Íslendingur - 20.11.1925, Blaðsíða 1
Talsími 105.
Riístjóri: Gunnl. Tr. jónsson.
Strandgata 29.
XI. árgangur.
Ákureyri, 20. nóvember 1925.
49. tölubl.
Vegamál.
Bílvegur frá Borgarnesi til
Akureyrar kominn 1940.
Vegamálastjóri sendi síðasta Al-
þingi skýrslu til yfirlits yfir vega-
bætur í landinu síðan 1907 ásamt
áætlun um framkværndir á næstu
árum. Var skýrslan sem vænta
mátti hin fróðlegasta og fara hér á
eftir kaflar úr henni:
Pá er vegalögin voru samþykt á
Alþingi 1907, lá fyrir ítarleg skýrsla
landsverkfræðings ásamt áætlun um
framkvæmdir að vega- og brúar-
gerðum á næstu árum eða jafnvel
áratugum. Síðan hefir þeirri áætl-
un verið fylgt í öllum aðalatriðun-
um og skal hér leitast við að gera
nokkra grein fyrir, hve tnikið hefir
áunnist og hve mikið er enn ógert.
Jafnframt mun og gerð áætlun um
framkvæmdir þær, er telja verður
að næst liggi fram undan.
Santkvæmt vegalögumim frá 1907 voru
þjóðvegirnir að lengd . . . 1635 km.
og flutningabrautirnar . . . 397 —
Samtals 2032 kin.
Hér af má telja að hafi þá verið
akfærir kaflar, sem að notum koma
til kerruflutninga, um 500 km.
í áætluninni frá 1907 eru flutn-
ingabrautir fullgerðar í árslok 1907
taldar 181 km., en ólagðir 226 km.
Jafnframt eru taldir ýmsir kaflar
þjóðveganna (1. flokkur), sem nauð-
synlegt sé, að gerðir verði akfærir
svo fljótt, sem kringumstæður leyfa,
samtals 439 km. Loks eru taldir
aðrir kaflar, (2. flolckur), sem æski-
legt væri að gera akfæra, ef efni
leyfðu, og eru þeir samtals 296 km.
Síðan er lokið við að fullgera
189,4 km. af flutningabrautunum og
eru nú aðeins þessir kaflar ólagðir:
1. Skagfirðingabraut ... 5.6 km.
2. Biskupslungnabrauí . . 15.0 —
3. Húnavatnssýslubraut . . 16.2 —
Samtals 36.8 km.
bjóðvegirnir, sem áætlað var 1907
að gera akfæra, skiftast nú þannig:
1. fl. 2. fl.
km. km.
Góðir akvegir eru nu orðnir 220 14
Akfærir og koma að notum til
kerruflutninga............130 108
Reiðfærir ásamt nokkrum kerru-
færum köflum sem pó ekki koma
að notum enn...............89 174
Samtals 439 296
«
Af þessum þjóðvegaköflum eru
þannig nú orðnir akfærir um 472
km., en um 263 km. eru enn ónot-
hæfir til kerruflutninga.
Þá skal eg gera nokkra grein fyrir
brúargerðum, sérstaklega síðan 1907.
Þá voru hér til 7 járnhengibrýr (yfir
Ölfusá, Þjórsá, Örnólfsdalsá, Hörgá
í Eyjafirði, Jökulsá í Axarfirði og
Sogið) og 2 aðrar járnbrýr (yfir
Blöndu og Jökulsá í Jökuldal hjá
Hákonarstöðum) en engar brýr úr
úr járnbentri steinsteypu. Timbur-
brýr voru þá yfir 30 noklcuð stór-.
ar ár, auk nokkurra minni. Síðan
hafa orðið hér mjög mikil umskifti.
Trébrýr eru nær horfnar, aðeins 15
gamlar eftir á þjóðvegum 10 metra
og lengri, að meðtaldri brú yfir
Lagarfljót, en gerðar hafa verið 19
nýjar járnbiýr og 73 úr járnbentri
sleypu 9 mtr. og lengri auk mesta
fjölda enn minni. Eru þessar fram-
farir elcki litlar, því hér eru lcomin
mannvirki, sem tímans tönn fær
ekki grandað, þótt sérstaklega járn-
brýrnar þurfi nokkuð viðhald, í stað
timburbrúnna, sem grotnuðu niður
á fáum áratugum. Þessar brýr all-
ar, 91 að tölu, hafa kostað kr.
1.439.328,— og er hér af talið greitt,
samkv. lögum um brúargerðir, árin
1920—24 kr. 974.512,—.
Til yfirlits hefi eg dregið saman
öll gjöld ríkissjóðs til vegamála og
hafa þau verið þessi:
1879 -1907 . . . . kr. 2.034.372
1908-1914 . . . . kr. 5.251.238
Samtals kr. 7.285.610
1876—1893 að meðaltali á ári kr. 23.400
1894—1903 -
1904—1913 -
1914—1919 -
1920-1924 -
-------- 107.000
-------- 149,500
-------- 226.100
-------- 643.300
Yfirlit þetta sýnir glögt, að það
er á síðasta hálíum öðrum áratug,
sem verulega hefir miðað áfram um
vegabætur i landinu, enda hljóta
allir að viðurkenna framfarir þessa
tímabils mjög miklar.
Eftir að hafa gefið nákvæmt yfir-
Iit um, hversu langtsé komið að gera
helztu þjóðvegakaflana akfæra, vík-
ur vegamálastjóri að fyrirætlunum
næstu ára. Skiftir hann fyrirhug-
uðum akvegum í flokka, eftir því,
hve fljótt á að leggja þá. í 1. fl.,
sem á að fullgera á næstu 6 árum,
eru 198,7 kílometrar vega víðsvegar
í landinu, sem áætlað er að kosti
kr. 1.423.000,—. Lengsti vegurinn
er 26 km., frá Kollafirði að Laxá í
Kjós, en dýrasti vegurinn yfir Vaðla-
heiði*) að Fnjóská, sem áætlað er að
kosti kr. 190.000, — . Aðal-vegavið-
viðaukinn, sem Eyjafjarðarsýsla er
fyrirhuguð í þessum flokki, er um
Þelamörk að Bægisá, o"g er ráðgert
að hann kosti 65 þús. kr.
í öðrum flokki nýbygginga telur
vegamálastjóri þessa kafla jjjóðveg-
anna:
Sveinatungu—Hrútafjaröarár 36.6 km.
Dalsinynni—Fellsenda . . 24.0 —
Ökrum—Silfrastöðum. . .14.0 —
Fnjóská—Skjálfandafljót . 20.0
Samtals 94.6 km.
Væntanlegur kostnaður við að
gera akbrautir á þessum köflum
mun verða um 800 þúsund krónur.
Að þeim vegagerðum loknum,
sem taldar eru í 1. og 2. floklci,
verður fullgerður samfeldur akfær
vegur frá Borgarnesi norður að
Bólstaðarhlíð í Húnavatnssýslu og
vestur í miðja Dalasýslu, en til þess
*) Ráðgert er nú, að hann liggi yfir
Steinskarð.
AKUREYRAR BIO
Laugardagskvöld kl. 9 — í síðasta sinn:
MYRKRA-MENNIRNIR.
Stórfengleg mynd og vel leilcin.
Sunnudagskvöld kl. 9 — í síðasta sinn:
HEIÐINGJATELPAN
— mynd, sem er frábrugðin því venjulega.
að akfært verði til Húsavíkur um
Akureyri vantar þessa kafla, sem
vegamálastj. telur í 3. flokki:
Yfir Vatnsskarð frá Bólstaða-
hlíð að Víðimýri...............17.0 km.
Frá Silfrastöðum að Norðurá í
Skagafirði.....................13.5 —
Öxnadalsheiði..................12.5 —
Öxnadalur að Bægisá .... 25.5 —
Samtals 68.5 km.
sem ællað er að muni kosta um 700 þús. kr.
Hæstu og jafnframt örðugustu
kaflarnir á leið þessari norður eru:
Holtavörðuheiði mest 330 m. yfir sjávarmál
Vatnsskarð — 420----—
Öxnadalsheiði — 410----—
Vaðlaheiði — 450—— —
Sérstaklega á þrernur síðasttöldu
þessara fjallaleiða hlýtur jafnvel vel
upphleyptur vegur að liggja undir
snjó 6—8 mánuði ársins og rýrist
því notagildi vegarins til mikilla
muna, með því að vart má vænta
svo mikillar umferðar þann tíina
árs, að svarað geti kostnaði að
halda leiðinni opinni, svo sem þó
myndi mega takast með snjóplóg-
um, sem ýtt er eða dregnir af afl-
miklum bifreiðum. Á þann hátt er
nú haldið opnum snjóþungum vetr-
arleiðum í Noregi með góðum
árangri, en ekki verður til þess kost-
að nema þar sem umferð er noklc-
uð mikil. Þó telur vegamálastj. lík-
legt, að fært þætti tilkostnaðar vegna
að halda opinni leið fyrir bifreiðar
alla venjulega vetur yfir Holtavörðu-
heiði, með því að þar má vænta
all-mikillar umferðar. Jafnvel einnig
yfir Vaðlaheiði að miklu leyti.
Það telur hann vafalaust, að við-
haldskostnaður þessara fjallabrauta
verði æði mikill með því og að
víða verði eríitt um haldgóða möl
til slitlags.
Hann segir ennfremur:
»Vegurinn frá Borgarnesi að Ból-
staðarhlíð er um 206 km. og myndi
verða faribn í bifreið á 8—10 klukku-
stundum og farið kosta með líku
verði og var síðastliðið suniar 40
kr. fyrir eitt sæti hvora leið. Með
flutningabifreið myndi kosta undir
100 kg. þessa sömu leið um 12
kr. og er þá að vísu niiðað við bif-
reiðar, sem talca heldur meiri flutn-
ing en hér tíðkast nú, og eru því
tiltölulega ódýrari í rekstri. Væri
vegurinn svo haldgóður, að liann
þyldi bifreiðar, sem bæri 2 smálestir,
mætti áætla flutniiigskostnaðinn jafn-
vel helniingi minni, miðað við rekst-
urskostnað bifreiða á síðastliðnu
ári. Til Húsavíkur er öll vegalengd-
in úr Borgarnesi um 408 km.«
í skýrslu sinni áætlar vegamála-
stjóri, að vegirnir í 2. fl. verði full-
gerðir 1936 og í 3. fl. 1940, verði
líku varið til vegagerða og verið
hefir að meðaltali undanfarin ár.
Rætist þetta, verður að 15 árum
liðnum akfært í bslum alla leið frá
Borgarnesi til Akureyrar og þaðan
til Húsavíkur.
Og gangi alt með feldu í þjóð-
arbúskapnum, er engin ástæða til
að efa, að svona verði það.
O'i
Önr Sauirlrisför.
Með jresssri yfirskrift er greinarkorn
í 43. tölubiaði Dags. Grein þessi er
sýnilega eftir ritstjóra blaðsin og á
að vera tétt lýsing af málaferlaleið-
angri hans, á hendur Sauðárkróksbú-
um þann 14. síðastliðins mánaðar.i
Eins og búast mátti við, er greinar-
korn þetta uppmálað með einum lit,
lit, sem í fæstum tilfellum getur vilt á
sér heimildir, og sem í daglegu tali
er nefndur sjáifsálits- og mikilmensku-
ástríða. Þessi miður heppilega tilhneig-
ing, lýsir sér meðal annars í því, að
ritstjórinn sér ofsjónir og heyrir of-
heyrnir undir málarekstri hans við
andstæðinga sína á Sauðárkróki, sam-
anber iýsingu hans á framkomu Sig-
urðar sýslumanns í réttinum.
Það mun þó rétt með farið hjá rit-
sljóranum, að það hafi verið saman-
lcomið nær 300 rnanns í réltarsalnum,
þegar málið var þar til meðferðar, og
og hefi ég ekki heyrt einn einasta af
áhorfendum eða tilheyrendum sam-
komu þeirrar láta undrun sýna í ljósi
yfir hinum mjög svo mikið áberandi
valdsmannslegu hreifingum sýslumanns-
ins, nema ritstjóra Dags. Enda engar
líkur til, að áhorfendurnir sæju slíkar
ofsjónir í sambandi við sýslumanninn,
því þeir hafa enga ástæðu til að vera
hræddir við hatm, hvorki sem mann
né yfirvald, eins og útlit er fyr'r að
ritstjóri Dags muni vera.
Nei, ritstjóri góður, óhætt má full-
yrða, að S:gurður sýslumaður hefir á
þeim stutta tíma, sem hann er búinn
að dvelja hér sem yfirvald Skagfirð-
inga, áunnið sér tiltrú og virðingu
héraðsbúa, að undanskildum afbrota-
mönnum sýslunnar, sem hann vegna