Íslendingur - 25.05.1928, Page 2
2
ISLENDINGUR.
Málningarvorur,
P e n s 1 a r,
Veggfóður,
alt í miklu úrvali hjá
Tómasi Björnssyni.
Símskeyti.
(Frá Fréttastofu Islands.)
Rvik 24. maí 1928.
Utlend:
Frá Berlín: Ríkisþingskosningar
nýafstaðnar. Hafa jafnaðarmenn
unnið 21 ný þingsæti, kommúnist-
ar 9 og þjóðernissinnar 32. Stuðn-
ingsflokkar stjórnarinnar — mið-
flokkarnir — hafa tapað og eru í
minni hluta. Búist er við nýrri sam-
steypustjórn, er jafnaðarmenn taki
þátt í, og standa þá að henni jafn-
aðarmenn, demókratar, þjóðflokkur-
inn og miðflokkurinn (Centrum)
en f andstöðu verða kommúnistar
og þýski þjóðernisflokkurinn.
Frá Osló: Nobile, ítalski flug-
maðurinn, lagði upp frá Kings Bay á
Svalbarða í fiugið til pólsins í gær.
— Flaug yfir pólinn í nótt.
Frá Lima: Miklir landskjálftar í
norðurhluta Perú. — Flest-öll hús í
bænum Chachapoyas skemdust.
Fræg dómkirkja hrundi.
Frá Rómaborg: ítalska senatið
hefir samþykt frumvarpið um breyt-
ingar á kosningalögunum og tilhög-
un þingsins. Frumvarpið mætti þó
óvæntri mótspyrnu. All-margir sena-
torar sögði frumvarpið svifti ítali
kjörfrelsi og væri þess vegna ósam-
rýmanlegt stjórnarskránni.
Frá Angora er símað til Berlínar-
blaðsins »Tageblatt«: Samkomulag
um öryggissamning er á komið
milli Ítalíu og Tyrklands. — Búist
er við, að Orikkland skrifi einnig
undir samninginn. ítalir fá frjálsar
hendur gagnvart Albaníu, þar eð
samningurinn tryggir Mussolini hlut-
leysi Tyrklands og Grikklands.
ítalskir kaupsýsiumenn fá ýmsar
ívilnanir f Litlu-Asíu.
Frá Peking: Chang-Tso-lin virð-
ist ætla að flytja Norðurherinn til
Mansjúríu. Óttast hann, að Suður-
herinn muni ætla að leggja Man-
sjúríu undir sig, og ætlar að gera
tilraun til þess, að koma í veg
íyrir það.
Frá London: Samkvæmt sein-
ustu fregnum frá Kína ætla Japanar
ekki að koma í veg fyrir, að Suður-
herinn taki Peking herskildi, en láta
sjer sennilega ekki lynda það, ef
Suðurherinn gerir tilraun til þess
að raðast inn í Mansjúríu og Mon-
gólíu.
Frá Tokio: Sum japönsku b'öðin
óttast, að hin langa dvöl japanska
herliðsins í Shantung hjeraði muni
vekja tortrygni í garð Japana í Bret-
landi, en þó einkanlega í Bandaríkj-
um. Ráðleggja blöðin stjórninni,
að kalla heim herliðið úr Shantung-
hjeraði eins fljótt og gerlegt þyki.
Blöðin í Japan eru þó sammála um,
að nauðsynlegt sje að koma í veg
fyrir, að kínverska innanlandsstyrj-
öldin breiðist til Mansjúríu.
Frá Khöfn: Símskeyti frá Hels-
ingfors frá 16. þ. m. herma, að tvö
finsk herskip hafi komið á móti
konungsflotanum út við landhelgis-
línu, en Sveaborg-vígið sendi drynj-
andi stórskotakveðju. Relander for-
seti gekk um borð í konungsskipið
»Niels Juel« úti í skerjagarðinum.
Höfuðborgin var prýdd dönskum,
íslenskum og finskum fánum og á
landgöngubrú voru greniþaktar súl-
ur og á peim skjaldarmerki íslands,
Danmerkur og Finnlands. Þegar
konungurinn gekk á Iand, var leikið
»Kong Christian® og »Ó, guð vors
Iands«, en vígin og herskipin sendu
fallbyssukveðjur. Formaður borgar-
stjórnarinnar, Tulenheimo prófessor,
flutti fagra ræðu til að fagna gest-
unum. Mintist hann þar hinnar ís-
lensku þjóðar, »sem tekist hefir að
vernda dýrmætar minningar og skapa
sjálfstæða andlega og efnalega menn-
ingu, er vekur aðdáun vora«.
Konungur þakkaði og síðan var
gengið til hallarinnar, en sjóliðar
skipuðu heiðursfylkingu báðum
megin vegarins alla leið.
Innlend:
Jónas Jónsson dóms- og kenslu-
málaráðherra hefir skipað svo fyrir,
að ekki skuli fieiri en 25 nemendur
fá aðgang að I. bekk Mentaskólans
í vor. Um ráðstöfun þessa hafa
risið deilur í blöðunum. — Sami
ráðherra hefir ákveðið, að »Suður-
landsskólinn* skuli reistur á Laug-
arvatni í Laugardal. (Er það þvert
á móti tillögum sýslunefnda Árnes-
og Rangárvallasýslna og ennfremur
nefndar þeirrar, er koma átti fram
með tillögur um skólastaðinn).
Smásöluverð í Reykjavík lækkað
um l°/o síðan í mars síðastl., en
um 4% síðan í apríl í fyrra.
Með »Gullfoss« síðast fór Björn
Jakobsson fimleikakennari og 12
stúlkur til alþjóðafimleikamótsins í
Calais á Frakklandi, sem flokkurinn
ætlar að taka þátt í.
Norðmaður, Fuglestad frá Dram-
men, sektaður fyrir að smygla hjeð-
an refaskinnum til Noregs. Sektar-
fje að viðbættu þreföldu útflutnings-
gjaldi tæpar 600 krónur.
Smákaupmannafjelag stofnað í
höfuðstaðnum, sömuleiðis stórkaup-
mannafjelag.
»GaIdra-Loftur« leikinn á ísafirði.
Aðalleikendur Haraldur Björnsson
og Ingibjörg Steinsdóttir. Mikið
látið af sýningunum.
Frá Seyðisfirði 'er símað: Reyt-
ings-afli, en stopular gæftir. Loft-
kuldi og jeljagangur um daga og
frost á næturnar.
Rafsuðuvjel,
tvöfald, 2000 kw., er til sölu með
tækifærisveroi. Til sýnis og sölu í
Aðalstræti 18.
Straustofa
mín er flntt í
Brekkugötu 10
(áður hús Jónasar Rafnars).
Laufey Benediktsdóttir%
Nýjar yetur 09 torg.
Veganefnd, með aðstoð þeirra Stein-
gríms Matthíassonar Iæknis og Böðvars
Bjarkans lögmanns, hefir nýlega gefið
nöfn áður óskírðum götum, er settar eru
á hinn nýja skipulagsuppdrátt bæjarins.
Einnig skirt fyrirhugaða leikvclli, lystigarða
og torg. Hefir bæjarstjórnin fallist á nöfn-
in. — Bæjarbúurn til fróðleiks birtast
þau hjer á eftir.
Torg, leikvellir, Iystigarðar.
1. Oilhagi, fyrirhugaður lystigarður í Búð-
argili.
2. Blómsturvellir, lystigarðurinn við Oagn-
fræðaskólann.
3. Orænidalur, lystigarðurinn í Orófargili.'
4. Fagrabrekka, lystigarðurinn austan
Brekkugötu.
5. Eiðsvellir, leikvöllurinn á miðri Odd-
eyri.
6. Kaupvangur, torgiö upp af Torfunefs-
bryggju.
7. Ráðhússtorg, 'torgið í Hamarkotsbót
Götur.
Nýju götunum eru valin þessi nöfn:
1. Súlnastræti, eins og áður.
2. Túngata, eins og áður.
3. Barnabraut, stígurinn upp að leikvang-
inum.
4. Leikvangsstígur, stígurinn kringum
leikvanginn.
5. tílómsturvallagata, gatan sunnan við
Lystigarðinn.
6. Kristnessgata, milli Túngötu og
Briemsgötu.
7. Vallarstígur, syðri stígurinn milli
Kristnessg. og Briemsg.
8. Eyrarlandstraðir, nyrðri stígurinn
milli Kristnessg. og Briemsg.
9. Meistarastígur, gatan ofan við Lysti-
garðinn.
10. Skólastígur, gatan norðan við Menta-
skóiann.
11. Matthíasargafa, frá hvamminunt vest-
au Sigurh. norðan og vestanvert við
t,ygg>ngarreitina suður af Hrafnagils-
síræti.
12. Páls Briemsgata, frá þvt Oddeyrarg.
og Þingvallastr. skerast, suður að
Súlnastræti.
13. Bæjarstræti, gatan næst austan Btiems-
götu.
14. Möðruvallastræti, rræst vestan Eyrar-
landsv. milli Matthíasarg. og Þing-
vallastrætis.
15. Eyrarlandsvegur, frá Grófargili, suður
brekku, uns skerast Spítalav., Túnag.
og Eyrarlandsv.
16. Gilsbakkavegur, frá Oddagötu t sveig
til suðurs og vestur eftir gilbarmin-
um að Bataveg.
17. Batavegur, stígurinn austan spítalans
við Garð.
18. Bjarmagata, brotin gata austan Odd-
eyrarg kringum byggingarr. 34.
19. Helga Magrastræti, gatan austan við
byggingarr. 30, frá Þingvallastræti að
Munkaþverárstræti.
20. Lögbergsgata, næsta gata norðan við
Þingvallastræti. 7
21. Hamarsstígur, nyrðri þverg. milli
Helga Magrastr. og Oddeyrarg.
22. Holtagata, vestari gatan milli Lög-
bergsg. og Hamarsstígs.
23. Hlíðargata, milli Oddeyrargötu og
Holtagötu.
24. Munkaþverárstræti, milli Hamarsstígs
og Brekkugötu.
25. Krabbastígur milli byggingarreita 37
og 41.
26. Sniðgata, milli byggingarreita 41
og 43.
27. Klapparstígur, sveiggata norðan Fögru-
brekku.
28. Brattastígur, stígur sunnan Fögru-
brekku.
29. Holtabraut, austan Fögrubrekku frá
Qeislag. út í Gleráreyrar.
30. Geislagata, frá Ráðhússtorgi að Glæsi-
völlum.
31. Laxagata, milli byggingarreita 53
og 50.
32. Fífusund, milli byggingarreita 54
og 55.
33. Smáragata, gatan milli Hólabr. bg
Eiðsvalla.
34. Fjólugata, gatan milli byggingarreita
61 og 65, 63 og 67.
35. Þvottastígur, milii byggingarreita 65
og 66.
36. Hörgárbraut, frá Eiðsv. að vestan, út
á Gleráreyrar.
T---------------------------?
ÍSLENDINGUR
kemur út á föstudögum.
Árgangurinn kostar 6 kr. innanlands,
8 kr. í útlöndum.
Gjalddagi 15. júní.
Afgreiðslu og innheimtu annast:
Hallgr. Valdemarsson,
Hafnarstrœti 45.
i---------------------------i
37. Fróðasund, milli byggingarreita 56
og 57.
38. Eiðsvallavegur, sunnan Eiðsvalla, milli
Geislagötu og Hjalteyrarg.
39. Eyrarvegur, ysta lengdargatan á Odd-
eyrinni.
40. Orænagata, gatan norðan Eiðsvalla.
41. Ránargata, milli 68 og 69.
42. Ægisgata, milli 69 og 70.
43. Skipagata, vestan Oddeyrarbótar frá
Kaupvangsstr. að Ráðhússtorgi.
44. Kaupvangsstræti, frá Torfunelsbryggju
upp að Garði.
45. Fálkastígur, suðvestan við byggingar-
reit 38.
Vorkveðja.
Nú heilsar hýra vorið,
sem hugar eykurþorið,
en glœðir líf og Ijós.
— Æskan örfar sporið
og aftur lifnar rós.
Þá tún og grundir gróa,
glöð að svífur lóa,
er leitar landsins til:
að byggja börð og móa
l birtu og sólaryl.
Þá niða lœkir Ijettir,
því lífsmagn nýtt þeim rjettir
vorsins rnundin mœt
og fannablæju flettir.
— Um fold er angan sœt.
'Er klœðir vorið vœna
vort land í skartið grœna,
hve fagurt þá það er.
— Alt vill hugann hœna
svo hlýtt og.jnjúkt að sjer.
Þú blessað vorið blíða,
sem burt oft hrindir kvíða
og mýkir margra sár.
Æ, lát nú þinn blæ þýða
og þerra hvert eitt tár.
Þú vor, sem veitir yndi,
%
vek þú oss í skyndi,
auk vorn innri þrótt. —
Bróðurhugans bindi
berðu frónskri drótt.
St. Q.
M/s. „ E r n a “
fer til Siglufjarðar n. k. þriðjudag.
Tekur flutning og farþega.
S. /. H'jaltalín.
Húsnæði.
Svefnherbergi og dagstofa (helst
með húsgögnum), sem jiæst mið-
bænum, óskast frá júlíbyrjun til
hausts eða vors. Tilboð með til-
greindri stærð, mánaðarleigu og
ræstingu óskast send skrifstofu þ.
bl. fyrir lok þessa mánaðar.
Sangen om Klovnen,
og fleiri úrvalslög, nýkomin.
Finnið Stefán frá Glæsibæ.