Íslendingur


Íslendingur - 28.08.1925, Síða 1

Íslendingur - 28.08.1925, Síða 1
Talsírni 105. Ritstjóri: Gunnl. Tr. jónsson. Strandgata 29. XI. árgangur. Akureyri, 28. ágú.st 1925 37. tölubl. UUREVRAR BIO Laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9: Símritarinn 5 þátla kvikmynd, tekin eftir sögu Knut Hamsun’s „Sværmere“ og leikin af nafnkunnum sænskum leikurum. Miðvikudags- og fimtudagskvöld kl. 9: PENROD og SAM J 7 þátta kvikmynd, eftir hinni frægu sögu Booth Tarkingstons með sama nafni. Skemtir jafnt fullorðnum sem börnum. K æ I i s k i p og f r y st i h ú s. i. ísiendingur flutti í vetur útdrætti úr nefndarálitum meiri og minni hluta kæliskipsnefndarinnar, er lögð voru fyrir síðasta þing. Báðir nefnd- arhlutar viðurkendu, sem kunnugt er, að það hefði afar mikla þýðingu fyrir landbúnaðinn, að hægt væri að flytja út kælt eða frosið kjöt, en þá greindi á um það aðallega, hversu fljótt hægt v'æri að koma því í fram- kvæmd. Vildi minni hlutinn að þeg- ar yrði ráðist í að kaupa eða byggja skip, en meiri hlutinn vildi fara að engu óðslega. Taldi réttara að leigja skip fyrst í stað og gera til- raunir- með útflutning á frosnu kjöti í allstórum stíl með sæmilegum styrk frá Alþingi, áður en horfið væri að skipakaupum. Er til kasta þingsins kom, félst það á tillögur meiri hlutans í þess- um efnum, Var talið heppilegast, að Samband íslenzkra samvinnu- félaga beitti sér fyrir þessum til- raunum og samþykti þingið í því augnamiði svolátandi tillögu frá fjárveitinganefnd neðri deildar: »Stjórninni er heimilt að greiða tjón það sem verða kann á tilraun- um Samb. íslenzkra samvinnufélaga að senda frosið kjöt á erlendan markað, haustið 1925 miðað við verð það, sem framleiðendur fá á útflutningshöfn. Ennfremur halla þann, er verða kann á því, að taka skip á leigu til útflutnings. Tilraun- in sé framkvæmd í samráði við Iandsstjórnina.« Sambandið er þannig trygt gegn allri áhættu af tilraununum og er það ekki nema rétt og sjálfsagt. Gangi tilraunirnar vel, og það komi í Ijós, að kjötsalan verði arðmeiri á þann hátt, en hún hefir verið þegar kjötið hefir verið saltað eins og hingað til hefir átt sér stað, ber að gera gangskör til frekari fram- kvæmda. II. Minni hlutinn segir í áliti sfnu, að útflutningur héðan af kældu eða aðallega frystu kjöti, geti aldrei orð- ið tryggur, né framkvæmanlegur í stórum stíl og alment, nema því aðeins, að frystihús séu reist á helstu kjötútflutningshöfnunum, og telur ef vel sé, þurfi að koma upp 11—13 frystihúsum. En minni hlutanum dylst ekki, að kostnaðurinn verði mikill. Hann leggur þó til, að Al- þingi heimili ríkisstjórninni að lána fé úr ríkissjóði árin 1926—1929, bæði árin tneðtalin, alt að 100 þús. kr. á ári til þess að reisa íshús. — Pingið félst á þessa tillögu, minsta kosti hvað næsta ár snerti og sam- þykti svolátandi heimild, sbr. 22. gr. fjárlaganna: »Heimilt er stjórninni að lána úr viðlagasjóði, ef fé er fyrir hendi í honum, alt að 100,000 kr. ti! þess að reisa íshús á kjötflutningshöfn- um, með þessum skilyrðum: a. Lánin séu veitt sýslufélögum gegn ábyrgð þeirri, er lands- stjórnin tekur gilda: þó ekki hærri en 2/s kostnaðar. b. íshúsin séu reist við þær hafnir, sem að dómi hlutaðeigandi sýslunefnda eru bezt fallnir til vera miðstöð til útflutnings á frystu kjöíi í héraðinu, en at- vinnumálaráðherra sker úr á- greiningi. c. Full skilríki liggji fyrir um að að vel og tryggilega sé frá öllu gengið um hús og áhöld, enda hafi stjórnarráðið samþykt á- ætlun og teikningar. d. Vextir eru 50/o, lánin afborgun- arlaus fyrstu 5 árin, en skulu svo greidd með jöfnum afborg- ununr á 30 árum.« Verði þau skiiyrði uppfylt, sem hér eru fram tekin, má nokkurnveg- inn ganga út frá því sem gefnu, að lánveitingunum verður haldið áfram yfir það tímabil, sem minni hlutinn tilgreinir. Minni hlutinn lét fylgja áliti sínu skýrslu um kostnað við byggingu frystihúsa og er hún þannig: 1. Frystivélar. Frysta Halda Verö á sólarhring. frosnu. kr. Dilkakrp. Krp. Þús. 100 500 -2000 c. 13—15 200 3000—4000 - 22—24 500 5000 - 45-50 500 10000 - 48—53 1000 5000 - 75—85 1000 10000 - 80-90 Verð þetta er miðað við að vél- arnar séu uppsettar í Rvík og að mestu tilbúnar til notkunar. í þess- ari áætlun er gert ráð fyrir því, að vélarnar gangi fyrir rafmagnsmótor, en t. d. olíumótor, sem framleiðir hlutfallslega orku, num allmiklu dýrari. II. Frystihús. Vandað fullgert frystihús fyrir kælivélar, bygt úr steinsteypu, þiljað an innan með sagtróði og asfalt- pappa í útveggjum, er hefði Mundi kosta Rútn fyrir sem næst: Kroppa Kr. 2000 ................... 20.700.00 3000 ................... 31.000.00 5000 ................... 51.700.00 8000 .................. 82.000.00 10000 ................... 103.000.00 15000 ................... 157.000.00 í þessum upphæðum er gert ráð fyrir geymslurúmi í hverju frysti- húsi, er taki hina ákveðnu kroppa- tölu, og að auki kælirúmi er taki jafnmarga kroppa og frystirinn. Frystihús gert á venjulegan hátt, með ísfrysti og ísgeymsluhúsi, er hafði. Mundi kosta Rúm fyrir sem næst Kroppa Kr. 2000 28.200.00 3000 48.300.00 5000 ..■ 70.500.00 8000 112.000.00 10000 141.000.00 15000 211.500.00 Skýrslan er gerð samkvæmt upp- lýsingum frá sérfróðum mönnum og því talin ábyggileg. Dómarnir um síðasta þing rnunu misjafnir, eins og gengur og gerist, en eitt verður þó ekki af því dreg- ið hvað svo sem öðru líður, og það er, að fyrir landbúnaðinn ís lenzka hefir það gert meira en nokk- urt annað þirig síðaii ára: Ræktun- arsjóðurinn, lánheimildirnar úr Bjarg- ráðasjóði og samþyktirnar í kæli- skips- og frystihúsmálinu eru þess óræk sönnun. Landbúnaðurinn hefir því fulla á- stæðu til þess, að vera ánægður með gerðir þingsins að þessu sinni ao Pað er viðurkent meðal annara þjóða, að það sé góður búskapur að geta tekið sem mest hjá sjálfum sér og þurfa sem minst að sækja til annara, og leiðandi menn þjóð- anna eru sífelt að brýna það fyrir þjóðsystkinúm sínum, að fylgja þessari búskaparreglu,, svo langt sem komist verði. Þegar maður at- hugar verzlunarskýrslur íslands, þá verður manni það aflur á móti ljóst, að þessi búskaparregla er langt frá að vera þar gildandi, því að þar sést beriega að hingað er mikið flutt inn af ýmsum vörum, sem alls engin ástæða virðist til að flytja þyrfti inn, þar sem þjóðin er þess fullfær að uppfylla allar sínar þarfir lrvað þær snertir, og meira til. Má hér til nefna: allskonar kjötmeii, nið- ursoðið fiskmeti, feitmeti, egg og hey. Pær eru t. d. næsta eftirtekta- verðar, tölurnar ';úr verzlunai;skýrsl- unum fyrir árið 1922, sem hér fara á eftir. Pað ár var fiutt inn: Saltað kjöt og reykt 18 smál. Pylsur 8 — Niðursoðið kjöt 13,8 — Flesk 3,14 — Niðursoðið fiskmeti 20,4 — Smjörlíki 234,5 — Smjör 14,6 — Svínafeiti 31,2 — Ostar 93,2 — Egg 28 — Niðursoðin mjólk 361,2 — Kartöflur 2332 — Hey 173,6 — Eina verulega breytingin, sem orð- ið hefir á innflutningi þessara vöru- tegunda síðan 1922 er á smjörlík- inu. Innflutningur þess hefir að miklu leyti þverrað sakir þess, að innlendu smjörlíkisgerðirnar risu upp og náðu undir sig markaðinum. — Hinn mikli innflutningur á kartöfl- um er réttlættur af ýmsum með því, að það sé svo dýrt að rækta kart- öflur hér á landi, að það borgi sig ekki. En ekkert getur réttlætt að við flytjum inn egg og hey. Okkur er í lófa lagið að framleiða svo mikið af eggjum, að það ekki ein- asta nægi okkur sjálfum, heldur yrði einnig útflutningsvara. Og heyið; eru ekki óþrjótandi slægjur f landinu og kulnar ekki mikill hluti þeirra út ár- lega? Væri ekki búmannlegra að hagnýta eitthvað af þeim, heldur en að panla hey frá útlöndum. — Auk þess er heyinnflutningur hættulegur; geta borist með heyinu ýmsir hús- dýrasjúkdómar, svo sem munn- og klaufasýki, sem mikið ber á í Dan- mörku og Skotlandi, en þaðan fá- um við — og frá Noregi — mest af heyinu. Og hastarlegt verður það að kall- ast, að inn skuli flutt svo tugum smálesta skiftir af kjöt og fiskmeti, og svo hundruðum smálesta skiftir af niðursoðinni mjólk. Er ekki tími til kominn að koma í veg fyrir þetta öfugstreymi. — íslendingar ættu að vera útflytjendur allra þess- ara vörutegunda. oo

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.