkrum orðum. Eg þykist ekki ganga að því grufl- andi hver sé höfundurinn. Skítug fingraför ógöfugs liugsunar- háttar sjást svo greinilega á henni, að aðeins örfáir menn hafa þau eins svört. Sannleikanum er þar svo misboðið, að réttsýnir menn, sem á fundinum sátu og ekki sjá alt í gegnum reyklituð og skæld klíkugleraugu, fyllast undrun. Lýginni er þar hreykt svo hátt, að menn væmir við. Greinin byrjar með þeirri höfuðlýgi, að íhaldsliðið hafi flúið af hólmi ger- sigrað kl. 3'/s uin nóttina og vörn þess hafi verið veik og skopleg. Líndal hafði snemma á fundinum lýst því yfir, að hann mundi ekki sitja á fundi þessurn nema til kl. 3, því mörgu væri að sinna, og þeir Jónas frá Hriflu og hann gætu talast við síðar. Hann talaði næstum eins lengi og Jónas og engir aðrir töluðu á fundi þessum nema eg í 15—20 mínútur. Virtist það nóg, að þeir hvor um sig töluðu hátt á fjórða tíma og hefðu allir átt að vera búnir segja það helzta á þeim tíma. Er það einkennileg græðgi í vissum mönnum, eins og Jónasi, að vilja fá heilar nætur tit þess að stæla við einn mann. Og leiðinlegt er að sitja undir slíkri þvælu og hlusta á menn segja sömu ásakanirnar oft á sama fundinum. það er alveg eins hægt að segja, að Jónas hafi runnið fyrir Líndal 1923, þegar hann (J.) sleit fundi kl. 3 með 8 manns á ræðuskrá og flest íhalds- inenn. En út af því var ekkert veður gert. Slíkir fundir verða einhverntíma að taka enda. Að segja Jónas betri ræðumann eða mann en Líndal þori eg að teija lýgi og er óhræddur að láta sérfræðinga rannsaka þá í þessu efni. Og miklu meiri slettur og brfgsl- yrði við hefir Jónas. Ummæli hans óviturleg og svívirðileg hljóma mér enn í eyrum, er hann sleit fundinum með þeim orðum, að Líndal væri margfaldur ósannindamaður, bleyða og sá mesti pólitíski ræfill, er hatm hefði fyrir hitt á æfi sinni. Er ekki orð- bragðið samboðið landskjörnum þing- manni og skólastjóra? Gréinarhöf. kallar ræður Líndals hrognagraut. En ræður Jónasar mætti kalla níðgraut og Hriflugorkúlur. Pó að Líndal talaði um að fá sér kaffi og fengi það, var ekki merkilegt. En á meðan Líndal er við kaffið, eys Jónas langmestu af skömmunum á hann. Annars bendir Jónas alt af á þann mæta mann eins og eitthvert úrþvætti. Þessi snjöllu umtnæli, sem greinarhöf. er að hæla J. fyrir, voru mestu fúk- yrðasamböndin og sýnir það innræti þeirra tnanna, sem dást að slíku. Það geta fleiri drepið menn en Sturla, sagði Jón Loftsson í Odda. Pað geta fleiri ausið úr sér óhróori á fundum og í blöðum en nú gera.J Til þess þarf ekki mikið vit, en þeim mun meiri fúlmensku. Og ef fúlmenska og dónaskapur á að verða mest virti eig- inleiki meðal þessarar þjóðar, þá fer hún norður og niður. Ef menn ætla alment að vera til altaris hjá sendi- boðum lýginnar og rógburðarins, þá verður fáment í kirkjunum innan skatns. Einn merkur maður, sem er vel kunn- ugur utanlands, sagði nýlega, að væri annað eins orðbragð viðhaft á fundum erlendis og hér á sér stað, væru íundir sprengdir eða ráðist á ræðumenn. Ummæli greinarhöf um mig, að eg sé notaður sem hrossabrestur til að reka menn af fundum með mælgi og vitleysu, skal eg ekki vera langorður um. Eg hefi talað á mörgum stjórn málafundum hér, en aldrei netna einu sinni á hverjum fundi og aðeins 15 — 20 mínútur í hvert sinn og má hver sem vill kalla það mælgi, Að 'rnínar ræður séu vitlausari en alment gerist, neyðist eg til að lýsa greinarhöf. lygara að. Eg hefi talað víða út um land og ýmsir hælt mér fyrir. Annars er það siður hinna vesælustu stjórnmála-horgemlinga að brígsla and- stæðingunum alt af um heimsku og mentunarskort, þó að þeir, sem brígslað er, séu bæði vitrari og mentaðri en rógberinn. Þetta sannast bezt á Líndal, þegar verið er að lofa vissa mentt, honum miklu síðri, á hans kostnað. í þeirri von að þið heyrið fljótlega frá mér aftur, legg eg svo frá mér pennann. Jóh. Sch. Jöhannesson, oo Or heimahögum. Skipulagsnejndin dvelur hér þessa dag- ana, og er að ganga frá ákvæðutn og á- ætlunum um skipulag kaupstaðarins. En það skipulag hefir verið unditbúið nieð mælingum á undanförnum sumrum. 1 skipuiagsnefndinnieru: Ouðjón Samúelsson húsagerðarmeistari ríkisins, Geir O. Zoéga vegamálastjóri og Guðm. Hannesson prófessor. Fimícikasýningar. Flokkur fimleikakvenna og karla, undir stjórn Björns Jakobssonar úr Rvík, hafa haldið þrjár sýningar í Sam- komuhúsinu við ágæta aðsókn og þóttu ágætar. Síðasta sýningrn var til arðs fyrir Heilsuhæli Norðurlands, og verðskulda flokkarnir þökk og heiður fyrir. Sórstúkuþingið stóð yfir daganafrá 29. júní til 4. júlí í Rvík. Framkvæmdanefnd Stórstúkunnar var endurkosin og situr því hér á Akureyri áfram. — Milli 70 og 80 fulltrúar sátu þingið. Embœtiisprófumv iðháskólann hafalokið: f læknisfræði: Karl Jónsson með I. eink. 183 st., Kristinn Bjarnarson 1. eink. 174 st., Ari Jónsson I. eink. 174 st. og Hannes Ouðmundsson l.'eink. 160 st. í lögfræði: Valtýr Blöndal með II. eink betri 102 st., Ingólfur Jónsson II. eink. betri 83*/o st., Kristján Þorgeir Jakobsson 11. eink. betri 76’/n st. og Sigurður Grímsson II. eink. betri 755/o st. — Jón Hallvarðsson lauk ekki prófi sakir veikinda. Mcistaraprófi í ensku hefir Árni Quðna- son lokið við Khafnarháskóla með hárri 1. einkunn. Rannveig Jónsdóttir símamær kom með Botníu frá úllöndum. $ Mannalát. 1. þ. m. andaðist í Hrísey frú Sóley Jóhannesdóttir, kona Jóns Sig- urðssonar vélfræðings, hin mesta myndar- og ágætiskona, rúmlega 30 ára að aldri. Var hún dóttir Jóhannesar Davíðssonar fyrrum bónda á Syðstabæ. Banameim hennar var tæring. Þá er nýlega látin á Helluvaði í Mývatnssveit Sigríður Jónsdóttir, ekkjajóns skálds Hinrikssonar og móðir Sigurður á Arnarvatni og þeirra systkina. Ennfremur er nýlega Iátinn bóndinn á Narfastöðum í S.-Þingeyjarsýslu, Jakob Jónasson, faðir Björns leikfimiskennara. 25 ára prestsafmœli hér í bænum átti séra Geir Sæmundsson vígslubiskup síð- astl. sunnudag. f tilefni af því var kirkjan skreytt með blómum við messugerð. ' Að lokiniii guðþjónustu var haldinn safnaðar- fundur. Þar ávarpaði bæjarfógeti sóknar- prestinn og afhenti honurn vandað gullúr og festi frá sóknarbörnum hans sem við- urkenningu fyrir langt og mikið starf þeirra á meðal. Hefir séra Geir verið einkar viusæll af þeim— og það að maklegleikum. Hjúskapur. 30. júní síðastliðinn gaf sr. Haraldur Níelsson saman í hjónaband ungfrú Helgu Jónsdóttur hjúkrunarkonu við barnaskólann í Reykjavík og séra Jakob Kristinsson. Hjónavígslan fór fram á Þingvöllum. Stúdentar 1925. Máladeild (skólanemendur): Jörgen Pétur Hafstein 1. eink. (7.25). Davíð M. Þorvaldsson 1. eink. (6.98). Guðmundur Karl Pétursson I. eink. (6.95). Guðmundur Ólafsson I. eink. (6.55). Sæbjörn Magnússon 1. eink. (6.40). Þorvaldur Blöndal 1. eink. (6.35). Pétur Benediktsson I. eink. (6.13). Arnljótur Jónsson I. eink. (6.11). Gunnar Þorsteinsson I. eink. (6.11). Gerður Bjarnhéðinsson 1. eink. (6.05). B. D. Kornelíus Haralz II. eink. (5.95). Eiríkur Benedikz 11. eink. (5.86). María Hallgrímsdóttir 11. eink. (5.73). Ulf J. Sk. Jónsson II. eink. (5.65). Haraldur Sigurðsson 11. eink. (5.64). Þorsteinn Ö. Stephensen II. eink. (5.16). Kristján Grímsson II. eink. (4.90). Jón Guðmundsson III. eink. (4.25). U t an s k ó1a: Einvarður Hallvarðsson I. eink. (6.78). Björn Leví Jónsson 1. eink. (6.76). Jónatan Hallvarðsson I. eink. (6.63). Steindór J. Steindórsson 1. eink. (6.58). Þorsteinu R. Stefánsson I. eink. (6.44). Björn Þ. Halldórsson I. eink. (6.18). Arngrímur Björnsson II. eink. (5.90). Benedikt Stefánsson if. eink. (5,60). Hákon Guðmundsson II. eink. (5.30). Árni Guðmundsson III. eink. (4.41). Valgeir Helgason III. eink. (4.41). Sigurjón Guðjónsson III. eink. (4.27). Stœrðfrœðisdcild. (skólanemendur): Hjálmar Vilhjálmsson I. eink. (6.79). Torfi Jóhannsson I. eink. (6.77). Gísli Halldórsson 1. eink. (6.69). Bergsveinn Ólafsson 1. eink. (6.44). Leifur Guðmuridsson I. eink. (6.40). Gunnl. Briem Einarsson II. eink. (5.75). Kjartan Jóhannsson II. eink. (5.52). Jóhannes Áskelsson II. eink. (4.78). Utanskóla: Valdimar Ólafsson Briem II. eink. (5.53). Tilkynning um Ameríkuferðir. Rvík 3. júní ’25. FB. Eimskipafélag fslands hefir tikynt Fréttaslofunni, að það hafi tekið að sér umboð fyrir Canadian Pacific Railway Co., og geti því selt áfram- haldandi farseðla frá Reykjavík til hvaða staðar sem er í Canada. Sömuleiðis geta Vestur-íslendingar fengið áfram- haldandi farseðla frá Canada til íslands. Með þessu er þó á engan hátt verið að stuðla að Ameríkuferðum. Til- gangur félagsins er aðeins sá, að gefa fólki, sem á annað borð ætlar sér þangað, kost á ódýrari og fljótari ferð, án þess það þurfi að leita til erlendra skipafélaga tii þess að komast þangað. — Fargjaldið greiðist í einu lagi og er innifalið í því: Fargjald og fæðis- peningar á 2. farrými frá Rvík til Leith, járnbrautargjald Leith-Glasgow, dvalarkostnaður í Glasgow, meðan beðið er skipsferðar þaðan, fargjald og fæðispeningar á 3. farrými með skipum C. P. R. frá Glasgow eða St. John, fargjald með járnbraut (Colonist Class), frá Quebec eða St. John til ákvörðunarstaðar. Ferðafólki er leiðbeint eftir þörfum í Englandi af mönnum frá C. P. R. félaginu og býr fólkið í gistihúsi fé- lagsins. Bið í Englandi er sjaldnast nema fáir dagar. Fargjaldið er sem stendur $122,50, frá Rvík til Quebec. — Járnbrautarfar- gjald frá landgönguhöfn í Canada til ákvörðunarstaðar er t. d. til Winnipeg $25,00, Saskatoon $30,40, Edmonton $33,40 og Vancouver $46,25. Nánari fargjaldsupplýsingar má alt af fá á aðalskrifstofu Eimskipafélags ís- lands. Með núverandi gengi dollars gagnvart sterlingspundi verður fargjald írá Rvík til Winnipeg kr. 815,20. — Þetta fargjald er auðvitað háð gengis- breytingum. Vottorð um læktlisskoð- un verða farþegar að hafa og vegabréf. Áritunar af breska konsúlnum á þau er ekki krafist. Enn sem komið er verða farþegar að láta skrásetja sig í Rvík, en vegna erfiðleika á því fyrir fólk norðan og austanlands verður reynt að fá því breytt, svo fólk geti einnig fengið farseðla og látið skrásetja sig á afgreíðslum Eimskipafélags íslands á Akureyri og Seyðisfirði. Eimskipa- félagið getur og selt farseðla til hvaða staðar sem er í Bandaríkununum, á C. P. R. skipunum, og með járnbraut frá landgönguhöfn. Er í ráði að ann- að félag taki að sér þann flutning yfir New York og verður því skýrt nánar frá þvi síðar og ennfremur þeim regl- um, sem gilda um flutning á farþeg- um til Ameríku (U. S. A.) QO Útfluttar afurðir Útflutningur íslenzkra afurða í júní hefir orðið fyrir 3 391 083 kr., þar af verkaður fiskur fyrir 1 921 296 og óverkaður fyrir 173 975. Sam- tals útflutningur á 6 mánuðum fyrir 25 471 423 kr. HREINAR FL0SKUR kaupir Áfengisverzlun Rlkisins. Verzl. Hamborg: Yfir 20 tegundir kjólatau, hvítir og misl. sængurveradúkar, Boldang mjög gott, Rúmteppi. S í r ó p mjög gott fæst í HAMBORG. Karlmannaíatnaður í stóru úrvali, etinfremur Vinnufatnaður. HAMBORG.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.